Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 8. gr. laga nr. 18/1997 — Lög um endurskoðendur

Landsréttur birt 20. mars 2025

338/2023

Lyfjablóm ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Birki Kristinssyni (Ólafur Eiríksson lögmaður), Stefáni Bergssyni og PricewaterhouseCoopers ehf. (Kristín Edwald lögmaður), Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur (Ragnar Halldór Hall lögmaður) og til réttargæslu Glitni HoldCo ehf. og til réttargæslu Glitni HoldCo ehf (Ragnar Björgvinsson lögmaður)

L ehf. höfðaði mál gegn B, SB, P ehf. og SG til heimtu skaðabóta vegna fjártjóns sem L ehf. taldi sig hafa orðið fyrir vegna 46.000.000 króna millifærslu 20. janúar 2005 af bankareikningi L ehf. inn á bankareikning M ehf. Byggði L ehf. á því að B, SB, P ehf. og K, látinn eiginmaður SG, sem situr í óskiptu búi eftir K, hefðu valdið félaginu tjóni, ýmist með aðkomu sinni að millifærslunni sjálfri eða með nánar tilgreindum athöfnum eftir að hún var framkvæmd. Í dómi Landsréttar kom fram að stjórn L ehf. hefði samhljóða tekið ákvörðun um að kaupa 10% heildarhlutafjár í félaginu af öllum fjórum hluthöfum þess fyrir 1.620.000.000 króna. Samkvæmt gögnum málsins hefði L ehf. greitt hluthöfunum fyrir hlutaféð annars vegar með reiðufé, 1.420.000.000 króna, og hins vegar með nánar tilgreindum útistandandi kröfum félagsins, samtals að fjárhæð 200.000.000 króna. Meðal þeirra krafna var skuld M ehf. við L ehf. að fjárhæð 46.000.000 króna. Að þessu gættu var ekki talið að L ehf. hefði sýnt fram á að félagið hefði orðið fyrir tjóni vegna millifærslunnar 20. janúar 2005. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu B, SB, P ehf. og SG af kröfum L ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2023

E-3514/2021

Lyfjablóm ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Birki Kristinssyni (Ólafur Eiríksson lögmaður), Stefáni Bergssyni og PricewaterhouseCoopers ehf. (Kristín Edwald lögmaður), Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur (Ragnar Halldór Hall lögmaður) og Glitni HoldCo ehf. til réttargæslu

Sami maður stýrði bæði eigin fjárfestingafélagi, B, og fjárfestingafélagi A sem hann átti með systkinum sínum. A taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna millifærslu sem fór af bankareikningi A á bankareikning B í janúar 2005. A taldi starfsmann bankans, sem sá um millifærsluna, endurskoðanda og endurskoðunarfyrirtæki, sem endurskoðaði reikninga beggja félaganna svo og fyrrverandi stjórnanda A hafa valdið þessu tjóni á saknæman og ólögmætan hátt. A höfðaði því mál á hendur bankastarfsmanninum, endurskoðandanum og fyrirtæki hans. Þar eð stjórnandinn fyrrverandi var fallinn frá, en ekkja hans sat í óskiptu búi, höfðaði A einnig mál á hendur henni. Starfsmaður bankans stefndi bankanum til réttargæslu eignarhaldsfélagi sem heldur utan um eignir bankans sem starfsmaðurinn starfaði hjá. Talið var að skuld B við A hefði verið gerð upp með skuldajöfnun árið 2007 og því hefði A ekki sýnt fram á að tjón hefði hlotist af millifærslunni. Þegar af þeirri ástæðu voru allir stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 28. apríl 2016

