Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 478/2014 var M sakfelldur fyrir umboðssvik í starfsemi G hf., sbr. 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 2 ár. Með úrskurði endurupptökunefndar í október 2020 var fallist á beiðni M um endurupptöku málsins. Vísaði nefndin til þess að einn dómara fyrrgreinds hæstaréttarmáls hefði gert samning í janúar 2007 við G hf. um eignastýringu og að hann hefði tapað verulegum fjármunum í þeim viðskiptum. Dómarinn hefði verið vanhæfur til að dæma í málinu og af þeirri ástæðu hefðu verið gallar á meðferð málsins fyrir Hæstarétti í skilningi d-liðar 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008. Því væri samkvæmt 1. mgr. 232. gr. laganna fullnægt skilyrðum fyrir endurupptöku málsins og var sú krafa tekin til greina. Í dómi Hæstaréttar var rakið að lækkun á andvirði þeirra fjármuna sem dómarinn hafði í eignastýringu hefði numið 14,78% við fall bankans. Þessi lækkun yrði ekki talin veruleg þegar horft væri til þeirra efnahagsáhrifa sem þorri almennings hefði þurft að þola á þessum tíma með lækkun eignaverðs, rýrnun lífeyrisréttinda, hækkun verðlags vegna gengishruns og hækkun skulda vegna verðlagsbreytinga meðal annars vegna tengingar lána við vísitölu neysluverðs. Þá vísaði rétturinn til þess að í dómum Hæstaréttar í málum nr. 34/2019 og 35/2019, þar sem fallist var á að skilyrðum endurupptöku hefði verið fullnægt, hefði verið beint samhengi milli sakargifta og þeirra fjárhagslegu hagsmuna dómara sem fóru forgörðum en því væri ekki fyrir að fara í þessu máli. Enn fremur hefði dómari í því máli orðið fyrir tjóni þegar hlutabréf hans í bankanum urðu með öllu verðlaus en í þessu tilviki væri um að ræða lækkun á mun hærri höfuðstól á afmörkuðu tímabili þegar eignaverð náði lágmarki sem viðbúið var að gengi til baka þegar jafnvægi væri náð eftir að kreppa gekk yfir í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ekki yrði talið að dómarinn hefði á grundvelli g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 verið vanhæfur til að fara með málið. Af þeirri ástæðu væri ekki fullnægt lagaskilyrðum fyrir endurupptöku málsins. Aðalkrafa ákæruvaldsins um frávísun málsins frá Hæstarétti var því tekin til greina.
J var einn 33 umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla mat hæfasta til starfans. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15, sem skipa skyldi dómara við Landsrétt, vék ráðherrann frá niðurstöðum dómnefndar varðandi fjóra umsækjendur, sem nefndin hafði metið hæfasta, og var J einn þeirra. Alþingi samþykkti tillögu ráðherra og höfðaði J í kjölfarið mál á hendur Í og krafðist skaða- og miskabóta. Hæstiréttur taldi að þegar metið væri hvort háttsemi dómsmálaráðherra í aðdraganda skipunar landsréttardómaranna 15 hafi verið ólögmæt og saknæm bæri fyrst til þess að líta til þess að Hæstiréttur hefði áður slegið því föstu að þeir annmarkar hafi verið á málsmeðferð ráðherrans í aðdraganda skipunar dómaranna, að skaðabótaskyldu varðaði úr hendi Í. Ekkert hafi komið fram í málinu sem fengi þeirri ályktun hnekkt. Í annan stað væri þess að gæta að eftir að dómsráðherra hafði ákveðið í tillögu sinni til Alþingis að víkja frá áliti dómnefndarinnar á grundvelli annarra sjónarmiða en þeirri sem nefndin hafði áður reist álit sitt á hafi ráðherranum borið samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga að gefa J kost á að koma á framfæri athugasemdum, áður en ráðherrann réð ákvörðun sinni til lykta. Það hafi ráðherrann ekki gert og hafi því einnig verið brotið gegn andmælarétti J við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar sagði að það væri óskráð meginregla íslensks réttar að stjórnvaldi sem skipar í opinbert starf eða embætti beri hverju sinni að velja hæfasta umsækjandann og væri reglan lögfest hvað dómara varðaði. Ef ætlun löggjafans við setningu bráðabirgðaákvæðis IV við lög um dómstóla hefði verið að víkja frá framangreindri meginreglu við skipun dómara í Landsrétt hefði slíkt þurft að koma fram með ótvíræðum hætti í orðum laganna eða lögskýringargögnum. Svo væri ekki og var því hafnað málsástæðu Í sem laut að hinu öndverða. Hæstiréttur taldi að J hafi leitt að því nægar líkur að forsvaranlegt mat ráðherra á umsókn hans og samanburður á hæfni hans og annarra umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt hefði leitt til þess að hann hefði verið skipaður dómari umrætt sinn. Taldi Hæstiréttur að J ætti rétt á skaðabótum vegna fjártjóns sem næmu mismun á launum hans sem héraðsdómara og síðar dómstjóra og launum sem hann hefði haft sem landsréttardómari en vegna óvissu er varðaði lífeyrisréttindi hans voru bætur fyrir þau metnar að álitum. Þá var Í gert að greiða J miskabætur.
