Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-6410/2007:

D Ó M U R

máli nr. E-6410/2007:

Árni Reynir Alfredsson

(Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl)

gegn

Mest ehf

(Guðrún Björk Bjarnadóttir hdl)

Orlof. Skaðabætur. Sýkna. Uppsagnarfrestur. Uppsögn. Vinnulaunamál.

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda sem krafði stefnda um greiðslu launa vegna ólögmætrar uppsagnar í fæðingarorlofi.

Mál þetta, sem dómtekið var hinn 8. janúar sl., að loknum munnlegum málflutningi, var höfðað fyrir dómþinginu af Árna Reyni Alfredssyni, á hendur Mest ehf., með stefnu birtri hinn 22. september 2007.

Endanlegar dómkröfur stefnanda eru þær, að stefndi verði dæmdur til þess að greiða honum 1.121.607 krónur, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 1. október 2007 af 339.570 krónum til 1. nóvember 2007, en af 679.140 krónum frá þeim degi til 1. desember 2007, en af 1.121.607 krónum frá þeim degi til greiðsludags.  Jafnframt krefst stefnandi þess, að viðurkenndur verði réttur hans til launa frá stefnda í mars, apríl og maí 2008, vegna ólögmætrar uppsagnar frá störfum hjá stefnda.  Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda, að teknu tilliti til virðisaukaskattsskyldu stefnanda.        Dómkröfur stefnda eru þær, að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda og stefnandi dæmdur til þess að greiða honum málskostnað að skaðlausu.

Gætt var ákvæða 115. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, áður en dómur var kveðinn upp.

II

Hinn 15. júlí 2005 skrifuðu aðilar undir tímabundinn ráðningarsamning, til þriggja mánaða og hóf stefnandi, sem er grafískur hönnuður og félagsmaður í Félagi bókargerðarmanna, störf hjá stefnda hinn 1. september 2005.  Var stefnandi ráðinn í starf markaðsfulltrúa og var starfssvið hans hönnun auglýsinga- og kynningarefnis, umsjón með heimasíðu, samskipti við auglýsingastofur, prentsmiðjur og fjölmiðla.  Hinn 3. janúar 2006 skrifuðu aðilar undir nýjan ráðningarsamning, þar sem stefnandi var fastráðinn og skyldi hann gilda frá 1. desember 2005.

Stefnandi tilkynnti um töku fæðingarorlofs í janúar 2007 og skyldi fyrsti hluti feðraorlofs tekinn í júlí 2007, en tveir síðustu mánuðir teknir í janúar og febrúar 2008.  Staðfesting atvinnurekanda á tilkynningunni er undirrituð 4. janúar 2007.  Stefnandi var, með samþykki stefnda, í orlofi í apríl 2007 sem síðan var framlengt fram í maí 2007.

Stefndi kveður, að framkvæmdastjóri stefnda hafi, í marsmánuði 2007, ákveðið að breyta markaðssviði fyrirtækisins.  Hafi verið ákveðið að draga úr markaðssetningu í blöðum og fjölmiðlum.  Samningur hafi verið gerður við auglýsingastofuna EnnEmm ehf. hinn 13. apríl 2007.  Í samningnum sé innifalin ráðgjöf við stefnumótum og framkvæmd markaðs- og auglýsingamála fyrir stefnda ásamt daglegri umsjón sem unnin sé í samstarfi við markaðsstjóra Mest.  Einnig sé innifalin öll vinna starfsmanna stofnunar við gerð auglýsinga- og kynningarefnis Mest.  Á auglýsingastofunni séu starfandi yfir 20 grafískir hönnuðir auk þess sem stofan búi yfir mikilli faglegri og sérhæfðri þekkingu á íslenskum auglýsingamarkaði.  Fyrir þessa þjónustu auglýsingastofunnar greiði stefndi ákveðið gjald á mánuði.  Hafi stefndi talið að með svokallaðri útvistun markaðsmála fengi fyrirtækið meiri og betri þjónustu fyrir minni kostnað.

