Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 19. gr. laga nr. 111/2000 — Lög um sjúklingatryggingu

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2026 kl. 16:53

E-5109/2025

A (Arnar Gauti Grettisson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Gunnlaugur Úlfsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnandi höfðaði mál á hendur stefnda, Sjúkratryggingum Íslands, til viðurkenningar á bótaskyldu fyrir tjón sem hún hlaut við læknismeðferð í útlöndum. Talið var að ætluð krafa hennar á hendur stefnda hefði verið fallin niður fyrir fyrningu þegar hún höfðaði málið.

Hæstiréttur birt 18. maí 2026 kl. 15:09

48/2025

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður)

A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum nýrnabilunar á lokastigi sem hann rakti til lyfjameðferðar. Byggði hann á því að það væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með lyfinu og þar með bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að krafa A væri fyrnd og að tjón hans væri að rekja til eiginleika lyfsins og því ekki bótaskylt, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest að bótakrafa A væri ekki fallin niður fyrir fyrningu. Að teknu tilliti til málatilbúnaðar aðila og niðurstöðu matsgerðar voru ekki talin efni til annars en að leysa úr málinu á þeim grundvelli einvörðungu að áfrýjandi hefði notað lyfið í venjulegum skömmtum. Hæstiréttur vísaði til þess að hvorki í lögum nr. 111/2000 né lögskýringargögnum með þeim væri að finna skilgreiningu eða skýringar á því hvað fælist í hugtakinu eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laganna. Hæstiréttur bar saman notkun og skilgreiningu hugtakanna eiginleikar lyfs og aukaverkun í eldri lyfjalögum nr. 93/1994 og núgildandi lyfjalögum nr. 100/2020 svo og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Í öllum reglugerðum væri hugtakið aukaverkun skilgreint sem skaðleg og ótilætluð verkun lyfs sem notað væri í venjulegum skömmtum. Hins vegar væri hugtakið óvænt aukaverkun í öllum reglugerðunum skilgreint sem aukaverkun sem ekki er getið um í samantekt um eiginleika lyfs. Hæstiréttur sló því föstu að hugtakið eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 bæri að skýra með þeim hætti að þar væri átt við þá eiginleika sem fram kæmu í viðurkenndri samantekt um eiginleika lyfsins sem birt væri í sérlyfjaskrá og á fylgiseðli þess. Nýrnabilunar væri aðeins getið sem aukaverkunar vegna ofskömmtunar í lýsingu á eiginleikum lyfsins í sérlyfjaskrá og teldist lokastig nýrnabilunar vegna eðlis, alvarleika og afleiðinga vera óvænt aukaverkun sem ekki félli undir eiginleika lyfsins í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000. Var tjón A talið meira en svo að sanngjarnt væri að hann þyrfti að þola það bótalaust í skilningi 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 og voru skilyrði ákvæðisins fyrir greiðslu bóta úr sjúklingatryggingu talin uppfyllt. Var úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 því felldur úr gildi og S gert að greiða A bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2025

E-384/2025

A (Lárus Sigurður Lárusson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands og íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Stefnandi krafðist aðallega að viðurkennd yrði bótaskylda Sjúkratrygginga Íslands úr sjúklingatryggingu og til vara að íslenska ríkið bæri bótaábyrgð á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttarins vegna vanrækslu við meðferð og greiningu á HIV smiti stefnanda. Stefndu voru sýknaðir, Sjúkratryggingar Íslands þar sem krafa á hendur honum væri fyrnd og íslenska ríkið þar sem ekki væri sannað að starfsmenn viðkomandi heilbrigðisstofnana hafi sýnt af sér saknæma háttsemi sem hafi valdið stefnanda tjóni.

