Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 19. nóvember 2021.
Mál nr. S-181/2021:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lacramioara Feraru og
(Eggert Páll Ólason lögmaður)
Florin Feraru
(Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur án öryggisbeltis. Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fíkniefnalagabrot. Ölvunarakstur. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærðu dæmd fyrir þjófnað, umferðarlaga- og fíkniefnabrot
Mál þetta, sem dómtekið var 18. nóvember sl., er höfðað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu með ákæru útgefinni 26. janúar 2021 á hendur Florin Feraru, kt. 000000-0000, [...], og Lacramioara Feraru, kt. 000000-0000, [...].
Málið er höfðað á hendur ákærðu fyrir eftirtalin brot, framin í Reykjavík nema annað sé tekið fram: […]
II.
Gegn ákærðu Lacramioara fyrir þjófnað með því að hafa, 10. október 2019, í Melabúðinni við Hagamel, stolið tveimur pökkum af kornhænueggjum, samtals að verðmæti kr. 3.596. (Mál nr. 007-2019-64127). Telst háttsemin varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Gegn ákærða Florin fyrir eftirtalin brot:
III.
1. […]
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 30. júlí 2020, að Engihjalla við Stórahjalla, Kópavogi, haft í vörslum sínum 0,25 g af kókaíni sem ákærði geymdi innanklæða og lögregla fann við leit í kjölfar afskipta.
Telst háttsemin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018. (Mál nr. 007-2020-42477).
- Umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 14. október 2020, ekið bifreiðinni [...] um Nýbýlaveg, Kópavogi, sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandi 0,77‰ og kókaín 200 ng/ml) uns lögregla stöðvaði aksturinn við Grænatún. (Mál nr. 007-2020- 60402).
Telst háttsemin varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 4. desember 2020, ekið bifreiðinni [...] vestur Nýbýlaveg, Kópavogi, sviptur ökurétti og án þess að hafa öryggisbelti spennt við aksturinn, uns lögregla stöðvaði aksturinn við Ástún. (Mál nr. 007-2020-72843).
Telst háttsemin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. og 1. mgr. 77. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærða Florin verði, vegna brota sem frá er greint í lið III/3, gert að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019. Loks er krafist upptöku á 0,25 g af kókaíni, sbr. lið III/4., með heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
Undir rekstri málsins féll ákæruvaldið frá ákæruliðum I. og III.1.
Verjandi ákærðu Lacramioara gerir þá kröfu að henni verði ekki gerð refsing en komi til þess er þess krafist að hún verði skilorðsbundin að öllu leyti. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð þ.m.t. málsvarnarlaun verjandans samkvæmt málskostnaðarreikningi.
Verjandi ákærða Florin gerir aðallega þá kröfu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög frekast heimila og hún verði skilorðsbundin að öllu leyti. Þá er þess krafist að sakarkostnaður verði, alla vega að hluta til, lagður á ríkissjóð þ.m.t málsvarnarlaun verjandans samkvæmt málskostnaðarreikningi.
II.
Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærðu hafa bæði játað skýlaust þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játning þeirra sé sannleikanum samkvæm enda er hún í samræmi við rannsóknargögn málsins. Málið var því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjendum ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærða, Lacramioara Feraru, hefur gerst sek um brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. En ákærði Florin Feraru hefur gerst brotlegur gegn 2., sbr. 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Hann hefur einnig brotið gegn 1., sbr. 2. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 77. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Ákærða, Lacramioara Feraru, hefur unnið sér til refsingar samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot ákærðu er minniháttar og þýfið komst til skila. Þá hefur hún ekki áður sætt refsingu og hún játaði afdráttarlaust brot sitt. Með vísan til þessa og 1. mgr. 256. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir rétt að gera ákærðu ekki refsingu í málinu.