J var einn 33 umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt sem auglýst voru laus til umsóknar 10. febrúar 2017 og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla mat hæfasta til að gegna slíku embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15 umsækjendur sem skipa skyldi dómara vék ráðherra frá niðurstöðum nefndarinnar varðandi fjóra umsækjendur og var J einn þeirra sem ekki var lagt til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og höfðaði J í kjölfarið mál þetta á hendur Í og krafðist skaðabóta fyrir fjártjón og miska. Í dómi Landsréttar var rakið að samkvæmt 2. mgr. ákvæðis IV til bráðabirgða í lögum nr. 50/2016 um dómstóla hefði dómsmálaráðherra við skipun dómara í Landsrétt í fyrsta sinn þurft samþykki Alþingis fyrir tillögu sinni. Í 3. málslið 1. mgr. þess ákvæðis kæmi fram að óheimilt væri að skipa í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefði ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Samkvæmt 4. málslið sömu málsgreinar mætti þó víkja frá þessu ef Alþingi samþykkti tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægði að mati dómnefndar öllum skilyrðum 2. og 3. mgr. 21. gr. sömu laga. Landsréttur vísaði til þess að sönnunarbyrði um hvort skilyrðum almennu skaðabótareglunnar um orsakasamband og sennilega afleiðingu væri fullnægt hvíldi á J. Hann þyrfti því að sýna fram á að honum hafi borið skipun í embætti umfram aðra umsækjendur sem uppfylltu almenn hæfisskilyrði laganna. J hefði ekki getað gengið að því sem vísu að hann yrði skipaður landsréttardómari, þegar af þeirri ástæðu að ráðherra hefði samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu verið heimilt að fengnu samþykki Alþingis að skipa annan eða aðra umsækjendur dómara við Landsrétt en þá sem dómnefnd hafði metið hæfasta, að því tilskildu að þeir uppfylltu almenn hæfisskilyrði laganna. Því yrði ekki fallist á að J hefði þrátt fyrir niðurstöðu dómnefndarinnar átt lögvarinn rétt til að vera skipaður dómari við Landsrétt. Var Í því sýknað af kröfu hans um bætur fyrir fjártjón. Á hinn bóginn var á það fallist með J að ákvörðun dómsmálaráðherra hefði falið í sér verulega meingerð gegn æru hans og persónu eins og hún hefði verið rökstudd af hálfu ráðherrans. Þannig var fallist á niðurstöðu héraðsdóms um fjárhæð miskabóta, auk dráttarvaxta á þær bætur.
J var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15 umsækjendur sem skipa skyldi dómara vék ráðherra frá niðurstöðum nefndarinnar varðandi fjóra umsækjendur og var J ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og höfðaði J í kjölfarið mál þetta á hendur Í og krafðist í fyrsta lagi ógildingar á ákvörðunum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og í þriðja lagi miskabóta. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 452/2017 var úrskurður héraðsdóms um að vísa viðurkenningarkröfu J frá dómi felldur úr gildi, en niðurstaða hans um frávísun á ógildingarkröfunni staðfest. Var því einungis deilt um viðurkenningu á bótaskyldu Í og rétt J til miskabóta. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að það væri óskráð meginregla að stjórnvaldi sem skipar í opinbert starf eða embætti beri hverju sinni að velja hæfasta umsækjandann. Áður hefði sú skylda hvílt á ráðherra dómsmála að sjá til þess að þau atriði sem máli skiptu við það mat væru nægjanlega upplýst. Við gildistöku reglna um dómnefndir til að meta hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefði þeirri rannsóknarskyldu hins vegar að verulegu leyti verið létt af ráðherra og þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar. Samkvæmt því hefði verið lagt til grundvallar í dómaframkvæmd að ef dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um að vikið yrði frá áliti dómnefndar, væri óhjákvæmilegt að sú ákvörðun væri reist á frekari rannsókn ráðherrans eftir 10. gr. stjórnsýslulaga. Að þessu gættu taldi Hæstiréttur ljóst að dómsmálaráðherra hefði að lágmarki borið að gera samanburð á hæfni annars vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem dómnefndin hafði metið meðal 15 hæfustu en ráðherra ekki gert tillögu um og hins vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem ráðherra gerði tillögu um í þeirra stað. Gögn málsins bæru á hinn bóginn ekki með sér að slík rannsókn hefði farið fram af hálfu ráðherra. Samkvæmt því hefði málsmeðferð hans verið andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga og af því leiddi að það sama ætti við um meðferð Alþingis á tillögu ráðherra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim annmörkum sem málsmeðferð ráðherra var haldin. Með því að J hafði ekki lagt fram fullnægjandi gögn til sönnunar á því að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa var viðurkenningarkröfu hans hafnað, en hins vegar var talið að fullnægt væri skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga til að dæma J miskabætur úr hendi Í og voru þær ákveðnar 700.000 krónur.