Eftir að þessi samningur hafi verið gerður hafi verið ljóst að ekki væri lengur þörf fyrir að hafa grafískan hönnuð í fullu starfi hjá stefnda auk markaðsstjórans.  Markaðsstjóri stefnda, sem áður hafi verið yfirmaður stefnanda og sem skrifað hafi undir samstarfssamninginn við auglýsingastofuna, annist dagleg samskipti við hana.

Með uppsagnarbréfi, dagsettu 31. maí 2007, var stefnanda sagt upp störfum hjá stefnda frá og með þeim degi.

Aðila greinir á um hvaða kjarasamningur gildi um réttindi stefnanda.  Stefnanda var sagt upp störfum með uppsagnarfresti samkvæmt kjarasamningi Félags bókagerðarmanna og Sambands atvinnulífsins.  Samkvæmt grein 8.8.1. í kjarasamningnum sé uppsagnarfrestur eftir 3 mánaða samfellt starf hjá sama atvinnurekanda, einn mánuður miðað við mánaðamót og hækki upp í 2 mánuði eftir tveggja ára samfellt starf.  Samkvæmt þessu hafi uppsagnarfrestur stefnanda því verið einn mánuður.  Í samtali yfirmanns stefnanda við stefnanda þegar stefnanda hafi verið afhent uppsagnarbréfið hafi verið ákveðið að veita honum eins mánaðar uppsagnarfrest í viðbót.  Hafi það verið gert umfram skyldu kjarasamninga, eingöngu til að koma betur til móts við stefnanda.  Í samræmi við þetta hafi verið handskrifað á uppsagnarbréfið: „Við þetta bætist 1 mánuður skv. samkomulagi.“

Með bréfi, dagsettu 7. júní 2007, mótmælti lögmaður stefnanda uppsögninni sem ólögmætri vegna áskilnaðar 30. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingarorlof, um rökstuðning uppsagnar.  Í framhaldi af því dró stefndi uppsögnina frá 31. maí 2007 til baka með bréfi, dagsettu 13. júní 2007.  Í sama bréfi var stefnanda sagt upp störfum á ný frá og með næstu mánaðamótum með eins mánaða uppsagnarfresti.

Í uppsagnarbréfinu er eftirgreindur rökstuðningur fyrir uppsögninni:  „Ástæða uppsagnarinnar, sbr. áskilnað 30. gr. fæðingarorlofslaga, eru skipulagsbreytingar innan markaðsdeildarinnar.  Stöðugildi þitt hefur verið lagt niður og mun hönnun auglýsinga og annarra tengdra verkefna hér eftir verða útvistuð og í höndum EnnEmm auglýsingastofu, en þú varst eini starfsmaðurinn sem áður sinntir þessu starfi.

Ákvörðun þessi er tekin af faglegum og rekstrarlegum sjónarmiðum.  Með þessu mun MEST fá aðgang að yfir 20 grafískum hönnuðum sem starfa hjá EnnEmm auk faglegrar og sérhæfðar þekkingar á íslenskum auglýsingamarkaði sem þar er innan húsa.  Uppsögn þín tengist því á engan hátt áður tilkynntu fæðingarorlofi.“

III

Stefnandi byggir kröfu sína á því, að hann eigi rétt til launa út það tímabil sem hann njóti verndar gegn uppsögnum í starfi, á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof.

Ráðningarsamningur hafi stofnast milli hans og stefnda, sem hafi verið rift með ólögmætum hætti, sbr. almennar reglur samningaréttarins um skuldbindingargildi samninga, svo og reglna vinnuréttarins um ráðningarsamband.

