Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 116. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
G og eiginkona hans seldu R ehf. hlutafé sitt í hlutafélaginu B ehf. á árinu 2005. Aðaleign hins selda félags var 76,27% hlutur í V ehf. Við söluna gerðu aðilar með sér samkomulag þar sem m.a. kom fram að við kaupsamning yrði gerður samningur milli aðila þess efnis að G fengi kauprétt að lóð sem V ehf. kynni að verða úthlutað síðar. G höfðaði síðar dómsmál vegna vanefnda R ehf. á samkomulaginu og var bótaskylda félagsins viðurkennd með dómi í héraði, en heiti félagsins hafði þá verið breytt í RS ehf. Vegna gjaldþrots RS ehf. fékk G dómkröfu sína ekki greidda og höfðaði hann því mál þetta þar sem hann krafði E og H persónulega um skaðabætur þar sem þeir hefðu með aðgerðum sínum sem stjórnendur R ehf. og V ehf. á árinu 2006 ráðstafað hagsmunum sem vörðuðu lóðina með þeim hætti að komið hefði verið í veg fyrir að hann gæti knúið fram efndir á samkomulagi sínu og R ehf. um kauprétt að henni. Hæstiréttur rakti að stjórnendur einkahlutafélags bæru ekki ábyrgð á skuldbindingum slíks félags, en gætu orðið skaðabótaskyldir persónulega á grundvelli sakarreglunnar ef þeir hefðu valdið þeim, sem skipti ættu við félagið, fjárhagstjóni með ólögmætum og saknæmum hætti. Taldi Hæstiréttur hins vegar að G hefði ekki sýnt fram á að E og H hefðu bakað sér persónulega bótaskyldu gagnvart honum og staðfesti því niðurstöðu héraðsdóms um sýknu þeirra.
Stefnandi krafði stefndu um skaðabætur vegna tjóns sem hann taldi þá hafa valdið sér með því að hafa, með saknæmum og ólögmætum hætti, komið í veg fyrir að lóð sem hafi átt að standa honum til ráðstöfunar, samkvæmt samningi, hafi verið ráðstafað í þágu annarra.
Kærumál. Stefna. Málsástæður. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli G gegn E og H var vísað frá dómi. Talið var að rakning G á málsástæðum væri knöpp, en að því verði að gæta að samkvæmt c. lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 skuli lýsing málsástæðna í héraðsdómsstefnu vera gagnorð og svo skýr að ekki fari milli mála hvert sakarefnið sé. Ekki verði séð að vafi geti leikið á því hvert sakarefnið í máli þessu sé. Komi ekki nægilegur rökstuðningur fram í málatilbúnaði G fyrir þeim atriðum sem greini í niðurstöðu hins kærða úrskurðar eftir að málið hafi verið munnlega flutt verði brestur á því að hafa áhrif á efnislega niðurstöðu þess í dómi. Með kæru úrskurðar um frávísun málsins hafi G látið í ljós að hann kjósi að fá efnisdóm eins og málið liggi fyrir og standi ákvæði 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 því ekki í vegi. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A á hendur Héraðsdómi Suðurlands var vísað frá dómi með vísan til 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Með dómi Hæstaréttar 3. mars 2010 í máli nr. 96/2010 hafði kröfu A um heimild til að leita nauðasamninga til greiðsluaðlögunar verið hafnað á þeim forsendum að fullnægjandi skýringar þótti skorta í greinargerð A á breyttri skuldastöðu hennar frá árslokum 2008 til 29. janúar 2010. Leitaði A nú heimildar til nauðasamninga vegna greiðsluaðlögunar í annað sinn. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í hinum kærða úrskurði væri á því byggt að með beiðni A, sem borist hafi héraðsdómi 25. mars 2010, hafi verið bætt úr þeim annmörkum sem Hæstiréttur taldi vera á fyrri beiðninni. Að svo búnu hefði héraðsdómara borið að taka málið til efnisúrlausnar enda stæðu ákvæði 116. gr. laga nr. 91/1991 því ekki í vegi. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Sakfellt fyrir þjófnað og vörslur fíkniefna. Dæmdur hegningarauki, alls 2ja mánaða fangelsi skilorðsbundið.
Jón Ágúst Jóhannsson Sigríður Sveinsdóttir og Jón Jóhannsson ehf (
Steingrímur Þormóðsson hrl)
gegn
Holtabúinu ehf Gunnari Andrési Jóhannssyni og Sigurði Garðari Jóhannssyni (
Magnús Thoroddsen hrl)
Með vísan til e. liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála var máli J, S og J ehf. vísað frá héraðsdómi.