Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 942/2002"

7 dómar fundust

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

880/2024

A (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg og VÍS tryggingum hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Málið varðaði kröfu A um viðurkenningu á skaðabótaskyldu R og V hf. vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir er hún renndi sér í rennibraut í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Ekki var ágreiningur um að A hefði tekist á loft er hún renndi sér niður, og þótti sannað að hún hefði orðið fyrir varanlegu líkamstjóni þegar hún lenti harkalega. Aftur á móti var ekki talið sýnt fram á að rennibrautin, eða leiktækið sem hún var hluti af, hefði haft sérstaka hættueiginleika eða að starfsmenn R hefðu sýnt af sér saknæmt aðgæslu- eða eftirlitsleysi sem hefði verið orsök tjóns áfrýjanda. Af því leiddi að tjón áfrýjanda hefði ekki verið að rekja til saknæmrar háttsemi R eða starfsmanna garðsins og voru R og V hf. því sýknaðir af kröfu A.

...þágildandi reglugerð nr. 942/2002). Ákvæðum þeirrar reglugerðar hafi verið fylgt í einu og öllu. 30 Stefndu byggja á að leikkastalinn hafi verið merktur þeim aldri sem hann hafi verið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2024

E-322/2024

A (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg og Vátryggingafélagi Íslands hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

Reykjavíkurborg og vátryggingafélag sýknuð af viðurkenningarkröfu konu sem slasaðist við að renna sér niður rennibraut í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík, þ.e. kröfu um að bótaskylda þessara aðila vegna slyssins væri viðurkennd.

...þágildandi reglugerð nr. 942/2002). Ákvæðum þeirrar reglugerðar hafi verið fylgt í einu og öllu. 30 Stefndu byggja á að leikkastalinn hafi verið merktur þeim aldri sem hann hafi verið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. maí 2024

E-3764/2023

A (Ólafur Örn Svansson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Hólmfríður K. Kjartansdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnandi varð fyrir slysi við vinnu sína í líkamsræktarstöð, en vinnuveitandi hans hafði keypt ábyrgðartryggingu hjá stefnda. Fallist var á kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda vegna afleiðinga slyssins, sem talið var að rakið yrði til vanrækslu sem vátryggingartaki bæri ábyrgð á við frágang búnaðar á vinnustaðnum.

...Til hliðsjónar um það hvað felist í reglubundnu eftirliti megi hafa reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, og verði ekki gerðar vægari kröfur...

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. apríl 2023

E-935/2022

A (Marlena Piekarska lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Stefán Björn Stefánsson lögmaður)

Viðurkenningu á skaðabótaábyrgð á líkamstjóni vegna vanbúnaðar í sleðabrekku hafnað.

...Jafnvel þótt talið yrði að reglugerð nr. 942/2002 ætti við í málinu sé á því byggt að stefnandi hafi ekki sýnt fram á að staðsetning staursins eða gerð hans...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júní 2018

E-2890/2017

Kristín Stefánsdóttir (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Vætti ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um bætur vegna slyss. Talið var að orsök slyssins væri ekki að rekja til atvika sem stefndi bæri ábyrgð á heldur óhappatilviks.

...Einnig sé byggt á reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Um vaxtakröfuna sé vísað til 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og um...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. maí 2014

E-456/2016

Signý Tindra Dúadóttir (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg (Guðjón Ármannsson hrl)

Krafist var viðurkenningar á bótaskyldu, vegna vinnuslyss sem starfsmaður frístundaheimilis í Reykjavík varð fyrir. Stefndu voru sýknaðir þar sem orsök slyssins var aðallega talin háttsemi stefnanda sjálfrar og óhappatilvik.

...91/2002, um hollustuhætti, reglugerð nr. 942/2002, um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, byggingarreglugerðar nr. 112/2012, reglugerðar nr. 581/1995, um húsnæði vinnustaða og reglugerðar...

Hæstiréttur birt 29. apríl 2010

526/2009

Dagmar Sif Ásgeirsdóttir (Kristján Stefánsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristín Edwald hrl)

D krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hennar til skaðabóta úr hendi R vegna tjóns sem hún varð fyrir í slysi á leikskólanum B árið 2002. Reisti D viðurkenningarkröfu sína á því að skaðabótaábyrgð hefði stofnast á tjóni hennar á grundvelli reglunni um vinnuveitandaábyrgð. Taldi D að dekkjaróla sú, sem hún slasaðist í, hefði verið vanbúin auk þess sem eftirlit með börnum á leikskólanum þann dag er slysið varð hefði verið ófullnægjandi. Þá hefði engin rannsókn farið fram á slysinu. Hæstiréttur taldi ósannað að gerð og búnaður dekkjarólunnar hefði verið þannig að saknæmt og ólögmætt gæti talist og að eftirliti starfsmanna á leikskólanum með börnunum hefði verið áfátt. Þó að R hefði ekki hlutast til um sérstaka rannsókn á slysinu var talið að atvik væru nægilega upplýst í málinu til þess að slá því föstu að um óhappatilvik hefði verið að ræða, sem hvorki yrði rakið til gerðar eða búnaðar dekkjarólunnar né saknæmrar og ólögmætrar háttsemi starfsmanna á leikskólanum. Var R því sýknuð af kröfu D í málinu.

...Það athugast þó að reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallartækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, sem vísað er til í héraðsdómi, hafði ekki öðlast gildi er slysið varð...