Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Félagslegar íbúðir

Hæstiréttur birt 30. október 2003

120/2003

Reykjavíkurborg (Gylfi Thorlacius hrl) gegn Grétari H. Hafsteinssyni (Sigurður Gizurarson hrl)

G, sem keypt hafði íbúð af R á grundvelli laga nr. 86/1988 um Húsnæðisstofnun ríkisins, voru dæmdar skaðabætur úr hendi R, þar sem sýnt þótti að við ákvörðun söluverðs íbúðarinnar hafi ekki verið farið réttilega að samkvæmt ákvæðum laganna. Við ákvörðun bótafjárhæðar var byggt á ítarlegu yfirmati dómkvaddra manna, enda hafði því ekki verið hnekkt.

Hæstiréttur birt 20. september 2001

117/2001

Hafnarfjarðarkaupstaður (Andri Árnason hrl) gegn Varasjóði viðbótarlána (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

Stjórnarskrá. Kaupskylda. Félagslegar íbúðir. Frávísunarkröfu frá héraðsdómi hafnað. Lögvarðir hagsmunir. Aðild. Lagaskil. Flýtimeðferð. Með yfirlýsingu húsnæðisnefndar H 19. júní 2000 til dánarbús HE var af hálfu H fallið frá kaupskyldu félagslegrar eignaríbúðar, sem afhent hafði verið HE 16. janúar 1990. V krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að H hefði verið óheimilt að falla frá kaupskyldunni. Var V talinn hafa lögvarða hagsmuni af að fá úr því skorið fyrir dómi, hvort H hafi borið að innleysa umrædda íbúð eða ekki. Frávísunarkröfu H var hafnað af þessum sökum, auk þess sem ekki var talin nauðsyn á samaðild H og dánarbúsins skv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991, svo sem H hélt fram. Ágreiningslaust var að 84. gr. laga nr. 97/1993 um Húsnæðisstofnun ríkisins, sbr. 26. gr. laga nr. 58/1995, ætti við um hina umþrættu íbúð, en laga­greinin er enn í gildi eftir því sem við getur átt, sbr. ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál. Samkvæmt nefndri 84. gr. hefur sveitar­stjórn kaupskyldu á félags­legum eignaríbúðum, byggðum samkvæmt lögum nr. 51/1980 um Húsnæðis­stofnun ríkisins, fyrstu 15 árin frá afhendingu íbúðar. Eftir þann tíma á sveitarstjórn forkaups­rétt á þeim íbúðum, sem boðnar hafa verið til sölu. Talið var að eftir gildistöku laga nr. 44/1998 hefði áfram hvílt fortakslaus kaupskylda sveitarstjórna á félags­legum eignaríbúðum, byggðum samkvæmt lögum nr. 51/1980, sem koma til inn­lausnar innan lögákveðins kaupskyldutíma og að hvorki sveitarfélög né eigendur slíkra íbúða hafi nokkurt val í þeim efnum. Íbúðin hefði samkvæmt þessu verið háð kaupskyldu til 16. janúar 2005 og var því talið að H hefði verið óheimilt að falla frá kaupskyldu á henni, enda hafði H ekki tekist að sýna fram á að kaupskyldan væri reist á ómálefnalegum forsendum og færi í bága við eignarréttarákvæði og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Hæstiréttur birt 12. maí 1999

508/1998

Sýslumaðurinn í Reykjavík (Jón G. Briem hrl) gegn Reykjavíkurborg og Íbúðalánasjóði til réttargæslu (Gylfi Thorlacius hrl)

X var ákærður og dæmdur fyrir misneytingu með því að hafa fengið Á, konu um áttrætt, til að taka mikið fé út af reikningi sínum og ráðstafa til sín, auk þess að fá hana til að ráðstafa veðskuldabréfi í sína þágu og undirrita erfðaskrá þess efnis að skuldir hans við hana skyldu falla niður við andlát hennar. Var X ákveðin fangelsisrefsing. Ekki var fallist á kröfu um ómerkingu héraðsdóms sem reist var á því að héraðsdómur hefði átt að vera fjölskipaður og konan hefði átt að koma fyrir dóminn, en til þess var hún ekki talin fær af heilsufarslegum ástæðum.

Hæstiréttur birt 25. mars 1999

290/1998

Kópavogsbær vegna húsnæðisnefndar Kópavogs (Þórólfur Kristján Beck hrl) gegn Sóleyju Þorvaldsdóttur (Magnús Guðlaugsson hrl)

Stjórn verkamannabústaða í sveitarfélaginu K úthlutaði íbúð til S árið 1974. Á árinu 1997 reis ágreiningur milli S og húsnæðisnefndar K um innlausnarverð íbúðarinnar. S stefndi K vegna nefndarinnar og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að söluverð íbúðar hennar skyldi reiknað út samkvæmt reiknireglu 26. gr. l. nr. 30/1970 um Húsnæðismálastofnun ríkisins, en í þinglýstu afsali stjórnar verkamannabústaða til S var kveðið á um að þeirri reglu skyldi beita. K taldi á hinn bóginn óheimilt að beita öðrum verðútreikningi en þeim sem mælt var fyrir um í gildandi lögum. Talið var að kröfugerð S væri hvorki skýr né afmörkuð. Þá væri hún ekki til þess fallin að ráða ágreiningi aðila til lykta og hefði S ekki gert reka að því að fá fram hver endanleg fjárhæð kröfu hennar ætti að vera. Var þetta talið í andstöðu við meginreglu réttarfars um skýran málatilbúnað. Var málinu vísað frá héraðsdómi ex officio.

Hæstiréttur birt 18. febrúar 1999

379/1998

Íbúðalánasjóður (Friðjón Örn Friðjónsson hrl) gegn Akraneskaupstað (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Við nauðungarsölu félagslegrar íbúðar í apríl 1992 varð Byggingarsjóður verkamanna, B, hæstbjóðandi. Við nauðungarsöluna reis ágreiningur um hvort sveitarfélaginu A bæri skylda til þess að leysa til sín íbúðina samkvæmt 100. gr. laga nr. 86/1988 um Húsnæðisstofnun ríkisins, eins og því ákvæði hafði verið breytt með lögum nr. 70/1990. Afsal var gefið út til B í febrúar 1993 en B krafðist þess í júlí 1996 að A leysti til sín eignina. Talið var að orðalag 100. gr. laganna yrði ekki skýrt á annan veg en að skylda hefði hvílt á A til að kaupa umrædda íbúð og hann hefði ekki átt neitt val í þeim efnum. Þá var það engu talið breyta um skyldu A til þess að axla slíkt lögákveðið verkefni að B hafði dregið það lengur en þurfti að leita réttar síns. Að lokum var það ekki talið hafa þýðingu fyrir úrslit málsins að B hafði tekið við afsali án sérstaks fyrirvara um innlausnarskyldu A. Var fallist á kröfu Í, sem tekið hafði við hlutverki B, um að A yrði gert að leysa til sín íbúðna.