Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 66. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Bjarka Magnússyni, Birni Sveinbjörnssyni, Jóhannesi Páli Sigurðssyni, Kára Bertilssyni, Hilmari Kára Hallbjörnssyni, Rúnari Brynjari Einarssyni, Kristjáni Gunnari Guðmundssyni, Elmari Frey Elíassyni og Kveldúlfi Fennri N. Árnasyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Ákærðu voru ákærðir fyrir brot gegn höfundalögum nr. 73/1972 með því að gera ólögmæt eintök af höfundaréttarvernduðu efni, vistað það í nettengdum tölvum og birt það hópi fólks á lokuðu svæði án heimildar rétthafa með því að nýta eiginleika DC++ skráarskiptaforrits. Um var að ræða forrit, kvikmyndir, sjónvarpsþætti, teiknimyndir, tónlistamyndbönd og tónlist. Efni þetta var bæði íslenskt og erlent, samtals 130.430 eintök. Í Hæstarétti var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að allt það efni sem ákært hefði verið fyrir nyti verndar höfundalaga. Einnig var tekið undir með héraðsdómi að ákæru hefðu stundað ólögmæta eintakagerð á höfundaréttarvörðu efni og að sá háttur sem hafður væri á dreifingu þess, að deilda því með öðrum á fjölmennu en lokuðu jafningjaneti, jafngilti opinberri birtingu og félli ekki undir undanþáguákvæði 11. gr. höfundalaga, sem leyfi eintakagerð til einkanota. Með þeirri háttsemi var staðfest niðurstaða héraðsdóms að ákærðu hefðu gerst sekir um brot gegn lögum nr. 73/1972. Ákærði B var einnig sakfelldur fyrir hlutdeilt í brotum meðákærðu með því að hafa hýst og haft umsjón með miðlæga nettengipunktinum „Ásagarði“. Með því hefði hann í verki hvatt til þess að meðákærðu birtu á veraldarvefnum ólögmæt eintök af höfundaréttarvörðu efni, án heimildar frá rétthöfum.
Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn
skattrannsóknarstjóra ríkisins
Talið varð að R sem handhafi rannsóknar- og ákæruvalds vegna ætlaðra stórfelldra brota á skattalögum, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga, ætti rétt til aðgangs að gögnum er vörðuðu tekjuskattskil A og sérreglur laga nr. 90/2003 um hlutverk S við rannsókn og sektarmeðferð brota samkvæmt þeim lögum gætu ekki staðið þessu í vegi. Því var fallist á beiðni R um húsleitarheimild, enda hafði S ítrekað hafnað því að afhenda umrædd gögn.
Á kærði úrskurð héraðsdóms, þar sem ákæru á hendur E, G og K var vísað frá dómi. Talið var að fyrirkomulag samkeppnislaga hefði ekki verið nógu skýrt um meðferð máls ef grunur vaknaði um að brotið hefði verið gegn lögunum, og þar af leiðandi óskýrt hvernig með skyldi fara ef tilefni þætti til opinberrar rannsóknar jafnhliða meðferð samkeppnisyfirvalda og hvenær beita ætti refsiviðurlögum. Átti það meðal annars við þá stöðu E, G og K að taka þátt í viðræðum og samningum við Samkeppnisstofnun og veita henni upplýsingar, en fella á sama tíma á sig sök með því að málið var síðar tekið til refsimeðferðar. Var því ekki talið nægjanlega fram komið að í lögreglurannsókninni, sem fór fram í kjölfar meðferðar samkeppnisyfirvalda, hefðu þeir, eins og þeirri rannsókn var hagað, fengið notið þeirra réttinda sakborninga, sem mælt er fyrir um í 70. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og meginreglum laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Yrði því ákæra ekki reist á þeirri lögreglurannsókn og var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.