Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Frávísun án kröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

E-1545/2022

A (Albert Björn Lúðvígsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)

Málið var höfðað á árinu 2022 og krafist ógildingar á fjórum úrskurðum kærunefndar útlendingamála sem gengið höfðu á árunum 2021 og 2022. Fallist var á ógildingu eins þeirra með dómi héraðsdóms í desember 2022 en þann dóm ómerkti Landsréttur með úrskurði 8. mars 2024 og vísaði málinu heim til nýrrar meðferðar. Við meðferð málsins eftir endurupptöku þess í héraði var upplýst að á árinu 2023 höfðu gengið nýir úrskurðir kærunefndar útlendingamála um sambærilegar kröfur stefnanda og leyst var úr í þeim úrskurðum sem krafist er ógildingar á í þessu máli. Talið var að stefnandi hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af dómi um gildi þeirra eldri úrskurða sem dómkröfur málsins snúast um og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

E-1544/2022

A, B, C og D (Albert Björn Lúðvígsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)

Málið var höfðað á árinu 2022 og krafist ógildingar á þremur úrskurðum kærunefndar útlendingamála sem gengið höfðu á árunum 2021 og 2022. Fallist var á ógildingu eins þeirra með dómi héraðsdóms í desember 2022 en þann dóm ómerkti Landsréttur með úrskurði 8. mars 2024 og vísaði málinu heim til nýrrar meðferðar. Við meðferð málsins eftir endurupptöku þess í héraði var upplýst að á árinu 2023 höfðu gengið nýir úrskurðir kærunefndar útlendingamála um sambærilegar kröfur stefnenda og leyst var úr í þeim úrskurðum sem krafist er ógildingar á í þessu máli. Talið var að stefnendur hefðu ekki lengur lögvarða hagsmuni af dómi um gildi þeirra eldri úrskurða sem dómkröfur málsins snúast um og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2024

E-3264/2023

Smith & Norland hf (Jóna Björk Helgadóttir lögmaður) gegn Reykjafelli ehf. (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útboðsmála, sem felldi úr gildi útboð R og V um endurnýjun gönguljósa í Reykjavík og fól þeim að bjóða út að nýju.Málinu var vísað frá dómi af sjálfsdáðum, þar sem ekki hefði verið sýnt fram á lögvarða hagsmuni stefnanda af því að fá efnisdóm um kröfu sína, eftir að útboðið hafði farið fram að nýju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2021

E-309/2020

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Stefnandi hafði þegið greiðslu miðað við 12% varanlega örorku skv. undirmatsgerð. Varanleg örorka skv. yfirmatsgerð var metin 20% og var stefnda gert að greiða stefnanda mismuninn. Þá var seinni kröfulið dómkröfu vísað frá dómi án kröfu.