Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 14. september 2006.
Mál nr. S-121/2006:
D Ó M U R
nr. S-121/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 5. september sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæruskjali lögreglustjórans á Akureyri, útgefnu þann 2.
maí sl., á hendur X,
„fyrir
tékkalagabrot, með því að gefa út og nota í viðskiptum tvo tékka sem báðir voru
að fjárhæð kr. 155.933 á reikning [...] í Sparisjóði Norðfjarðar, enda þótt
innistæða væri ekki á reikningnum fyrir tékkunum, sem voru gefnir út til [...],
í júní- eða júlímánuði 2004 og dagsettir fram í tímann, en annar tékkinn var
dagsettur 1. ágúst 2004 og hinn 15. ágúst 2004 og áttu að vera greiðsla á skuld
útgefanda við [...].
Telst
þetta varða við 4. gr., sbr. A lið 73. gr. laga um tékka nr. 94, 1933, sbr. lög
nr. 35, 1977.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í
málinu gerir
Árni Pálsson
hrl.,
fyrir hönd [...], bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 311.866-, auk
dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38, 2001, frá 15.08.2004 til greiðsludags.“
I.
Fyrirkall
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir tékkalagabrot. Jafnframt var hann dæmdur til greiðslu skaðabóta.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 5. september sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæruskjali lögreglustjórans á Akureyri, útgefnu þann 2. maí sl., á hendur X, „fyrir tékkalagabrot, með því að gefa út og nota í viðskiptum tvo tékka sem báðir voru að fjárhæð kr. 155.933 á reikning [...] í Sparisjóði Norðfjarðar, enda þótt innistæða væri ekki á reikningnum fyrir tékkunum, sem voru gefnir út til [...], í júní- eða júlímánuði 2004 og dagsettir fram í tímann, en annar tékkinn var dagsettur 1. ágúst 2004 og hinn 15. ágúst 2004 og áttu að vera greiðsla á skuld útgefanda við [...].
Telst þetta varða við 4. gr., sbr. A lið 73. gr. laga um tékka nr. 94, 1933, sbr. lög nr. 35, 1977.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Árni Pálsson hrl., fyrir hönd [...], bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 311.866-, auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38, 2001, frá 15.08.2004 til greiðsludags.“
I.
Fyrirkall í málinu var gefið út 9. maí sl. og birt ákærða 11. s.m. Við þingfestingu málsins þann 22. maí sl. sótti ákærði ekki þing og ekki heldur við síðari fyrirtökur þess. Við fyrirtöku málsins þann 5. september sl. var málið dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991. Þykir mega jafna framangreindri útivist ákærða til játningar hans með vísan til áðurgreindrar lagagreinar, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki áður verið dæmdur til refsingar. Þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin kr. 30.000 í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Skaðabótakrafa ..., byggist á frumritum tékka þeirra er ákærði notaði til greiðslu skuldar sinnar. Er krafan studd nægjanlegum gögnum og tekin til greina eins og í dómsorði greinir.
Enginn sakarkostnaður er af málinu.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson, dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 30.000 í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði greiði ..., kr. 311.866-, auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá 15. ágúst 2004 til greiðsludags.