Stefnandi hafi verið í fæðingarorlofi þegar honum hafi borist uppsögnin. Hann njóti því verndar gegn uppsögnum atvinnurekanda með vísan til 30. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, en þar segi:  „Óheimilt er að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs skv. 9. eða 26. gr. eða er í fæðingar- eða foreldraorlofi nema gildar ástæður séu fyrir hendi og skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni.“

Samkvæmt ákvæðinu njóti stefnandi ekki einungis verndar gegn uppsögnum á meðan hann sé í fæðingarorlofi heldur einnig allt til þess tíma að hann hefur að fullu tekið út fyrirhugað fæðingarorlof.  Því sé óheimilt að segja honum upp með þeim hætti sem gert hafi verið og njóti hann verndar gegn uppsögnum þar til hann hafi að fullu tekið út sitt fæðingarorlof, eða allt til 1. mars 2008.  Þá taki við þriggja mánaða uppsagnarfrestur samkvæmt kjarasamningi, en kjarasamningur Félags bókagerðarmanna fyrir grafíska hönnuði kveði á um þriggja mánaða uppsagnarfrest samkvæmt gr. 1.3. í samningnum.

Stefnandi hefur sundurliðað kröfu sína þannig:

Bætur sem nemi launum sept.´07-maí´08 339.570 x 7                kr. 2.376.990 10,17% orlof á kr. 2.376.990                                                     kr. 241.740 Desemberuppbót 7/12 af kr. 47.400                                           kr. 27.650 Orlofsuppbót 7/12 af kr. 17.400                                                 kr. 10.150 Framlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð 8% af 2.618.730            kr. 209.498 4% framlag af 2.618.730 í Lífsval, séreignasjóð                       kr. 104.747 Samtals                                                                                       kr. 2.960.777 Við aðalmeðferð málsins féll lögmaður stefnanda frá kröfum vegna launa í mars, apríl og maí 2008, sem og kröfu um greiðslu lífeyrissjóðsiðgjalds og gjalds í séreignalífeyrissjóð.

Krafist sé launa fyrir september til desember 2007 að báðum mánuðum meðtöldum.  Áætlað sé að stefnandi verði í fæðingarorlofi í janúar og febrúar 2008, en áfram sé krafið um laun vegna mars til maí 2008, sem séu uppsagnarmánuðir stefnanda samkvæmt kjarasamningum.  Samtals séu þetta 7 mánuðir.  Gert sé ráð fyrir óbreyttri launafjárhæð vegna alls þess tíma.

Krafist sé 10,17% orlofs ofan á laun, en það sé lágmarksorlof samkvæmt ákvæðum orlofslaga nr. 30/1987.

Krafist sé desemberuppbótar samkvæmt 9. kafla kjarasamnings og orlofsuppbótar samkvæmt 8. kafla kjarasamnings, og sé krafist hlutfallslegrar greiðslu miðað við þann tíma sem launa sé krafist fyrir, 7/12 af fullri greiðslu.

Krafist sé framlags atvinnurekanda í lífeyrissjóð, 8% samkvæmt lögum um starfsemi lífeyrissjóða.  Einnig sé krafist 4% framlags í séreignasjóð samkvæmt grein 11.2 í kjarasamningi, svo og ákvæðum í ráðningarsamningi.

Krafist sé dráttarvaxta af launum, eins og þau eigi að greiðast á hverjum gjalddaga og til greiðsludags.

Um lagarök að öðru leyti vísar stefnandi til reglna samningaréttar og vinnuréttar.

Kröfu um dráttarvexti byggir stefnandi á lögum nr. 38/2001.

Kröfu um málskostnað byggir stefnandi á 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.

Kröfu um virðisaukaskatt á málflutningsþóknun byggir stefnandi á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

IV

Stefndi byggir sýknukröfu sína á því, að stefnandi hafi þegar fengið greidd þau laun sem honum beri að fá greidd og eigi engan rétt til frekari greiðslna hvorki á grundvelli ráðningarsamnings né kjarasamnings.  Stefnandi hafi fengið greidd laun í uppsagnarfresti í samræmi við uppsagnarbréf stefnda frá 13. júní 2007 og gildandi kjarasamning Félags bókagerðarmanna og Samtaka atvinnulífsins.

Uppsögn stefnda á ráðningarsamningi stefnanda með bréfi, dagsettu 13. júní 2007, hafi á allan hátt verið lögmæt og breyti þar engu um að stefnandi hafi tilkynnt um töku fæðingarorlofs, sem hann hafi átt eftir að taka út að hluta á þeim tímapunkti.

