Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 8. gr. laga nr. 120/1992 — Lög um Kjaradóm og kjaranefnd

Hæstiréttur birt 1. mars 2018

185/2017

Guðbrandur E. Þorkelsson (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Á árinu 2015 var starf G sem yfirlæknir á heilsugæslustöð lagt niður. Ágreiningslaust var að G ætti rétt til biðlauna í tólf mánuði samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og að þau ættu samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laganna að samsvara óbreyttum launakjörum meðan hann starfaði sem yfirlæknir. Á hinn bóginn deildu aðilar um hvaða launaliðir féllu undir óbreytt launakjör í skilningi ákvæðisins. Í fyrsta lagi hélt G því fram að réttur hans til biðlauna næði til greiðslna vegna gæsluvakta. Mælt var fyrir um fyrirkomulag slíkra greiðslna í kjarasamningi. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að skipan gæsluvakta G hefði verið breytt á því tímabili sem krafa hans tók til ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Hefðu greiðslur vegna gæsluvakta ekki verið háðar vinnuframlagi og yrðu því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu slíkar greiðslur verið taldar falla undir biðlaun. Var sá kröfuliður því tekinn til greina. Í öðru lagi krafðist G greiðslna fyrir unnin verk á gæsluvöktum en greitt var fyrir þau samkvæmt gjaldskrá. Talið var að þótt fjárhæð greiðslna fyrir slík verk hefðu hverju sinni ráðist af fjölda sjúklinga og fjölda læknisverka yrði á grundvelli þess fyrirkomulags sem gilti um greiðslur fyrir verkin að leggja það að jöfnu við samning um fastar yfirvinnugreiðslur sem féllu undir biðlaun. Hefði Í ekki fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður G því tekinn til greina. Í þriðja lagi deildu aðilar um hvort launaliðurinn vottorðagreiðslur á launaseðli G ætti að teljast til biðlauna. Talið var að fjárhæð greiðslna til heilsugæslulækna fyrir ritun læknisvottorða réðust af fjölda vottorða og umfangi þeirra hverju sinni og gæti fjárhæðin þannig verið mismunandi frá einum tíma til annars. Hins vegar yrði ekki fram hjá því litið að ritun læknisvottorða væri hluti af aðalstarfi heilsugæslulækna og þannig órjúfanlegur þáttur starfsskyldna þeirra sem greitt væri sérstaklega fyrir eftir nánar tilgreindu fyrirkomulagi. Það fyrirkomulag yrði að leggja að jöfnu við samning um föst viðbótarlaun sem hefðu í dómaframkvæmd Hæstaréttar verið talin falla undir biðlaun. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður því einnig tekinn til greina. Var Í því gert að greiða G umkrafða fjárhæð.

Hæstiréttur birt 26. maí 2005

501/2004

Laun Stjórnsýsla Aðild Kjaramál Launatengd gjöld Fimmtudaginn 26 Fimmtudaginn 26 (Atli Gíslason hrl) gegn íslenska ríkinu og Háskóla Íslands (Skarphéðinn Þórisson hrl, Kristín Edwald hdl, Hörður Felix Harðarson hrl, Gísli Guðni Hall hdl)

J starfaði sem prófessor við H og voru launakjör hans ákvörðuð af kjaranefnd. Auk fastra launa átti J þess kost að sækja um úthlutun úr ritlauna- og rannsóknasjóði prófessora, en sjóðurinn naut framlaga frá ríkissjóði sem nam tilteknu hlutfalli af föstum launum prófessora við H. Fallist var á með J að óheimilt hafi verið að draga tiltekin launatengd gjöld frá þeirri fjárhæð sem hann hafði fengið úthlutað úr sjóðnum.

Hæstiréttur birt 9. maí 2005

170/2005

Læknafélag Íslands (Gunnar Ármannsson hdl) gegn íslenska ríkinu vegna, Heilbrigðisstofnunar og Suðurlands (Óskar Thorarensen hrl)

L krafðist þess fyrir Félagsdómi að viðurkennt yrði að félagsmenn hans, sem störfuðu við heilsugæslustöðvar og tækju laun samkvæmt tilgreindum úrskurði kjaranefndar, hefðu sjálfir val um hvort þeir tækju föst mánaðarlaun eða samsett laun. Var ágreiningur milli málsaðila um skilning á umræddum úrskurði nefndarinnar. Fyrir lá að heilsugæslulæknar féllu utan laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og voru seldir undir úrskurðarvald kjaranefndar að lögum með laun sín og starfskjör, þegar sú ákvörðun var tekin sem deilt var um í málinu. Var talið, að samkvæmt því félli það utan valdsviðs Félagsdóms, eins og það væri afmarkað samkvæmt lögum 94/1986, að dæma um þann ágreining sem uppi var í málinu. Var því staðfest frávísun málsins frá Félagsdómi.

