Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 950/2017"

6 dómar fundust

Landsréttur birt 13. febrúar 2025

876/2023

Hópbílar ehf og Reykjavík Sightseeing Invest ehf (Hannes J. Hafstein lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

H og R höfðuðu mál á hendur I og kröfðust þess annars vegar að I yrði gert að greiða R nánar tiltekna fjárhæð og hins vegar að rekstrarleyfissamningi H og I um aðstöðu hópferðabifreiða við flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík yrði breytt og I gert að greiða H nánar tiltekna fjárhæð í samræmi við þá breytingu. Ágreiningur aðila laut að möguleikum annarra aðila en þeirra tveggja sem hlutskarpastir urðu í útboði að halda uppi áætlunarferðum frá flugstöðinni af svokölluðum fjarstæðum og gjaldtöku af notkun þeirra. H og R byggðu einkum á því að I hefði ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt rekstrarleyfissamningi og því hefðu þær forsendur fyrir rekstrinum, sem þeir töldu sig hafa mátt með réttu gefa sér, ekki gengið eftir. Landsréttur taldi á hinn bóginn að ekkert lægi fyrir um það að I hefði gengist undir skuldbindingu sem laut að fjárhæð þess gjalds sem innheimt yrði vegna notkunar á fjarstæðum eða því hvernig gjaldtöku yrði að öðru leyti háttað. Var það því niðurstaða Landsréttar að I hefði hvorki vanefnt samninginn né sýnt af sér saknæma háttsemi í ákvörðunum um þau atriði sem bótakröfur H og R voru reistar á. Þá féllst Landsréttur jafnframt ekki á með H að efni væru til að breyta samningnum á þann veg sem hann gerði kröfu um en af því leiddi að þær fjárkröfur sem H hafði uppi í málinu samhliða kröfunni komu ekki til álita. Öllum málsástæðum og kröfum H og R var þannig hafnað og hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu I.

...Þegar útboðið fór fram í maí 2017 hafði reglugerð nr. 950/2017 um sérleyfissamninga ekki verið sett, sbr. 3. mgr. 12. gr. laga um opinber innkaup en stefndi hefur lagt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2023

E-1858/2021

Hópbílar ehf og Airport Direct ehf (Hannes J. Hafstein lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Stefnendur kröfðust skaðabóta úr hendi stefnda vegna tjóns sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir við framkvæmd rekstrarleyfissamnings sem fólst í hagnýtingu svokallaðra nærstæða hópferðabifreiða við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og aðstöðu til miðasölu innandyra í flugstöðinni. Byggt var meðal annars á því að stefndi hafði valdið þeim tjóni með saknæmum hætti með því að koma ekki í veg fyrir að samkeppnisaðili gæti nýtt sér svonefnd fjarstæði við flugstöðina til áætlunarferða með því að hafa ekki nógu hátt gjald fyrir afnot af síðarnefndu stæðunum. Þar sem sök taldist ekki sönnuð og tjón ósannað var stefndi sýknaður af þessum kröfum. Til vara krafðist stefnandinn Hópbílar ehf. þess að gerðar yrðu breytingar á samningi aðila um aðstöðu stefnanda á svokölluðum nærstæðum þannig að gjald fyrir aðstöðuna yrði lægra en samið var um og að gildistíma yrði samningsins breytt. Ekki var fallist á að skilyrði væru uppfyllt til þess að breyta samningnum, sem byggði á tilboði stefnanda við útboð, og var stefndi þannig sýknaður af öllum kröfum þessa stefnanda.

...Þegar útboðið fór fram í maí 2017 hafði reglugerð nr. 950/2017 um sérleyfissamninga ekki verið sett, sbr. 3. mgr. 12. gr. laga um opinber innkaup. Stefndi byggir þó á...