Eins og skýrlega komi fram í 30. gr. fæðingarorlofslaga nr. 95/200 sé óheimilt að segja starfsmanni upp vegna þess að hann hafi tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingarorlofs, nema gildar ástæður séu fyrir hendi og skuli þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni.  Uppsögn stefnanda tengist á engan hátt þeirri staðreynd að hann hafi tilkynnt um töku fæðingarorlofs.  Að baki uppsögn stefnda hafi verið gildar ástæður, sem ekki hafi tengst honum persónulega heldur hafi verið um endurskipulagningu fyrirtækisins að ræða, þar sem þau verkefni sem hann hefði sinnt, sem grafískur hönnuður, hafi verið færð annað, út úr fyrirtækinu sjálfu.  Hafi þetta verið gert í hagræðingarskyni, en stjórnendur fyrirtækisins hafi talið að með því að færa verkefnin, sem tengst hafi markaðs- og kynningarmálum út úr fyrirtækinu væru þeir að fá aðgang að fjölda hæfra grafískra hönnuða og meiri fagþekkingu og gæði í starfi, en þeir hafi getað fengið með einum starfsmanni.  Þau atriði sem hér séu rakin sem ástæða uppsagnarinnar hafi einnig skýrlega verið tilgreind í uppsagnarbréfinu sjálfu, frá 13. júní 2007.  Kröfum 30. gr. fæðingarorlofslaga hafi þar með verið fullnægt.  Hafa verði í huga að með ákvæði 30. gr. fæðingarorlofslaga sé verið að víkja frá þeirri meginreglu íslensks vinnuréttar, sem myndi grundvöll að hinum sveigjanlega íslenska vinnumarkaði, að heimilt sé að segja starfsfólki upp störfum án þess að gefa upp ástæður uppsagnarinnar.  Verði að túlka slík undantekningarákvæði þröngt.  Önnur niðurstaða í máli þessu myndi í raun þýða að 30. gr. fæðingarorlofslaga hefði í för með sér allt að 18 mánaða uppsagnarbann.  Slík niðurstaða sé óviðunandi og hafi það alls ekki verið ætlan löggjafans, eins og sjá megi af orðalagi ákvæðisins. sjálfs.

Markmið 30. gr. fæðingarorlofslaga sé að koma í veg fyrir að fyrirtæki segi upp starfsfólki gagngert vegna þess að það sé að fara í fæðingarorlof, sem oftast hafi í för með sér óhagræði fyrir viðkomandi fyrirtæki.  Markmið þetta komi skýrlega fram í orðalagi greinarinnar sjálfrar.  Ekkert slíkt hafi átt við varðandi uppsögn stefnda, heldur hafi uppsögnin eingöngu verið byggð á faglegu mati stjórnenda stefnda með hagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi.  Það komi uppsögn ráðningarsamnings stefnanda ekkert við að hann hafi verið búinn að tilkynna um töku fæðingarorlofs.

Í stefnu sé því haldið fram, að uppsagnarfrestur sé 3 mánuðir og er þar vísað til kjarasamnings milli Félags bókagerðarmanna og Sambands íslenskra auglýsingastofa.  Sá kjarasamningur hafi ekki gildi hvað varði kjör stefnanda, þar sem stefndi sé ekki í Sambandi íslenskra auglýsingastofa.  Hins vegar eigi stefndi aðild að Samtökum atvinnulífsins sem hafi gildan kjarasamning við Félag bókagerðarmanna.  Þar sem samtök atvinnulífsins séu stærstu íslensku atvinnurekendasamtökin og kjarasamningur þeirra við Félag bókagerðarmanna sé almennur kjarasamningur fyrir þá aðila sem í því stéttarfélagi séu, og starfi á almennum vinnumarkaði, sé hann rétt viðmið varðandi réttindi og skyldur stefnanda og stefnda um atriði eins og lengd uppsagnarfrests.

Stefndi mótmælir sérstaklega öllum kröfum um vexti og dráttarvexti samkvæmt lögum nr. 38/2001.

