Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Vinnuréttur.
Stefndi, sem er trúfélag, var sýknaður af kröfum fyrrum starfsmanns stefnda, sem byggðust á því að starfsmanninum hefði verið sagt upp starfi með ólögmætum hætti sem valdið hefði starfsmanninum tjóni.
Fallist var á launakröfu starfsmanns sem forfallaðist vegna læknisaðgerðar.
Uppsögn A úr starfi hjá B var talin ólögmæt m.a. með vísan til þess að A taldist hafa gegnt þar stöðu öryggistrúnaðarmanns, en ósannað var að A hefði verið veitt viðvörun eða áminning áður en uppsagnar kom. Auk þess lá ekki fyrir að uppsögn A hefði staðið í tengslum við almenna fækkun starfsmanna og B hafði ekki rökstutt uppsögnina sérstaklega. Á þessum grunni var B gert að greiða A nánar tilgreindar bætur.
Blaðaútgefandi var sýknaður af kröfum fyrrum starfsmanns um greiðslu vegna sérstaks orlofs sem stefnandi taldi sig eiga rétt á. Í niðurstöðu dómsins var einkum vísað til fordæmis Hæstaréttar um túlkun efnislega samhljóða ákvæðis eldri kjarasamnings.

Fallist var á kröfu sjómanns um greiðslu veikindalauna úr hendi útgerðarfyrirtækis.