Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 153/2009 — Lög um samruna opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar

Landsréttur birt 24. mars 2023

686/2021

Drífa ehf (Andri Árnason lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

D ehf. höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu I ohf. vegna hagnaðarmissis sem leiddi af ákvörðun I ohf. um að semja ekki við D ehf. um verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar útboðs sem D ehf. tók þátt í árið 2014. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á með D ehf. að I ohf. hefði borið að fylgja stjórnsýslulögum eða öðrum almennum reglum stjórnsýsluréttar við forvalið og útleigu verslunarrýmis í flugstöðinni. Þá var hvorki fallist á að þágildandi lög nr. 84/2007 um opinber innkaup né lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða hefðu gilt um útboð I ohf. Jafnframt væri ósannað að I ohf. eða nefndarmenn í matsnefnd um útboðið hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi við mat og meðferð á tilboði D ehf. Yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að vandað hefði verið til forvalsins, forsendur þess hefðu legið ljósar fyrir í útboðsgögnum, jafnræðis verið gætt og að lögmæt og málefnaleg sjónarmið hafi ráðið för við mat á tilboði D ehf. Við það mat yrði einnig að hafa í huga tilgang I ohf., sem væri að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugstöðvarinnar, og að I væri sem rekstraraðila hennar heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná þeim tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Yrði því að játa I ohf. ákveðið svigrúm við mat á því hvaða tilboð og viðskiptahugmyndir féllu best að tilgangi félagsins þannig að markmiðum þess um þjónustu við farþega og hagnað fyrir rekstur flugstöðvarinnar yrði sem best náð. Skilyrði almennu skaðabótareglunnar um saknæma og ólögmæta háttsemi væru því ekki uppfyllt í málinu og var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna I ohf. af kröfum D ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. október 2021

E-4962/2014

Drífa ehf (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Sýknað af kröfu um viðurkenningu bótaábyrgðar vegna forvals vegna verslunarreksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Landsréttur birt 13. nóvember 2020

274/2019

Drífa ehf (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

D ehf. krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaábyrgð I ohf. vegna tjóns sem D ehf. taldi sig hafa orðið fyrir vegna hagnaðarmissis sem leiddi af ákvörðun I ohf. um að semja ekki við D ehf. um verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar útboðsins ,,Commercial Opportunities at Keflavik Airport“. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að í málinu reyndi meðal annars á það álitaefni hvort matsnefnd hefði með málefnalegum hætti komist að þeirri niðurstöðu að tilboð D ehf. hefði verið óraunhæft. Svo að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort fjárhagsáætlanir D ehf. hefðu verið raunhæfar miðað við tæknilega hluta forvalsins og forsendur sem að öðru leyti voru gefnar upp í forvalsgögnum þyrfti sérfræðiþekkingu á sviði smásöluverslunar og gerð fjárhagsáætlana. Landsréttur taldi að héraðsdómara hefði verið rétt að kveðja til meðdómsmann með sérkunnáttu til að fjalla um þessi atriði. Var héraðsdómur því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 18. júní 2015

822/2014

Árni Svavar Arnarson (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Isavia ohf (Andri Árnason hrl)

Á, sem I ohf. hafði vísað úr starfsþjálfun til flugumferðarstjóra, höfðaði mál á hendur I ohf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns af völdum brottrekstursins og miskabóta vegna þess hvernig staðið hefði verið að honum. Talið var að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 giltu um töku ákvarðana I ohf. um rétt eða skyldu manna innan hlutaðeigandi verksviðs. Þá var talið að Á hefði ekki staðist þær prófkröfur sem gerðar voru til árangurs í verklegum æfingum á námstímanum samkvæmt þeirri þjálfunaráætlun sem um nám hans gilti og að það úrræði að vísa Á úr námi af þeirri ástæðu hefði átt sér stoð í lögum. Í ljósi þeirra skilmála er giltu um námið og ástæðna sem lágu til grundvallar námslokum Á voru ekki talin skilyrði til að dæma honum bætur fyrir fjártjón. Á hinn bóginn var lagt til grundvallar að vegna þess hvernig staðið hefði verið að brottvísun Á úr náminu hefði hann orðið fyrir miska sem veitti honum rétt til bóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og voru þær ákveðnar 600.000 krónur.