Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 4. mgr. 6. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna
I höfðaði mál á hendur L og krafðist þess að verða sýknuð af kröfu L um endurgreiðslu þriggja lána, samtals að fjárhæð 1.444.918 krónur, sem I var sjálfskuldarábyrgðaraðili að og tekin voru á árunum 1990-1992 í gildistíð laga nr. 72/1982 um námslán og námsstyrki. Fyrir lá að endurgreiðsla lánanna átti að hefjast þremur árum eftir námslok lántakanda, sem skráð voru 3. ágúst 1994. Árið 1992 tóku gildi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kvað 18. gr. laganna á um að skuldari samkvæmt lögunum, sem væri jafnframt að endurgreiða námslán samkvæmt lögum nr. 71/1982 eða eldri lögum, skyldi fyrst endurgreiða að fullu lán sem tekin væru samkvæmt nýju lögunum. Byggði I á því að þágildandi ákvæði 18. gr. laga nr. 21/1992 væri óskuldbindandi fyrir ábyrgðarmenn án samþykkis þeirra, enda bryti ákvæðið gegn þeirri grundvallarreglu fjármunaréttarins að greiðslum frá skuldara skyldi fyrst ráðstafa til elstu skuldar, auk þess sem um væri að ræða afturvirka íhlutun löggjafans sem hefði íþyngjandi áhrif á stjórnarskrárvarin eignarréttindi I. Í dómi Landsréttar kom fram að með vísan til dóma Hæstaréttar í málum nr. 385/2017, 492/2017 og 622/2011 yrði talið að þótt þágildandi 18. gr. laga nr. 21/1992 raskaði friðhelgi eignaréttar ábyrgðarmanns yrði beiting hennar ekki í andstöðu við 72. gr. stjórnarskrárinnar svo lengi sem meðalhófs væri gætt. Þá var talið að ákvæði 18. gr. laganna hefði ekki sett I í slíka óvissu eða raskað kröfuréttarsambandi hennar við L með svo íþyngjandi hætti að í bága fari við 72. gr. stjórnarskrár. Með hliðsjón af framangreindu var dómurinn staðfestur.
Fallist var á kröfu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um að ábyrgðarmaður námsláns greiddi skuld við sjóðinn.
Stefndu sýknuð af kröfu stefnanda á grundvelli fyrningar.
Stúdentaráð Háskóla Íslands, Nemendaráð Listaháskóla, Íslands, Nemendafélag, Landbúnaðarháskóla Íslands, Samband íslenskra námsmanna, erlendis, Bandalag íslenskra, námsmanna, Stúdentafélag Háskólans í, Reykjavík, Samband íslenskra, framhaldsskólanema, Félag stúdenta við Háskólann, á Akureyri, Nemendafélag Háskólans á og Bifröst (
Daníel Isebarn Ágústsson hrl)
gegn
Lánasjóði íslenskra og námsmanna (
Sigurbjörn Magnússon hrl) og
og íslenska ríkinu (
Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Með dóminum er viðurkennt, að kröfu Stúdentaráðs Háskóla Íslands og fleiri námsmannahreyfinga, að skólaárið 2013-2014 sé Lánasjóði íslenskra námsmanna óheimilt að gera kröfu um að námsmaður ljúki fleiri en 18 ECTS-einingum á hverju misseri eða samsvarandi hlutfalli á önn í fjórðungaskólum, til að eiga rétt á námsláni. Með úthlutunarreglum fyrir skólaárið 2013-2014 sem birtar voru í Stjórnartíðindum 25. júlí 2013 var lágmarkið hækkað í 22 einingar en breytingin hafði ekki tekið gildi þegar opnað var fyrir umsóknir um námslán fyrir skólarárið 2013-2014 þann 11. júlí 2013.