Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Forföll
Stefnandi krafði fyrrum vinnuveitanda sinn um laun í veikindaforföllum vegna umferðarslyss sem hún varð fyrir á leið úr vinnu. Sneri deila aðila að því hvort um vinnuslys væri að ræða sem orðið hefði á beinni leið frá vinnu í skilningi nánar tilgreinds ákvæðis í kjarasamningi. Talið var að orðalag ákvæðisins fæli ekki í sér skyldu fyrir launþega að fara stystu leið á milli heimilis og vinnustaðar. Hefði sú leið sem stefnandi valdi í umrætt sinn farið um umferðaræðar sem ekki hafi vikið svo frá beinni leið að félli utan verndar kjarasamningsákvæðisins. Með hliðsjón af leiðarvali og þeim tíma sem leið frá því vinnu hennar lauk og þar til slysið átti sér stað væri ekki varhugavert að telja að það hefði orðið á beinni leið hennar frá vinnu. Var krafa hennar tekin til greina.
Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda ógreidd laun, sem stefnandi krafðist í kjölfar þess að hann rifti tímabundnum samningi aðila vegna vanskila stefnda. Ekki var fallist á að draga ætti frá kröfum stefnanda, meðal annars vegna fjarvista vegna meiðsla eða vegna óviðráðanlegra ytri aðstæðna vegna heimsfaraldurs COVID-19.
N krafði S ehf. um laun í veikindaforföllum vegna umferðarslyss sem hún varð fyrir á leið úr vinnu. Sneri deila aðila að því hvort um vinnuslys væri að ræða sem orðið hefði á beinni leið frá vinnu í skilningi nánar tilgreinds ákvæðis í kjarasamningi. Talið var að orðalag ákvæðisins fæli ekki í sér skyldu fyrir launþega að fara stystu leið á milli heimilis og vinnustaðar. Hefði sú leið sem N valdi umrætt sinn farið um umferðaræðar sem almennt væru notaðar til að komast á milli viðkomandi sveitarfélaga. Með hliðsjón af þeim tíma sem leið frá því að vinnu N lauk og þar til slysið átti sér stað væri ekki varhugavert að telja að það hefði orðið á beinni leið hennar frá vinnu. Var krafa N því tekin til greina.
Talið var að um rétt I til forfallalauna, vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir í í aukastarfi sínu sem sjúkraflutningamaður samhliða aðalstarfi sínu hjá hinu opinbera á grundvelli ótímabundins ráðningarsamnings, skyldi að virtum ráðningarsamningi hans vegna aukastarfsins og fyrirmælum kjarasamnings fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Kjalars, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, fara eftir þeirri grein kjarasamningsins sem ætti við um þá sem ráðnir væru til starfa í tímavinnu.
Úrskurði héraðsdóms um frestun aðalmeðferðar var hnekkt þar sem ekki þótti sýnt að lögmaður R eða hann sjálfur hefðu haft lögmæt forföll í þinghaldi til aðalmeðferðar, sem boðað hafði verið til með löngum fyrirvara.
Úrskurði héraðsdóms um frestun aðalmeðferðar var hnekkt þar sem ekki þótti sýnt að lögmaður G eða hún sjálf hefðu haft lögmæt forföll í þinghaldi til aðalmeðferðar, sem boðað hafði verið til með löngum fyrirvara.