Á var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15 umsækjendur sem skipa skyldi dómara vék ráðherra frá niðurstöðum nefndarinnar varðandi fjóra umsækjendur og var Á ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og höfðaði Á í kjölfarið mál þetta á hendur Í og krafðist í fyrsta lagi ógildingar á ákvörðunum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og í þriðja lagi miskabóta. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 451/2017 var úrskurður héraðsdóms um að vísa viðurkenningarkröfu Á frá dómi felldur úr gildi, en niðurstaða hans um frávísun á ógildingarkröfunni staðfest. Var því einungis deilt um viðurkenningu á bótaskyldu Í og rétt Á til miskabóta. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að það væri óskráð meginregla að stjórnvaldi sem skipar í opinbert starf eða embætti beri hverju sinni að velja hæfasta umsækjandann. Áður hefði sú skylda hvílt á ráðherra dómsmála að sjá til þess að þau atriði sem máli skiptu við það mat væru nægjanlega upplýst. Við gildistöku reglna um dómnefndir til að meta hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefði þeirri rannsóknarskyldu hins vegar að verulegu leyti verið létt af ráðherra og þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar. Samkvæmt því hefði verið lagt til grundvallar í dómaframkvæmd að ef dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um að vikið yrði frá áliti dómnefndar, væri óhjákvæmilegt að sú ákvörðun væri reist á frekari rannsókn ráðherrans eftir 10. gr. stjórnsýslulaga. Að þessu gættu taldi Hæstiréttur ljóst að dómsmálaráðherra hefði að lágmarki borið að gera samanburð á hæfni annars vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem dómnefndin hafði metið meðal 15 hæfustu en ráðherra ekki gert tillögu um og hins vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem ráðherra gerði tillögu um í þeirra stað. Gögn málsins bæru á hinn bóginn ekki með sér að slík rannsókn hefði farið fram af hálfu ráðherra. Samkvæmt því hefði málsmeðferð hans verið andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga og af því leiddi að það sama ætti við um meðferð Alþingis á tillögu ráðherra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim annmörkum sem málsmeðferð ráðherra var haldin. Með því að Á hafði ekki lagt fram fullnægjandi gögn til sönnunar á því að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa var viðurkenningarkröfu hans hafnað, en hins vegar var talið að fullnægt væri skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga til að dæma Á miskabætur úr hendi Í og voru þær ákveðnar 700.000 krónur.
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda um viðurkenningu skaðabótaskyldu og greiðslu miskabóta vegna skipunar í embætti dómara við Landsrétt. Fallist var á að bæði umsögn dómnefndar og meðferð dómsmálaráðherra hefðu verið haldin efnislegum annmörkum. Dómurinn taldi hins vegar að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að lögmæt meðferð málsins og forsvaranlegt mat á umsóknum og samanburður á hæfni hans og annarra umsækjenda hefði leitt til þess að hann yrði skipaður dómari við Landsrétt. Þá var stefnandi heldur ekki talinn hafa sýnt fram á að þau sjónarmið sem ráðherra lýsti við meðferð málsins hafi vegið að orðspori hans eða orðið honum að meini þannig að skilyrði til greiðslu miskabóta væru uppfyllt.
Kröfu stefnanda um að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimild Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits yrði dæmd ólögmæt vísað frá dómi. Ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram á einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfunnar, eins og hún væri fram sett.