V

Ágreiningur aðila lýtur að lögmæti uppsagnar stefnanda hjá stefnda.  Eins og að framan hefur verið rakið var stefnandi í sumarorlofi er honum var sagt upp störfum.  Hann hafði þá tilkynnt stefnda um töku fæðingarorlofs í júlí 2007 og janúar og febrúar 2008.  Þessi uppsögn var síðan dregin til baka af stefnda og stefnanda sagt að nýju upp störfum í júní 2007, þar sem skriflegur rökstuðningur fylgdi uppsögninni.  Uppsögnin tók gildi 1. júlí 2007 og var stefnanda veittur tveggja mánaða uppsagnarfrestur, umfram skyldu að mati stefnda, þar sem stefnandi ætti einungis rétt á eins mánaðar uppsagnarfresti.

Stefnandi gaf skýrslu fyrir dóminum.  Hann kvaðst hafa séð um allar auglýsingar hjá stefnda, en EnnEmm hafi séð um stærri verkefni.  Hann kvaðst hafa óskað eftir því í janúar 2007 að fara í fæðingarorlof í júní 2007 og janúar og febrúar 2008. Hann hafi eignast dreng í lok mars árið 2007 og farið í sumarorlof í apríl 2007, en orlofið hafi síðan verið framlengt um einn mánuð.  Hann kvaðst hafa átt í miklum samskiptum við yfirmann sinn, Elvar Bjarka Helgason, meðan hann var í orlofinu, en hann hafi sinnt aukaverkefnum við gerð bæklinga vegna sýningar, í apríl. Einnig hafi hann komið til vinnu 16. maí, en aldrei hafi verið talað um það að auglýsingastofan EnnEmm yfirtæki verkefni hans.  Hann kvaðst fyrst hafa fengið að vita, að auglýsingastofan EnnEmm yfirtæki verkefni hans, 31. maí þegar honum hafi verið afhent uppsagnarbréf.  Hann hafi fengið þær skýringar að verið væri að hagræða og spara hjá fyrirtækinu.  Hann kvað uppsögnina hafa verið mikið áfall fyrir sig og fjölskyldu sína.  Við afhendingu uppsagnarbréfsins hafi verið bætt við einum mánuði í uppsagnarfrest.  Ekki hafi verið rætt um að færa hann til í starfi innan fyrirtækisins.  Hann kvaðst hafa hafið MBA nám við Háskóla Íslands um haustið.  Hann kvaðst ekki hafa íhugað að leita sér að annarri vinnu.  Hins vegar hafi honum verið boðin önnur störf með sambærilegum launum, en honum hafi fundist svo illa brotið á rétti sínum, að hann hafi ákveðið að taka ekki vinnunni.

Hjalti Már Bjarnason, forstjóri stefnda, gaf og skýrslu við aðalmeðferð málsins.  Hann kvaðst hafa tekið við starfinu í febrúar 2007.  Á sama tíma hafi stefndi verið að kaupa annað fyrirtæki og ganga í gengum endurfjármögnun.  Í aprílmánuði 2007 hafi enn verið keypt annað félag.  Þetta hafi allt verið skuldsettar yfirtökur og þörf á hagræðingu í rekstri á mörgum vígstöðvum.  Hann hafi viljað beita annarri markaðssetningu, svokallaðri maður á mann, og nýta til þess sölumenn fyrirtækisins.  Þetta hafi þýtt að ákveðnar breytingar hafi orðið að gera á markaðsdeild fyrirtækisins sem og öðrum deildum þess.  Starf stefnanda, sem grafískur hönnuður, hafi verið lagt niður og starfi hans úthýst, eins og hann komst að orði, til auglýsingastofunnar EnnEmm.  Hafi auglýsingastofan tekið að sér að sinna verkefninu fyrir ákveðið gjald.  Samningurinn hafi reynst mjög vel og sé rekstrarlega hagkvæmur.  Hann kvað það ekki hafa skipt máli um uppsögnina að stefnandi hafði tilkynnt um töku foreldraorlofs, en það hafi gert ákvörðunina erfiðari.  Ákvörðunin hafi einungis verið tekin á rekstrarlegum forsendum.  Margir aðrir starfsmenn fyrirtækisins hafi tekið fæðingarorlof og m.a. hann sjálfur.

