Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lög: Lög um Flugmálastjórn Íslands nr. 100/2006

Hæstiréttur birt 21. júní 2018

598/2017

A (Óðinn Elísson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi á árinu 2005. Í desember 2006 greiddi S hf. honum bætur á grundvelli álitsgerðar læknis og lögmanns sem þá lá fyrir. Síðar taldi A að ófyrirsjáanlegar breytingar hefðu orðið á heilsu sinni vegna slyssins og höfðaði mál gegn S hf. til heimtu frekari bóta. Byggði A kröfu sína á matsgerð dómkvaddra manna sem hann hafði aflað af því tilefni. Deildu aðilar um hvort skilyrði endurupptöku samkvæmt 11. gr. skaðabótalaga væru fyrir hendi og hvort krafa A væri fyrnd. Þá deildu aðilar jafnframt um hvort, og þá að hvaða leyti, bætur til A skyldu sæta frádrætti vegna greiðslna frá almannatryggingum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að skilyrði endurupptöku væru til staðar og að krafa A væri ófyrnd. Þá taldi dómurinn að draga bæri bæði frá miskabótum og bótum fyrir varanlega örorku þær greiðslur sem A kynni að eiga rétt á frá almannatryggingum. Með því að enn lægi ekki fyrir hvort og þá hve háar greiðslur A ætti rétt á í þeim efnum, var S hf. sýknað að svo stöddu af kröfum hans með vísan til 2. mgr. 26. gr. laga um meðferð einkamála. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að skilyrði endurupptöku væru fyrir hendi og að krafa A væri ófyrnd. Þá taldi rétturinn sömuleiðis að bæði miskabætur A og bætur hans vegna varanlegrar örorku skyldu sæta frádrætti vegna greiðslna frá almannatryggingum. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu, meðal annars með vísan til nýrra gagna sem lögð höfðu verið fyrir réttinn, að þær greiðslur sem A ætti rétt á frá almannatryggingum væru hærri en þær bætur sem hann ætti rétt á frá S hf. Var félagið því sýknað af kröfum hans.

Hæstiréttur birt 14. nóvember 2013

381/2013

A krafði Í um greiðslu á kjarasamningsbundinni skírteinistryggingu í kjölfar afturköllunar Flugmálastjórnar á skírteini hennar til starfa sem flugumferðarstjóri. Byggði A á því að hún uppfyllti skilyrði innlausnar tryggingarinnar en samkvæmt nánari ákvæðum gildandi kjarasamnings tók tryggingin m.a. að fullu til veikinda sem voru að uppruna sálræns eðlis. Í málinu lágu fyrir fjögur læknisvottorð um að A hafði glímt við slík veikindi. Talið var að A hefði ekki verið svipt réttindum sínum vegna veikinda, líkt og áskilið var í kjarasamningi aðila, heldur á grundvelli þess að hún hefði veitt rangar upplýsingar um heilsufar sitt og lyfjanotkun í umsóknum sínum um heilbrigðisvottorð á fjögurra ára tímabili. Þeirri ákvörðun Flugmálastjórnar hafði A ekki skotið til úrlausnar æðra stjórnvalds né hafði hún höfðað mál til að hnekkja henni. Þar sem skilyrði kjarasamnings til innlausnar tryggingarinnar voru ekki uppfyllt í málinu var Í sýknað af kröfu A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2011

E-55/2011

Pétur Einarsson (Sverrir Bergmann Pálmason hdl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórey Sigríður Þórðardóttir hrl)

Sýknað var af kröfum stefnanda um greiðslu lífeyris tiltekið tímabil, sem ákveðinn yrði í samræmi við eftirmannsreglu 1. mgr. 35. gr. laga nr. 1/1997. Talið var að viðmiðunarlaun stefnanda væru réttilega miðuð við það starf sem hann gegndi síðast.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. maí 2009

E-6161/2009

Hjörtur Þór Hauksson gegn Fjallabyggð, íslenzka, ríkinu, kveðinn, upp svohljóðandi, ú r s k u r ð u r og I

Stefndi leigði lóð til 75 ára árið 1993 við flugvöllinn á Ólafsfirði og reisti þar flugskýli. Árið 2006 barst stefnanda vitneskja um, að flugvöllurinn hefði verið aflagður vegna skipulagsbreytinga og voru hafnar þar framkvæmdir. Stefnandi krafðist viðurkenningar bótaréttar, auk bóta úr hendi stefndu óskipt. Málinu vísað frá dómi að kröfu vegna annmarka á málatilbúnaði.