Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 128/2011 — Lög um verðbréfasjóði

Hæstiréttur birt 12. janúar 2017

826/2016

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Autonomy Capital LP, Autonomy Master Fund Limited, GAM Trading og Autonomy Iceland Two S.á.r.l (Pétur Örn Sverrisson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var að hluta til greina krafa A. o.fl um dómkvaðningu matsmanna til að svara átta spurningum án þess að mál hefði verið höfðað gegn Í. Var hinn kærði úrskurður staðfestur að öðru leyti en því að hafnað var að leggja þrjár matsspurninganna fyrir hina dómkvöddu matsmenn þar sem þær væru einvörðungu að leita mats á atriðum sem bersýnilega væru tilgangslaus til sönnunar, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eða hefðu ekki tengsl við atvik að baki væntanlegum kröfum A o.fl. á hendur Í, sbr. 1. mgr. 77. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 16. janúar 2014

413/2013

Stefnir hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl) gegn LBI hf (Jóhannes Sigurðsson hrl)

L hf. (áður LÍ hf.) krafðist þess að staðfest yrði með dómi riftun á greiðslu LÍ hf. á peningamarkaðsinnláni til S hf. þann 9. október 2008 sem og að S hf. yrði gert að endurgreiða fjárhæðina sem greidd var. Greiðslan fór fram eftir að Fjármálaeftirlitið hafði sett skilanefnd yfir L hf. Byggði L hf. kröfu sína á 1. mgr. 134. gr. og 141. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 103. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í niðurstöðu Hæstaréttar var rakið að í dómum Hæstaréttar í málum nr. 441/2011 og 112/2012 hefði því verið slegið föstu að á tímabilinu 7. október 2008 til 22. apríl 2009 hefði L hf. verið settur í aðstöðu, sem jafna mætti til þess að hafin væru gjaldþrotaskipti á búi hans að því er varðarði þau atvik sem málin tóku til. Taldi Hæstiréttur einnig að leggja yrði stöðu skilanefndar, að því er varðaði þá ráðstöfun sem deilt var um í málinu, að jöfnu við ráðstöfun skiptastjóra í þrotabúi. Yrði riftunarreglum XX. kafla laga nr. 21/1991 ekki beitt til að hnekkja ráðstöfunum skiptastjóra, sem gerðar hefðu verið eftir upphaf gjaldþrotaskipta, en um heimildir hans færi samkvæmt 1. mgr. 122. gr. laganna. Að sama skapi yrði þeim reglum ekki beitt til að hnekkja ráðstöfunum, sem hefðu verið gerðar af eða á ábyrgð skilanefndar sem skipuð var yfir L hf. 7. október 2008. Breytti engu þar um þótt ráðstöfun sú, sem riftunar var krafist á, hefði verið gerð fyrir lögákveðinn frestdag við slitameðferð bankans. Þegar af þessari ástæðu var S hf. sýknaður af kröfu L hf.

Hæstiréttur birt 16. janúar 2014

412/2013

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2013

X-572/2012

Íslandsbanki hf (Jóna Björk Helgadóttir hdl) gegn SPB hf (Berglind Svavarsdóttir hrl)

Fallist var á kröfu Í að hlutdeild hans í tilteknum sjóði væru eignarréttindi sem hann ætti rétt á að fá afhent úr slitabúi S með vísan til 1. mgr. 109. gr. laga nr. 21/1991, en hafnað sjónarmiðum S að um væri að ræða kröfuréttindi.