Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. september 2006.
Mál nr. S-762/2006:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Indriða Sveini Ingjaldssyni
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu 50.000 króna sektar fyrir brot á tékkalögum og til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 237.106 króna
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 16. maí sl., á hendur, Indriða Sveini Ingjaldssyni, kt. 000000-0000, Hæðargarði 38, Reykjavík, „fyrir brot á tékkalögum, með því að hafa 26. apríl 2004, greitt forsvarsmönnum Skífunnar ehf., kt. 000000-0000, viðskiptaskuld með tékka að fjárhæð 200.000 kr., sem ákærði gaf út sem prókúruhafi fyrir hönd Samtals ehf., kt. 000000-0000, á reikning félagsins nr. 730 hjá Landsbanka Íslands, Háaleitisútibúi, Reykjavík og dagsetti til innlausnar 7. júní sama ár en við sýningu tékkans þann 11. sama mánaðar reyndist ekki vera innistæða fyrir andvirði tékkans á reikningnum.
Þetta telst varða við 73. gr. laga um tékka nr. 94/1933, sbr. lög nr. 35/1977.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu er þess krafist af hálfu Dags Group hf., að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 200.000 kr. ásamt dráttarvöxtum til 6. febrúar 2006 að fjárhæð 69.407 kr. og 37.106 kr. í innheimtulaun lögmanns.“
Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða. Þá hefur ákærði samþykkt fram komna bótakröfu.
Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann ekki áður gerst sekur um hegningarlagabrot. Hefur hann haldið því fram að hann hafi verið í góðri trú um að innistæða yrði til staðar á reikningi félags þess sem hann var prókúruhafi fyrir á innlausnar degi. Þykir refsing ákærða hæfileg vera 50.000 króna sekt í ríkissjóð, en ákærði sæti ella 4 daga fangelsi verði sektin eigi greidd innan fjögurra vikna frá deginum í dag að telja.
Bótakrafa í málinu er nægilega studd gögnum og er á hana fallist eins og í dómsorði greinir, en dráttarvaxtakrafa er vanreifuð og er henni því vísað frá dómi.
Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Indriði Sveinn Ingjaldsson, greiði 50.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá dómsuppkvaðningardegi, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ákærði greiði Degi Group hf. 237.106 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir ---------------------------- ------------------------ ---------------------------- Rétt endurrit staðfestir, Héraðsdómi Reykjavíkur, 29. september 2006.