74/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X, V, U, W, Y og Z (Ólafur Eiríksson hrl, Sigmundur Hannesson hrl, Ragnar Tómas Árnason hrl, Gísli Guðni Hall hrl, Hilmar Gunnarsson hdl, 1. prófmál, Gestur Jónsson hrl, Ragnar Halldór Hall hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu X, V og U voru bornir sökum um umboðssvik með því að hafa í störfum sínum sem stjórnendur M ehf. misnotað aðstöðu sína og valdið félaginu verulegri fjártjónshættu þegar þeir létu það fjármagna efndir á samningum sem X og V gerðu í desember 2005 við A um sölu þeirrar síðarnefndu á hlutafé í þremur tilteknum félögum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt hljóðan sinni hefðu umræddir samningar engar skuldbindingar lagt á M ehf., heldur eingöngu á X og V. Þrátt fyrir það hefði M ehf. verið látið efna samninga þeirra við A og í því skyni greitt henni samtals 5.195.721.859 krónur. Hefðu ákærðu með þessu misnotað aðstöðu sína hjá M ehf. Þá var ekki fallist á að M ehf. hefði verið nægilega varið fyrir fjártjóni vegna þessara ráðstafana og sérstaklega vísað til þess að kröfuréttindi M ehf. á hendur MIE Ltd. hafi verið orðin tóm og því einskis virði. Samkvæmt þessu voru ákærðu X, V og U sakfelldir fyrir umboðssvik. Ákærðu X, V og U voru einnig sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn lögum nr. 145/1994 um bókhald með því að hafa ekki í tilteknum tilvikum hagað bókhaldi M ehf. á nægilega skýran, öruggan og aðgengilegan hátt á grundvelli áreiðanlegra og fullnægjandi gagna. Þá voru þeir sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn lögum nr. 3/2006 um ársreikninga með því að hafa í störfum sínum í sameiningu rangfært efnahagsreikninga, sem hafi verið hluti af ársreikningum M ehf. og samstæðureikningum fyrir samstæðu M ehf. fyrir árin 2006 og 2007, og hagað gerð þeirra þannig að reikningsskilin hafi ekki gefið glögga mynd af rekstrarafkomu og eignabreytingum á umræddum reikningsárum. Þannig hefðu ákærðu meðal annars talið til eignar í ársreikningum kröfur sem svöruðu til greiðslna til A án þess að fyrir lægi peningalán, viðskipti eða undirritaður lánssamningur. Ákærðu Y og Z voru sakfelld fyrir meiri háttar brot gegn lögum nr. 3/2006 og lögum nr. 18/1997 um endurskoðendur, sbr. lög nr. 79/2008 um sama efni, með því að hafa hagað störfum sínum við endurskoðun ársreikninga M ehf. og samstæðu félagsins fyrir árin 2006 og 2007 í ósamræmi við góða endurskoðunarvenju. Í dómi Hæstaréttar kom fram að vanræksla Y og Z að þessu leyti hefði leitt til þess að rangfærslur í reikningsskilum M ehf. um kröfur félagsins hafi staðið óátaldar. Ákærðu Y, Z og X voru aftur á móti sýknuð af þeim sakargiftum að hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 18/1997 og 79/2008 með því að rækja ekki endurskoðunarstörf sín fyrir M ehf. eftir góðri endurskoðunarvenju og beita þar ekki viðurkenndum aðferðum eftir leiðbeinandi reglum alþjóðasamtaka endurskoðenda. Í dómi Hæstaréttar var rakið að þótt háttalag þeirra kynni að hafa strítt gegn góðri endurskoðunarvenju yrði í umræddum lögum ekki fundin tæk heimild til að leggja á refsingu fyrir þá háttsemi sem þeim var gefin að sök. Í þeim efnum væri enn síður fært að byggja á ótilgreindum leiðbeinandi reglum alþjóðasamtaka endurskoðenda.

Hæstiréttur birt 18. mars 2002

116/2002

Jóhann Óli Guðmundsson (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn Lyfjaverslun Íslands hf, Aðalsteini Karlssyni, Heiðu Láru Aðalsteinsdóttur, Hildi Sesselju, Aðalsteinsdóttur, Tómasi Aðalsteinssyni, Bjarna Halldórssyni, Jóhannesi Blöndal, Haraldi Gunnarssyni og Lárusi L. Blöndal (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)