Landsréttur birt 5. júní 2025

528/2023

Sjúkratryggingar Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður) gegn A (Björgvin Þórðarson lögmaður)

A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum 12.104.500 krónur í skaðabætur vegna tjóns sem hann rakti til lyfjameðferðar sem hann gekkst undir. Byggði A á því að tjón sitt væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með tilgreindu lyfi og að ekki væri unnt að rekja svo sjaldgæfan fylgikvilla til eiginleika lyfsins heldur væri um að ræða einstaklingsbundna svörun hans við lyfinu og tjón hans því bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 11/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að tjón A mætti rekja til eiginleika lyfsins og því ekki til staðar bótaskylda þar sem 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 kveður á um að bætur greiðist ekki samkvæmt lögunum ef rekja má tjón til eignleika lyfs. Í dómi Landsréttar var rakið að í matsgerð dómkvaddra matsmanna kæmi fram að tjón A væri að rekja til langvarandi notkunar á umræddu lyfi og að ekkert kæmi fram í málatilbúnaði A eða í hinum áfrýjaða dóm um hvað fælist í einstaklingsbundinni svörun A við lyfinu. Var því lagt til grundvallar að nýrnabilun sú, sem A þjáðist af, væri að rekja til langvarandi notkunar umrædds lyfs og um væri að ræða sjaldgæfa en þekkta aukaverkun lyfsins sem teldist til eiginleika þess. Þar sem ekki þótti tækt að túlka 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 með þeim hætti að hún næði ekki til sjaldgæfra og alvarlegra aukaverkanna lyfja var bótaskyldu hafnað og S sýknað af kröfum A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. maí 2024

E-4055/2023

A (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)

Fallist var á það með einstaklingi að læknismeðferð hans hefði ekki verið hagað sem skyldi þegar hann undirgekkst aðgerð á Landspítalanum 29. ágúst 2013. Var skaðabótaskylda íslenska ríkisins viðurkennd vegna tjóns sem stefnandi var talinn hafa orðið fyrir af þessum sökum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. september 2021

E-5792/2019

A (Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður) og íslenska ríkinu (María Thejll lögmaður)

Stefnanda og S greindi á um hvort henni hefðu þegar verið greiddar hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu og hvernig skýra bæri ákvæðið. Fallist var á að hámarksfjárhæð bóta skyldi taka mið af því ári sem hið bótaskylda atvik varð og var S sýknað af kröfunni. Í var jafnframt sýknað af kröfu stefnanda þar sem ekki var talið sýnt fram á að hið bótaskylda atvik hefði valdið henni varanlegri örorku.

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

174/2019

A (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson lögmaður, Ólafur Arinbjörn Sigurðsson lögmaður, 3. prófmál)

Í málinu var deilt um hvort A hefði orðið fyrir líkamstjóni sem mætti rekja til óforsvaranlegrar meðferðar sjúkraþjálfara í kjölfar krossbandsaðgerðar sem hann gekkst undir. A höfðaði mál gegn V hf. og krafðist þess að tjón hans yrði bætt úr sjúklingatryggingu sjúkraþjálfarans. Í héraði var sakarefni málsins skipt með heimild í 1. mgr. 31. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þannig að fyrst var fjallað um hvort bótakrafa A væri fyrnd. Lagt var til grundvallar að A hefði fengið eða mátt fá vitneskju um meint tjón sitt í síðasta lagi í mars 2013 og hefði fyrningarfrestur meintrar bótakröfu samkvæmt 2. gr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þá tekið að líða, sbr. 19. gr. laganna. Þá var ekki fallist á að fyrningu kröfunnar hefði verið slitið með kvörtun hans til landlæknis samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Var því talið að sú krafa, sem A kynni að hafa átt á hendur V hf., hefði verið fallin niður fyrir fyrningu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. febrúar 2019

E-2460/2017

A (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson lögmaður)

Talið var að krafa stefnanda vegna sjúkraþjálfunar sem hann hafði gengist undir í kjölfar aðgerðar hefði verið fyrnd við höfðun málsins, sbr. 19. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingar.

