Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Blekking
Ákæruvaldið (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Cristinu Tugui (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Skjalafals og brot á útlendingalögum í tengslum við atvinnu og dvöl hér á landi.
X var sakfelldur fyrir nauðgun og brot gegn blygðunarsemi, með því að hafa á nánar tilgreindu tímabili sýnt af sér lostugt athæfi og sært blygðunarsemi A er hann beitti hana blekkingum og nýtti sér villu hennar um að hann væri annar maður í samskiptum þeirra á milli, í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat, í þeim tilgangi að eiga í kynferðislegum samskiptum við hana og brjóta gegn henni með nánar tilgreindum hætti. Við ákvörðun refsingar var litið til þess sérstaklega hver framganga og háttsemi X hefði verið þann langa tíma sem um ræddi og brot hans áttu sér stað. Hann hefði leikið tveim skjöldum í samskiptum sínum við A um lengri tíma. Ásetningur hans var því metinn einarður og brot hans bæði alvarleg og óvenjuleg. Þá var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing X var ákveðin fangelsi í fjögur ár og honum gert að greiða A miskabætur.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Omid Hussini Tabar (
Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 157. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi.