Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (staðgreiðsla, álagning o.fl.). nr. 33/2020

Landsréttur birt 19. desember 2024

913/2024

A (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Skattinum (Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um ógildingu aðfarargerðar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem fram fór til tryggingar á vangoldinni skattkröfu S á hendur fyrrverandi maka A.

Landsréttur birt 18. nóvember 2022

633/2021

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Eiríki Sigurbjörnssyni (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

E var sakfelldur í héraði fyrir meiri háttar brot gegn lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt og lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2012 til og með 2017 og láta undir höfuð leggjast að telja fram á skattframtölum sínum annars vegar persónulegar úttektir út af greiðslukortum sem E hafði afnot af og voru skuldfærð af bankareikningi GC ehf., hins vegar úttektir E samkvæmt viðskiptareikningi hans hjá GM ehf. Var refsing E ákveðin fangelsi í 10 mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið um tvö ár. Þá var honum gert að greiða 108,9 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 360 daga. Fyrir Landsrétti krafðist E þess aðallega að málinu yrði vísað frá héraðsdómi. Byggði E annars vegar á því að fjallað hefði verið um sakarefni málsins þegar ríkisskattstjóri endurákvarðaði gjöld á hann með úrskurði sínum, hins vegar að við skatteftirlit ríkisskattstjóra hefði verið brotið gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar við rekstur sakamáls þar sem honum hefði verið gert að viðlagðri refsiábyrgð að leggja fram gögn hjá ríkisskattstjóra sem síðan hefðu verið notuð við rannsókn málsins. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ríkisskattstjóri hefði ekki lagt álag á vanframtalda tekjuskattstofna E og að við málsmeðferð hjá ríkisskattstjóra hefði ekkert verið fjallað um beitingu álags. Væri því ekki unnt að líta svo á að E hefði sætt tvöfaldri málsmeðferð vegna sömu refsiverðu háttsemi. Þá féllst rétturinn ekki á það með E að brotinn hefði verið á honum réttur til réttlátrar málsmeðferðar við rannsókn málsins. Var frávísunarkröfu E því hafnað. Landsréttur taldi sannað svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa að E hefði nýtt greiðslukort sem skuldfærð voru á bankareikning GC ehf. til eigin nota að því marki sem greint var í ákæru. Þá hefði E sem hluthafi, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri í GM ehf. staðfest að félagið hefði lánað honum þá fjármuni sem í ákæru greindi. Samkvæmt því var héraðsdómur staðfestur um sakfellingu E og refsingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. október 2021

S-604/2020

Héraðssaksóknari (Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Eiríki Sigurbjörnssyni (Jón Örn Árnason)
Lykilorð: Sekt. Skattalög.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um tekjustofna sveitafélaga. Hann var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og greiðslu sektar.