Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Óskipt ábyrgð

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. janúar 2026

E-587/2025

Húsbjörn ehf (Jón Auðunn Jónsson lögmaður) gegn Reyni Erlingssyni og Nýju heimili ehf og Verði tryggingum hf. til réttargæslu (Einar Brynjarsson lögmaður)

Fasteignasali og fasteignasala hans dæmd skaðabótaskyld vegna ráðstöfunar greiðslna af fjárvörslureikningi inn á reikning annars lögaðila en seljanda án þess að gera kaupendum grein fyrir að seljandi gæti ekki tekið við greiðslum inn á sinn eigin reikning, en fjármunirnir töpuðust allir.

Hæstiréttur birt 10. mars 2005

401/2004

Borgþór Jónasson og Brynja Kristjánsdóttir (Halldór Helgi Backman hrl) gegn Helgu Hrönn Þórsdóttur (Kristinn Hallgrímsson hrl)

H krafðist afsláttar af kaupverði íbúðar sem hún hafði keypt af BJ og BK vegna fúa í burðarvirki hennar og útveggjum. Talið var að H hefði mátt treysta því að forsvaranlega hefði verið staðið að viðgerðum og endurbótum á húsinu þegar það var á sínum tíma klætt og einangrað að utan. Hefði því ekki verið tilefni til þess að hún gripi til sérstakra ráðstafana til að kanna ástand útveggja og burðarvirkis hússins undir klæðningunni en lýsing á eigninni í söluyfirliti hafði ekki gefið sérstakt tilefni til slíkrar skoðunar. Var eignin því talin hafa verið gölluð við kaupin í skilningi kauparéttar þannig að H hefði öðlast rétt til afsláttar af kaupverði hennar. Ekki var fallist á að H hefði firrt sig rétti til að hafa uppi kröfur vegna galla á eigninni með kostnaðaruppgjöri eða fyrirvaralausri áritun á afsal sama dag, enda yrði að leggja til grundvallar að hún hefði ekki orðið vör við gallana fyrr en rúmlega tveimur árum eftir kaupin. Hafði H gert BJ og BK þá viðvart og boðað að hún myndi hafa uppi kröfur af því tilefni. Þá var ekki var talið að krafa H væri fallin niður vegna tómlætis, enda þótt óþarfur dráttur hefði orðið á frekari aðgerðum af hennar hálfu til að halda fram rétti sínum, en tæpt ár leið frá því að BJ og BK brugðust við tilkynningu H um gallana þar til hún beiddist dómkvaðningar matsmanns og aftur sextán mánuðir frá því að matsgerð lá fyrir þar til mál var höfðað. Var BJ og BK gert að greiða H 650.000 krónur.