Hæstiréttur birt 8. mars 2018

145/2017

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður)

Ágreiningur aðila laut að því hvort að krafa A á hendur S til heimtu bóta vegna varanlegs líkamstjóns, sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ónógs eftirlits lækna á nánar tilgreindum sjúkrastofnunum, hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað. Talið var að leggja yrði til grundvallar að A hefði haft vitneskju um ætlað tjón sitt þegar hann sótti um bætur til S með umsókn 25. október 2010 og hefði fyrningarfrestur hugsanlegrar bótakröfu samkvæmt 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þá tekið að líða, sbr. 19. gr. laganna. S hafnaði kröfu A 12. apríl 2011 og var fyrningu þá slitið, sbr. 16. gr. og 21. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda, og nýr fyrningarfrestur hófst vegna dómkröfu hans. A höfðaði málið 16. desember 2015 og voru þá liðin meira en fjögur ár frá því að fyrningu var slitið. Var því talið að sú krafa, sem A kynni að eiga á hendur S, hefði verið fallin niður fyrir fyrningu.

Hæstiréttur birt 1. desember 2016

17/2016

A (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Hildur Ýr Viðarsdóttir hdl, 1. prófmál) gegn Sjúkratryggingum Íslands og íslenska ríkinu (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl, Óskar Thorarensen hrl, Agnar Þór Guðmundsson hdl, 3. prófmál)

Ágreiningur aðila laut að því hvort S og Í bæru bótaábyrgð á líkamstjóni sem A taldi að rekja mætti til afleiðinga læknismeðferðar sem hann hlaut árið 2003, annars vegar á Ítalíu þar sem hann var fyrst lagður inn í kjölfar þess að hann varð fyrir heilablóðfalli og hins vegar á Landspítala sem tók við meðferð A eftir komu hans til Íslands um viku síðar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að A hefði sjálfur leitað á umrætt sjúkrahús á Ítalíu án þess að vist hans þar hefði komið til eftir reglum þágildandi 35. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. nú 1. mgr. 23. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, hvorki að því er varðaði ástæðu fyrir henni né aðdraganda hennar. Af þessum sökum gæti hann ekki krafið S um bætur vegna tjóns, sem rekja mætti til meðferðarinnar þar ytra. Kröfu um bætur fyrir slíkt tjón yrði enn síður beint að Í á grundvelli almennra reglna um sakarábyrgð starfsmanna Landspítala og vinnuveitandaábyrgð Í á þeim. Kom því einungis til skoðunar hvort A ætti rétt til bóta vegna tjóns af þeirri meðferð sem hann fékk á Landspítala á nánar tilgreindu tímabili. Með hliðsjón af niðurstöðum tveggja matsgerða var talið að ýmis mistök hefðu verið gerð við meðferð A frá því að hann var lagður inn á Landspítala, þar á meðal að ekki hefði verið gætt að því að afla upplýsinga frá ítalska sjúkrahúsinu um greiningu á sjúkdómi hans og meðferð þar, ekki hefði verið bætt úr þessu með viðhlítandi rannsóknum og A hefði vegna mistaka þurft að sæta einangrun vegna smithættu lengur en þörf hefði verið. Þá hefði honum verið gefið lyf sem yki hættu á því að hann fengi á ný blóðtappa í heila, sem síðar varð raunin. Var því lagt til grundvallar að uppfyllt væru skilyrði 1. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu til að A öðlaðist rétt til bóta úr sjúklingatryggingu. Í samræmi við niðurstöðu yfirmatsgerðar var jafnframt lagt til grundvallar að tjón A af völdum meðferðarinnar á Landspítala á umræddu tímabili svaraði til fjórðungs af heildartjóni hans. Loks var ekki fallist á með S að krafa A hefði verið fallin niður fyrir fyrningu samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000. Samkvæmt framansögðu var S gert að greiða A tilgreinda fjárhæð.