AM, EA, EG og GA voru sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnabrot framið í ágóðaskyni með því að hafa lagt á ráðin um og staðið saman að innflutningi á tæplega tveimur kílóum af kókaíni, auk þess sem AM var sakfelldur fyrir vörslur tæplega tveggja gramma af fíkniefnum. Að virtum þætti hvers ákærðu í skipulagningu og framkvæmd sameiginlegs brots þeirra, sem þótti nokkuð misjafn, og því sem greindi í héraðsdómi varðandi ákvörðun refsingar var EA dæmd til að sæta fangelsi í fimm ár, AM í þrjú ár, en EG og GA í tvö ár hvort. Eins og brotum þeirra var háttað þótti ekki koma til álita að binda refsingu skilorði í heild eða að hluta.
Þrír karlmenn og tvær konur dæmd til fangelsisvistar vegna innflutnings á tæpum tveimur kílóum af kókaíni. Karlmennirnir dæmdir í óskilorðsbundið 3 ára fangelsi, en yngri konan, sem var 18 ára gömul, dæmd til 3 ára fangelsisvistar sem var skilorðsbundin í 3 ár vegna ungs aldurs hennars og hreins sakarferils. Eldri konan dæmd til 4 ára fangelsis, þar sem fram þótti komið að þáttur hennar í skipulagningu á innflutningi fíkniefnanna var lang veigamestur, auk þess sem hún hafði rofið skilorð og var skilorðsdómur dæmdur upp. Þá voru fíkniefnin, tæp tvö kíló af kókaíni gerð upptæk og öll ákærðu dæmd til greiðslu sakarkostnaðar.
Karlmaður dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að hafa haft vörslur á 973,2 g af amfetamíni og um 11 kílóum af hassi, kannabislaufum og kannabisstönglum, allt í sölu- og dreifingarskyni. 13 mánuðir refsingarinnar skilorðsbundnir í 3 ár. Kona dæmd til skilorðsbundins 3 mánaða fangelsis fyrir vörslur á 973,92 g af hassi og 643,92 g af hassi. Upptaka á tækjum sem ætluð voru til ræktunar og fíkniefnunum.
Ákæruvaldið (
Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Unnari Erni Stefánssyni Hákoni Sveinbjörnssyni og Gísla Þór Ásbjörnssyni (
Jón Haukur Hauksson hdl)
Ákvörðun um refsingu þriggja pilta frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einn piltanna sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika og félagar hans sakfelldir fyrir hlutdeild í þeirri tilraun. Annar þeirra síðastnefndu var jafnframt sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og nytjastuld og hinir tveir fyrir hlutdeild í síðastnefnda brotinu.
M og S voru ákærðir fyrir líkamsárásir. Þrátt fyrir nokkra ónákvæmni í ákæru þótti mega leggja dóm á málið með þeirri greiningu á sakarefninu, sem fólst í hinum áfrýjaða dómi. Í héraði voru báðir sýknaðir af sakargiftum um líkamsárás á A, en hvor um sig hins vegar sakfelldur fyrir líkamsárás á B. Fyrir Hæstarétti gerði ákæruvaldið kröfu um að M yrði sakfelldur fyrir líkamsárás á A. Voru ekki efni til að Hæstiréttur endurmæti sönnunargildi munnlegs framburðar tveggja vitna, sem sýkna M í héraði þótti byggja á. Var héraðsdómur því staðfestur um þetta atriði. Báðir ákærðu kröfðust fyrir Hæstarétti sýknu af ákærum um líkamsárás á B, sem þeir voru sakfelldir fyrir í héraði. Var ekki fallist á forsendur fyrir sakfellingu M og var hann því sýknaður af þessum þætti ákærunnar. Ekki var fallist á andmæli S, sem fyrst komu fram við meðferð málsins fyrir Hæstarétti, við því að dómskýrsla vitnis, sem sakfelling hans í héraði var byggð á, hafði verið tekin gegnum síma. Hins vegar yrði litið til athugasemdanna við mat á sönnunargildi vitnaskýrslunnar. Ekki var talið unnt að sakfella S fyrir líkamsárás á B á þeim grundvelli sem gert var í héraðsdómi og var hann því sýknaður af því ákæruefni. Í samræmi við þetta var bótakröfum í ákæru vísað frá héraðsdómi.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ragnari Erni Möller (
Hilmar Ingimundarson hrl)
R var ákærður og dæmdur fyrir að hafa, í félagi við aðra, brotist inn í fjölda sumarbústaða og stolið þaðan verðmætum, auk þess að hafa valdið eignaspjöllum. Var R dæmdur til fangelsisrefsingar.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Jóni Hinrik Hjartarsyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
J var ákærður fyrir þjófnað. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest með vísan til forsendna og J dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.