J höfðaði mál á hendur L hf. o.fl. þar sem hann krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að samningur milli L hf. annars vegar og A o.fl. hins vegar um kaup félagsins á öllum hlutabréfum hinna síðarnefndu í A hf. væri ógildur. Þá krafðist J þess að A o.fl. yrði gert að endurgreiða L hf. nánar tiltekna fjárhæð og afhenda L hf. hlutabréf í félaginu gegn framsali þess á hlutabréfum í A hf. til A o.fl. Héraðsdómari vísaði málinu frá vegna annmarka á málatilbúnaði J. Hæstiréttur taldi J, sem átti 11,27% alls hlutafjár í L hf., ekki skorta lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr kröfum sínum að efni til. Af hálfu L hf. o.fl. var því haldið fram að í héraðsdómsstefnu hefðu ekki verið færðar fram sérstakar skýringar á aðild J að málinu. Í dómi Hæstaréttar segir að þess sé að gæta að takist J ekki gegn andmælum L hf. o.fl. að vísa til viðhlítandi stoðar í réttarheimildum fyrir aðild sinni að málinu valdi það sýknu hinna síðastnefndu, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Séu ekki efni til að vísa málinu frá dómi af þeim sökum. Vísun L hf. o.fl. til 4. mgr. 114. gr. sömu laga geti heldur ekki leitt til þeirrar niðurstöðu, en undantekningarákvæði 2. málsliðar greinarinnar teljist eiga hér við svo fremi J takist að sýna fram á að hann eigi aðild að máli um sakarefnið.

Hæstiréttur birt 9. desember 1999

272/1999

Nathan & Olsen hf (Jónas A. Aðalsteinsson hrl) gegn PricewaterhouseCoopers ehf og Gunnari Sigurðssyni (Gestur Jónsson hrl)

Á árunum 1992 til 1996 dró gjaldkeri hlutafélagsins N sér fé úr sjóðum félagsins að fjárhæð rúmlega 32 milljónir króna. Gjaldkerinn faldi fjárdráttinn með færslum í bókhaldi án gildra fylgiskjala, og voru afstemmingar þær, sem hann lagði fram, falsaðar að nokkru leyti. N krafði löggilta endurskoðandann G og einkahlutafélagið P um bætur vegna þess tjóns sem N hafði orðið fyrir af þessum sökum, en N hafði keypt endurskoðunar- og sérfræðiþjónustu frá P um árabil og hafði G verið kjörinn endurskoðandi félagsins samkvæmt lögum nr. 32/1978 um hlutafélög og síðar samkvæmt lögum nr. 144/1994 um ársreikninga. Allt til ársins 1991 höfðu G og P annast gerð milliuppgjöra, auk endurskoðunar ársreiknings, en frá þeim tíma tók fjármálastjóri N við því verki. G og P höfðu áritað ársreikninga N athugasemdalaust, þótt þeir hefðu ekki fengið afstemmingar allra bókhaldsreikninga og án þess að kanna stoðgögn og fylgiskjöl óafstemmdra reikninga. Höfðu þeir aldrei tilkynnt stjórn N um þessi vanskil á afstemmingu reikninga, en rætt það óformlega á fundi með framkvæmdastjóra og fjármálastjóra félagsins. Talið var að rík skylda hefði hvílt á stjórnendum N að hafa umsjón og eftirlit með bókhaldi félagsins, sbr. 3. mgr. 52. gr. laga nr. 32/1978. Hefði sú skylda verið sérstaklega brýn þar sem sami maður gegndi bæði bókhalds- og gjaldkerastörfum, enda hefði sú skipan falið í sér augljósan veikleika gagnvart innra eftirliti. Hins vegar hefði G áritað ársreikninga N án athugasemda fjögur ár í röð þótt allar afstemmingar lægju ekki fyrir við lokafrágang þeirra. Hefði bæði endurskoðendum og fjármálastjóra og framkvæmdastjóra félagsins verið ljóst, að innra eftirlit var ekki framkvæmt sem skyldi og afstemmingar reikninga lágu ekki fyrir, ýmist við gerð milliuppgjöra eða ársreiknings, og hafði það gerst ítrekað. G og P hefði borið, sem endurskoðendum N, að sjá um, að afstemmingar allra bókhaldsreikninga lægju fyrir, áður en þeir luku endurskoðun ársreikningsins, og hefðu þeir átt að vekja athygli stjórnar N skriflega á umræddum annmörkum. Bentu atvik málsins til þess, að á hefði skort, að skyldu þeirra til að sannreyna eignastöðu félagsins hefði verið nægilega gætt. Voru G og P því að hluta til taldir eiga sök á því, að ekki komst upp um fjárdráttinn fyrr en um mitt ár 1996 og bæru þeir nokkra ábyrgð á því gagnvart N, að tjónið varð meira en þurft hefði að vera, hefðu þeir staðið öðruvísi að verki. Voru G og P dæmdir sameiginlega til að greiða N bætur sem ákveðnar voru að álitum.