Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Sanngjarnt endurgjald

Héraðsdómur Vesturlands birt 16. apríl 2026 kl. 3:57

E-93/2024

Straumbrot ehf (Jónatan Hróbjartsson lögmaður) gegn Al Álvinnslu ehf og TM tryggingum hf. til réttargæslu (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður)

Fallist á reikninga rafverktaka fyrir vinnu við uppsetningu á verksmiðju/sérhæfðum búnaði. Til frádráttar stefnukröfum voru samþykktar kröfur stefnda til skuldajafnaðar vegna tjóns sem sannað þótti að starfsmenn verktakans höfðu valdið verkkaupa við uppsetninguna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. apríl 2023

E-3157/2022

Trévídd ehf (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður) gegn Geymd ehf (Bernhard Bogason lögmaður)

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda fyrir verk sem sá hafði unnið fyrir stefnda, en ekki hafði verið samið um fast verð fyrir verkið. Var því talið að stefnda bæri í samræmi við meginreglur kröfuréttar að greiða það verð sem sanngjarnt væri miðað við vinnuframlag, gæði verks, efniskaup og annað sem þýðingu hefði. Stefnda, sem ekki aflaði matsgerðar í málinu, tókst ekki að sýna fram á að umkrafin fjárhæð væri ósanngjörn, en um það bar hann sönnunarbyrði. Var fallist á kröfur stefnanda að því marki sem þær voru studdar fullnægjandi gögnum, en einnig var fallist á hluta af gagnkröfu stefnda til skuldajafnaðar.