Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Tékkabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2006

S-762/2006

Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon fulltrúi) gegn Indriða Sveini Ingjaldssyni
Lykilorð: Tékkabrot.
Málaflokkur: Önnur sakamál

Karlmaður dæmdur til greiðslu 50.000 króna sektar fyrir brot á tékkalögum og til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 237.106 króna

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. september 2006

S-121/2006

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Skaðabætur. Tékkabrot.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir tékkalagabrot. Jafnframt var hann dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Hæstiréttur birt 12. desember 2002

369/2002

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Sigfinni Þór Lúðvíkssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

S var ákærður fyrir skilasvik, með því að hafa rifið tiltekna bifreið í sundur og notað hluti úr henni í aðrar bifreiðar sömu gerðar, þrátt fyrir að bifreiðin hafi skömmu áður verið sett að veði til tryggingar greiðslu skuldabréfs. Þá var hann ákærður fyrir skjalafals með því að hafa framvísað falsaðri tilkynningu um eigendaskipti að bifreið og jafnframt selt tryggingafélagi skuldabréf með veði í bifreiðinni. Einnig var hann ákærður fyrir brot gegn tékkalögum með því að hafa notað í viðskiptum innistæðulausa tékka og fjársvik með því að hafa svikið til sín lán hjá tryggingafélögum í Reykjavík. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um tólf mánaða fangelsi S, með vísan til forsendna hans og að gættu ákvæði 3. mgr. 159. gr. laga um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 20. maí 1999

93/1999

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Ragnari Kornelíusi Lövdal (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Skjalafals

R var ákærður fyrir skjalafals, fjársvik, fjárdrátt, brot á lögum um sölu notaðra ökutækja og brot á tékkalögum í tengslum við rekstur bílasölu sinnar. Var R sakfelldur fyrir skjalafals, fjársvik, brot á tékkalögum og fjárdrátt, en sýknaður af fjársvikum í þremur ákæruliðum og broti gegn lögum um sölu notaðra ökutækja. Var R dæmdur til fangelsisrefsingar og greiðslu skaðabóta.