Elvar Bjarki Helgason, markaðsstjóri hjá stefnda, gaf og skýrslu við aðalmeðferðina.  Kvaðst hann hafa farið á fund með nýjum forstjóra stefnda til að ákveða hvað mætti betur fara og hvar mætti hagræða.  Ákveðið hefði verið að breyta markaðsmálum fyrirtækisins og virkja sölumenn og sölustjóra til að hafa áhrif á söluna.  Jafnframt hefði verið ákveðið að segja stefnanda upp störfum, en ákveðið að segja honum ekki upp fyrr en eftir að hann hefði eignast barnið sem von var á.  Seinni part í apríl hafi stefnandi beðið um að breyta fæðingarorlofi sínu.  Á þeim tímapunkti hafi stefndi ætlað að segja honum upp störfum, en stefnandi hafi komið með konu og nýfætt barn sitt svo þeim hafi ekki þótt við hæfi að gera það þá.  Hann kvað að handskrifað hafi verið aukamánuður inn á uppsagnarbréfið, þegar það var afhent, þar sem honum hafi ekki þótt við hæfi að uppsagnarfrestur væri einn mánuður.  Hann kvað erfitt að sjá hvort ný markaðssetning hafi skilað fyrirtækinu auknum arði.

Hrafnhildur Harðardóttir, starfsmannastjóri hjá stefnda, gaf og skýrslu.  Hún kvað að frestað hafi verið að segja stefnanda upp störfum í apríl, þar sem það hafi ekki þótt viðeigandi.  Ákveðið hafi verið að bæta við einum mánuði, þar sem í kjarasamningi sem eigi við um stefnda sé gert ráð fyrir eins mánaðar uppsagnarfresti.  Hún kvað starfsmenn stefndu aldrei hafa litið svo á að verið væri að segja stefnanda upp í fæðingarorlofi og því hafi uppsögnin verið dregin til baka þegar það hafi orðið ljóst að þyrfti að rökstyðja uppsögnina.  Hún kvað, að alltaf hefði verið talað um að stefnandi væri í sumarorlofi fram til júní 2007.  Kvað hún stefnda vera aðila að Samtökum atvinnulífsins og farið sé eftir samningum sem séu við það félag.  Á þessum tíma hafi Samband íslenskra auglýsingastofa ekki verið aðili að þeim samtökum.  Aldrei hafi verið vísað til kjarasamnings Sambands íslenskra auglýsingastofa eða hafi sá samningur verið notaður, og stefnandi hafi aldrei miðað réttindi sín við þann samning.  Hins vegar hafi ekki verið tekið fram í ráðningarsamningi hvaða kjarasamningur gilti.

Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri EnnEmm, kom einnig fyrir dóminn og gaf skýrslu.  Hann kvað fyrirtæki sitt vinna alla grafíska hönnun og markaðsverkefni með stefnda.  Verkefnin sem unnin séu fyrir stefnda séu að mestu leyti þau sömu og áður en umræddur samningur var gerður.  Grafískir hönnuðir á EnnEmm séu 16 talsins.  Kvað hann gríðarlega eftirspurn vera eftir grafískum hönnuðum.

Í lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, er kveðið á um það í 29. gr. að ráðningarsamningur milli starfsmanns og vinnuveitanda haldist óbreyttur í fæðingar- og foreldraorlofi.  Þá segir í 2. mgr. 29. gr. að starfsmaður skuli eiga rétt á að hverfa aftur að starfi sínu að loknu fæðingar- og foreldraorlofi.  Sé þess ekki kostur skuli hann eiga rétt á sambærilegu starfi hjá vinnuveitanda í samræmi við ráðningarsamning.  Í 30. gr. laga er ákvæði um vernd gegn uppsögnum, en þar segir, að óheimilt sé að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs skv. 9. gr. eða 26. gr. eða er í fæðingar- eða foreldraorlofi nema gildar ástæður séu fyrir hendi og skuli þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni.  Sama gildir um uppsagnir þungaðrar konu og konu sem nýlega hefur alið barn.