Landsréttur birt 24. júní 2022

745/2021

Ísorka ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Orku náttúrunnar ohf. (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður, Kristín Sólnes lögmaður, 3. prófmál)

Deilt var um hvort ógilda bæri úrskurð kærunefndar útboðsmála 11. júní 2021 í máli nr. 44/2020. ON ohf. varð hlutskarpastur í útboðinu sem R stóð að og tókust samningar þeirra á milli um uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík. Beindi Í ehf. kæru til kærunefndar útboðsmála af því tilefni. Með fyrrgreindum úrskurði var samningurinn lýstur óvirkur og lagt fyrir R að bjóða verkið út að nýju og R gerð stjórnvaldssekt, auk þess sem viðurkennd var skaðabótaskylda R gagnvart Í ehf. Í hinum áfrýjaða dómi var fallist á kröfur ON ohf. um ógildingu fyrrgreinds úrskurðar vegna fjölþættra annmarka á úrskurðinum um form og efni. Í dómi Landsréttar var rakið að Í ehf. hefði breytt kröfugerð sinni fyrir kærunefndinni 8. febrúar 2021 þegar fjórir mánuðir voru liðnir frá því að Í ehf. setti fram upprunalega kröfugerð sína í kæru 8. október 2020. Gerði Í ehf. þá fyrst kröfu um að samningurinn yrði lýstur óvirkur, með eða án annarra viðurlaga, samkvæmt 115. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Þá kom fram að samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 106. gr. sömu laga skuli bera skriflega kæru undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann teldi brjóta gegn réttindum sínum. Þó væri heimilt samkvæmt 2. málslið sömu lagagreinar að bera kröfu um óvirkni samnings undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Krafa um óvirkni yrði þó ekki höfð upp þegar sex mánuðir væru liðnir frá gerð samnings, sbr. 3. málslið 1. mgr. 106. gr. laganna. Þá sagði að um túlkun 1. mgr. 106. gr. væri til þess að líta að úrskurður um óvirkni samnings samkvæmt 115. gr. laganna hefði þau réttaráhrif að réttindi og skyldur aðila samkvæmt aðalefni samnings féllu niður. Slíkur úrskurður væri í eðli sínu mjög íþyngjandi fyrir hlutaðeigandi. Yrði gildissviði ákvæðisins því ekki gefið víðtækara gildissvið en skýrlega megi ráða af orðalagi þess. Var lagt til grundvallar að frestur Í ehf. til að setja fram kröfu um óvirkni samningsins hefði verið liðinn 8. febrúar 2021. Kærunefndinni hafi því verið óheimilt að taka þá kröfu til meðferðar. Þar sem niðurstaða nefndarinnar hafi verið að taka kröfuna til greina væri slíkur annmarki á málsmeðferð hennar að óhjákvæmilegt væri að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms.

...Því félli samningurinn ekki undir reglugerð nr. 950/2017, og var vísað í þeim efnum til 2. gr. reglugerðarinnar. Áréttað var að af þeirri ástæðu og því að innkaupin hefðu...

Landsréttur birt 4. mars 2022

104/2021

Allrahanda GL ehf (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður, Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