Hæstiréttur birt 11. mars 2004

365/2003

Laun Stjórnsýsla Aðild Kjaramál Launatengd gjöld Ómerking Heimvísun Fimmtudaginn 11 Fimmtudaginn 11 (Atli Gíslason hrl, Guðmundur Birgir Ólafsson hdl) gegn íslenska ríkinu og Háskóla Íslands (Skarphéðinn Þórisson hrl, Jón R. Pálsson hdl, Hörður Felix Harðarson hrl)

Í héraðsdómi var meginmálsástæðu J hafnað og Í sýknað af kröfu hans en H var sýknaður vegna aðildarskorts. Talið var að á skorti að héraðsdómari hefði tekið rökstudda afstöðu til annarra málsástæðna, sem J byggði kröfur sínar á og ekki var heldur tekin afstaða til varakröfu hans. Var dómurinn því haldinn þeim annmörkum að óhjákvæmilegt var talið að ómerkja hann og vísa málinu heim í hérað til munnlegs flutnings og dómsálagningar að nýju.

Hæstiréttur birt 17. október 2002

294/2002

Félag prófessora í Háskóla Íslands (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)

F krafðist að viðurkennt yrði að þeir prófessorar við Háskóla Íslands sem heyrðu undir ákvörðun kjaranefndar og greiddu eða hefðu greitt lífeyrisiðgjöld til starfsloka til B-deildar L samkvæmt lögum nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins ættu frá starfslokadegi rétt á lífeyri sem tæki mið af heildarmánaðarlaunum þeirra fyrir dagvinnu, þ.e. dagvinnu að viðbættum einingum fyrir fasta yfirvinnu samkvæmt skilgreiningu kjaranefndar í úrskurði hennar 2. júlí 1998, enda greiddu prófessorarnir frá 1. janúar 1998 til starfsloka 4% lífeyrisiðgjald til viðbótar af greiðslum fyrir þessa föstu yfirvinnu sem ekki hefði verið dregið af launum þeirra. Í héraðsdómi var tekið fram að ekki hefði verið hnekkt því mati kjaranefndar að hluti af vinnu prófessora yrði ekki látinn í té á hinum daglega vinnutíma en væri þó þáttur í venjubundnu starfi þeirra. Var talið að þó svo að kjaranefnd hefði talið að starfinu fylgdi yfirvinna sem rétt væri að launa og greiða fyrir alla mánuði ársins án þess að sýnt væri fram á að vinna þessi væri unnin utan hins venjulega vinnutíma eða jafnvel innt af hendi á dagvinnutíma væri ekki þar með verið að launa fyrir dagvinnu. Var því ekki fallist á að greiðslur fyrir fasta yfirvinnu hefðu verið þess eðlis að skylt væri að líta á þær sem hluta af launum fyrir dagvinnu er veitti rétt til eftirlauna á grundvelli laga nr. 1/1997. Með vísan til forsendna héraðsdóms og þess að F væri réttur aðili að málinu var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 26. september 2002

310/2002

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Háskóla Íslands (Hörður Felix Harðarson hrl)

H og prófessorar við viðskipta- og hagfræðideild skólans kröfðust þess að tveir úrskurðir kjaranefndar frá maí 2001 og febrúar 2002 um aukastörf prófessora við MBA nám á vegum deildarinnar yrðu felldir úr gildi. Í málinu lá fyrir að kjaranefnd teldi að hún hefði komið til móts við sjónarmið H og prófessoranna í úrskurði sínum frá desember 2001 þar sem ákvæði um yfirvinnuþak hefði verið rýmkað verulega. Með vísan til 2. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 11. gr. laga nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd var talið ótvírætt að kjaranefnd bæri að meta hvort kennslustörf prófessora við viðskipta- og hagfræðideildar H við MBA nám teldust hluti aðalstarfs þeirra eða hvort þau væru þess eðlis að launa bæri þau sérstaklega. Í málinu yrði hins vegar ekki framhjá því litið að löggjafinn hefði ákveðið H verulegt sjálfstæði eins og fram kæmi í lögum nr. 41/1999 um Háskóla Íslands. Þannig hefði stjórn skólans víðtækar heimildir varðandi skipulag og framkvæmd endurmenntunarnáms innan hans og hefði löggjafinn m.a. gengið út frá því að fjárhagsgrundvöllur þess yrði annar en gilti um hið almenna nám innan skólans. Var talið að fram væru komin gild rök fyrir því að kennslustörf prófessora við umrætt MBA nám væri viðbót við regluleg störf þeirra hjá viðskipta- og hagfræðideild. Að öllu virtu þótti sú ákvörðun H að þessi störf prófessoranna skyldu falla utan marka aðalstarfs þeirra sem og aðrar ákvarðanir varðandi framkvæmd námsins eiga sér stoð í lögum nr. 41/1999. Var fallist á að ekki hefði verið tekið tillit til þessa í úrskurðum kjaranefndar og samkvæmt því og að öðru leyti með skírskotun til forsendna héraðsdóms var niðurstaða hans um að fella úrskurðina úr gildi staðfest.