Óumdeilt er að stefnandi hafði tilkynnt um töku fæðingarorlofs þegar honum var sagt upp störfum.  Samkvæmt þessum ákvæðum laganna var stefnda óheimilt að segja stefnanda upp störfum, nema gildar ástæður væru fyrir hendi.  Í rökstuðningi með uppsögninni er tekið fram af stefnda, að ástæða uppsagnarinnar séu skipulagsbreytingar innan markaðsdeildar.  Staða hans hafi verið lögð niður og muni fyrirtækið EnnEmm hér eftir annast hönnun auglýsinga og önnur tengd verkefni.  Stefndi kveður ákvörðunina hafa verið tekna á faglegum og rekstrarlegum grunni og tengist á engan hátt áður tilkynntu fæðingarorlofi.  Þegar litið er til þess sem að framan hefur verið rakið hefur ekki á viðhlítandi hátt verið sýnt fram á að uppsögn stefnda og flutningur verkefna, sem hann hafði með höndum fyrir stefnda, til auglýsingastofunnar EnnEmm, hafi verið nauðsynleg ráðstöfun til hagræðingar í rekstri fyrirtækisins, en stefnandi var eini starfsmaðurinn sem sagt var upp störfum.  Þykir stefndi því ekki hafa sýnt fram á að veigamikið tilefni hafi verið fyrir uppsögn stefnanda þannig að fullnægt hafi verið áskilnaði um gildar ástæður uppsagnar í 30. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.  Ber því að líta svo á að stefnandi hafi verið verndaður fyrir uppsögn úr starfi fram til þess að hann hafði lokið töku fæðingarorlofs, eins og tilkynnt hafði verið.  Verður því fallist á með stefnanda að stefnda hafi verið óheimilt að segja honum upp störfum.

Samkvæmt 31. gr. laganna nr. 95/2000 varðar það skaðabótaskyldu samkvæmt almennum reglum brjóti vinnuveitandi gegn ákvæðum laganna.  Fyrir liggur að stefnandi hefur verið í háskólanámi frá því haustið 2007.  Þá liggur fyrir að stefnanda voru boðin störf með sambærilegum launum, sem hann kaus að taka ekki þar sem hann taldi stefnda hafa brotið svo freklega á sér rétt.  Einnig kom fram við aðalmeðferð málsins að mikil eftirspurn er eftir grafískum hönnuðum á vinnumarkaði.  Þegar þetta er virt verður ekki talið að stefnandi hafi reynt að takmarka tjón sitt eins og honum bar að gera, samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttarins.  Samkvæmt því hefur stefnandi ekki orðið fyrir tjóni sem stefndi beri skaðabótaábyrgð á.  Ber því að sýkna stefnda af kröfum stefnanda um greiðslu skaðabóta.

Stefnandi fékk greidd laun í tvo mánuði í uppsagnarfresti.  Stefndi er aðili að Samtökum atvinnulífsins en er ekki aðili að Sambandi íslenskra auglýsingastofa. Fer því um réttarstöðu stefnanda eftir þeim samningi, enda ekkert fram komið að aðilar hafi samið um annað sín á milli.  Samkvæmt gr. 8.8.1 í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Félags bókagerðarmanna, átti stefnandi rétt á eins mánaðar uppsagnarfresti, en eins og áður greinir fékk stefnandi greidd laun í tvo mánuði í uppsagnarfresti.  Á stefnandi því ekki rétt á frekari launum í uppsagnarfresti.

Þegar allt framangreint er virt ber því að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda og hafna viðurkenningarkröfu hans.

Þrátt fyrir þessa niðurstöðu þykir rétt að hvor aðila beri sinn kostnað af málinu.

Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð :

Stefndi, Mest ehf., er sýkn af kröfum stefnanda, Árna Reynis Alfredssonar.

Málskostnaður fellur niður.

Hervör Þorvaldsdóttir