Ákærði, Florin Feraru, hefur unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Samkvæmt sakavottorði hans var hann 1. október 2020 dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, til sektargreiðslu og sviptur ökurétti í þrjú ár og sex mánuði fyrir tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot. Brot ákærða samkvæmt ákærulið III.2. er framið áður en ákærði hlaut dóm í október 2020 og því er um hegningarauka að ræða, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. En brot ákærða samkvæmt ákæruliðum III.3. og III.4. eru framin eftir að ákærði var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í október 2020. Rétt þykir eins og á stendur að taka skilorðshluta dómsins upp og gera ákærða nú refsingu í einu lagi samkvæmt þeim dómi og fyrir þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir. Refsing ákærða verður einnig ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þá verður einnig tekið tillit til þess að ákærði játaði afdráttarlaust brot sín. Með vísan til þessa þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Ákærði lýsti því fyrir dómi að hann hefði breytt lífi sínu til betri vegar, hann væri í vinnu og ætti ungan son og var þessu ekki mótmælt. Með hliðsjón af þessu þykir rétt að skilorðsbinda fangelsisrefsingu ákærða og falli hún niður að tveimur árum liðnum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá skal ákærði sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, í þrjú ár frá 29. nóvember 2023 og sæta upptöku til ríkissjóðs á 0,25 grömmum af kókaíni, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.
Málsvarnarlaun verjanda ákærðu, Lacramiora Feraru, Eggerts Páls Ólasonar lögmanns, þykja hæfilega ákveðin 675.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Eins og fram er komið var fallið frá ákærulið á hendur ákærðu við upphaf aðalmeðferðar málsins sem varðaði mun alvarlegra brot en hún hefur verið sakfelld fyrir, sbr. ofanritað. Standa líkur til þess að ákæra hefði jafnvel ekki verið gefin út á hendur ákærðu hefði ákæruliðurinn, sem fallið var frá, ekki einnig verið í ákærunni. Nokkur þinghöld hafa verið í málinu og vinna verjanda tekið mið af því hvernig ákæran var allt þar til við upphaf fyrirhugaðrar aðalmeðferðar. Með vísan til þessa þykir rétt að málsvarnarlaunin verði að fullu greidd úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun verjanda ákærða, Florin Feraru, Höskuldar Þórs Þórhallssonar lögmanns, þykja hæfilega ákveðin 1.000.000 krónur að að meðtöldum virðisaukaskatti. Eins og fram er komið var fallið frá tveimur ákæruliðum á hendur ákærðu við upphaf aðalmeðferðar málsins. Nokkur þinghöld hafa verið í málinu og vinna verjanda tekið mið af því hvernig ákæran var allt þar til við upphaf fyrirhugaðrar aðalmeðferðar. Með vísan til þessa þykir rétt að ákærði greiði helming málsvarnarlaunanna eða 500.000 krónur en sama fjárhæð greiðist úr ríkissjóði. Ákærði greiði annan sakarkostnað 101.119 krónur.
Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan en hann fékk málið til meðferðar 21. september 2021 en hafði engin afskipti af því fyrir þann tíma.
D ó m s o r ð:
Ákærðu, Lacramiora Feraru, er ekki gerð refsing.
Ákærði, Florin Feraru, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði, Florin Feraru, er sviptur ökurétti í þrjú ár frá 29. nóvember 2023.
Ákærði, Florin Feraru, sæti upptöku til ríkissjóðs á 0,25 grömmum af kókaíni.
Málsvarnarlaun verjanda ákærðu, Lacramiora Feraru, Eggerts Páls Ólasonar lögmanns 675.000 krónur greiðist úr ríkissjóði.
Málsvarnarlaun ákærða, Florin Feraru, Höskuldar Þórs Þórhallssonar lögmanns, eru 1.000.000 krónur og skal ákærði greiða 500.000 krónur en sama fjárhæð greiðist úr ríkissjóði. Ákærði greiði annan sakarkostnað 101.119 krónur.
Ingi Tryggvason