A ehf. höfðaði mál gegn I ohf. og krafðist þess aðallega að viðurkennd yrði með dómi skaðabótaskylda I ohf. vegna missis hagnaðar sem A ehf. taldi sig hafa notið ef ekki hefði komið til ákvörðunar I ohf. um að hafna tilboði A ehf. í útboði um aðgang að aðstöðu hópferðabifreiða við flugstöð Leifs Eiríkssonar og semja við H hf. Til vara krafðist A ehf. skaðabóta úr hendi I ohf. vegna tjóns sem hefði hlotist af undirbúningi og þátttöku í útboðinu. Deildu málsaðilar um það hvort I ohf. hefði gætt réttra reglna við framkvæmd útboðsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæðum laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, að undanskildum ákvæðum kafla XI og XII, yrði ekki beitt um útboðsferlið. Þá vísaði rétturinn til þess að í lögum væri ekki að finna ákvæði sem með einhverjum hætti vikju til hliðar almennum reglum um framkvæmd útboða samkvæmt lögum nr. 65/1993 um framkvæmd útboða. Var ákvæðum laga nr. 65/1993 því beitt við úrlausn á ágreiningi málsaðila. Í dóminum kom fram að sá sem býður út rekstur á þjónustu ákveði hvort og að hve miklu leyti kröfur til tæknilegra eiginleika þjónustu séu gerðar að hæfisskilyrðum. Krafa í útboðskilmálum um að bjóðandi skyldi hafa yfir að ráða miðstöð eða aðalstoppistöð hefði ekki verið gerð að hæfiskilyrði og var málsástæðum A ehf. um að I ohf. hafi borið að vísa frá tilboði H hf. hafnað. Þá var ekki talið að bjóðendur hefðu þurft að hafa tiltæka miðstöð eða aðalstoppistöð þegar tilboð voru gerð heldur væri nægjanlegt að hún væri til staðar þegar starfsemin hæfist. Þá taldi Landsréttur að þótt H hf. hafi samið við AD ehf. um að annast framkvæmd á þjónustunni bæri fyrrnefnda félagið ábyrgð á efndum samningsins gagnvart I ohf. Af þeim ástæðum hafi það ekki verið nauðsynlegt fyrir I ohf. að ganga sérstaklega úr skugga um það hvort AD ehf. uppfyllti hæfiskröfur greina 0.3.6.1 og 0.3.6.2 í útboðsskilmálum. Var I ohf. því sýknað af kröfum A ehf.

...Stefndi telur að auk þeirrar reglugerðar beri að byggja á reglugerð nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins en sú reglugerð hafi verið gefin...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2021

E-3872/2021

Orka náttúrunnar ohf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Ísorku ehf. (Jóhann Tómas Sigurðsson lögmaður) og Reykjavíkurborg (Kristín Sólnes lögmaður)

Úrskurður kærunefndar útboðsmála felldur úr gildi. Hann kvað á um óvirkni samnings stefnanda, sem hann hafði hlotið í kjölfar útboðs, auk annarra viðurlaga sem beindust að gagnaðila stefnanda. Talið var að kærunefndin hefði ekki gætt lögmæltra aðferða er málið var lagt í annan farveg en kæra kæranda gaf tilefni til. Þá hefði kærunefndinni borið að vísa málinu frá nefndinni þar sem kærufrestur hefði verið liðinn er kærandi gjörbreytti kröfugerð sinni auk þess sem útboðið sem um ræddi náði ekki þeirri lágmarksfjárhæð sérleyfissamninga sem áskilin var til að auglýsa þyrfti útboð á Evrópska efnahagssvæðinu eða í það minnsta að tilkynna samningsgerð án útboðs í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Þá var í raun einnig áhorfsmál hvort umþrættur samningur teldist vera sérleyfissamningur í skilningi reglugerðar.

...Því félli samningurinn ekki undir reglugerð nr. 950/2017, og var vísað í þeim efnum til 2. gr. reglugerðarinnar. Áréttað var að af þeirri ástæðu og því að innkaupin hefðu...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2021

E-2427/2019

Hópbifreiðar Kynnisferða ehf (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)
Lykilorð: Samningur. Útboð.

Stefnandi krafðist þess að gerðar yrðu breytingar á samningi aðila um aðstöðu stefnanda á svokölluðum nærstæðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þannig að gjald fyrir aðstöðuna yrði lægra en samið var um og að gildistíma yrði samningsins breytt. Ekki var fallist á að skilyrði væru uppfyllt til þess að breyta samningnum, sem byggði á tilboði stefnanda við útboð, og var stefndi sýknaður af öllum kröfum stefnanda.

...13/2017 og byggi á því að reglugerð nr. 950/2017 gildi um réttarsamband stefnanda og stefnda, m.a. vegna þess að rekstrarleyfissamningurinn hafi verið undirritaður eftir gildistöku reglugerðarinnar. Sýknukrafa...