Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

11 dómar fundust

Lykilorð: Akstur án öryggisbeltis

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2026 kl. 12:05

S-4789/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Mörtu Rybakiewicz (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmd í sjö mánaða fangelsi, en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir, og svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. desember 2025

S-2227/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Baldvini Hafliðasyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 10 mánuði ásamt því að áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.

Landsréttur birt 23. júní 2023

541/2022

Ákæruvaldið gegn Magnúsi Ingibergi Jóhannessyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með hinum áfrýjaða dómi var M sakfelldur fyrir umferðarlagabrot í níu skipti og fíkniefnalagabrot með því að hafa í þrjú skipti haft tilgreind fíkniefni í vörslum sínum. Var M ekki gerð sérstök refsing en fíkniefnin voru gerð upptæk. Ákæruvaldið áfrýjaði dóminum í því skyni að M yrði dæmdur til refsingar og sviptur ökurétti. Í dómi Landsréttar kom fram að öll brot M hefðu verið fram fyrir uppkvaðningu dóms í héraði sem staðfestur hafi verið að efni til með dómi Landsréttar í máli nr. 271/2021. Yrði refsing M því ákveðin sem hegningarauki. Samkvæmt því var framangreindur dómur tekinn upp og dæmt um brot M í einu lagi. Þótti refsing M hæfilega ákveðin fangelsi í 16 mánuði en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var M sviptur ökurétti ævilangt frá 13. desember 2019 að telja, en þann dag var hann sviptur ökurétti til bráðabirgða. Loks var ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. mars 2022

S-5961/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Andris Cesnolovics
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot og brot gegn umferðar- og vopnalögum. Dæmdur til að sæta fangelsi í 5 mánuði og hnífur gerður upptækur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. nóvember 2021

S-181/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Lacramioara Feraru (Eggert Páll Ólason lögmaður) og Florin Feraru (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu dæmd fyrir þjófnað, umferðarlaga- og fíkniefnabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. nóvember 2021

S-3749/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Adam Piet
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til 2 ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2020

S-2541/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Minh Ngoc Nguyen (Brynjólfur Eyvindsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Gert að sæta fangelsi í 90 daga og sviptur ökurétti ævilangt. Fíkniefni gerð upptæk

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. júní 2020

S-2916/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Lukasz Grzegorz Mrówka (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, akstur undir áhrifum áfengis, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur án öryggisbeltis. Dæmdur í 90 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára og sviptur ökurétti í 3 ár. Hegningarauki að hluta.

Hæstiréttur birt 14. apríl 2005

19/2005

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Guðlaugi Helga Valssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var dæmdur í sex mánaða fangelsi vegna brots á 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en með hliðsjón af persónulegum högum hans og atvikum öllum þótti rétt að skilorðsbinda refsinguna að fullu.