Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 93/1998"

6 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. október 2010

E-4975/2009

Ólafur Áki Ragnarsson (Jóhannes Stefán Ólafsson hdl) gegn Stefaníu Rósu Jóhannsdóttur (Steinn Finnbogason hdl) og Hilmari Gunnlaugssyni og Fastaust ehf. (Jón Jónsson hrl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Stefndu voru sýknuð af skaðabótakröfu stefnanda vegna ætlaðs tjóns af því að veiðiréttur í á fylgdi ekki jörðinni við sölu hennar.

...Á þessum tíma hafi einnig gilt reglugerð nr. 93/1998 um samninga um söluþjónustu fasteignasala og söluyfirlit. Samkvæmt reglugerðinni varði sektum að semja ekki söluyfirlit eða gera það með ófullnægjandi...

Hæstiréttur birt 25. september 2008

523/2007

Ingólfur Gissurarson og Valhöll fasteignasala hf (Ólafur Haraldsson hrl) gegn Elínu Viðarsdóttur, Gerd Hammarström (Þorsteinn Einarsson hrl) og Svanfríður Sigurþórsdóttir (Gísli Guðni Hall hrl)

Ingólfur Gissurarson og Valhöll fasteignasala hf. (Ólafur Haraldsson hrl.) gegn Elínu Viðarsdóttur og Gerd Hammarström (Þorsteinn Einarsson hrl.) og Svanfríður Sigurþórsdóttir (Gísli Guðni Hall hrl.) gegn Elínu Viðarsdóttur og Gerd Hammarström og til réttargæslu Ingólfi Gissurarsyni og Valhöll fasteignasölu hf. og Elín Viðarsdóttir og Gerd Hammarström gegn Svanfríði Sigurþórsdóttur Ingólfi Gissurarsyni og Valhöll fasteignasölu hf.

...54/1997 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu og reglugerð nr. 93/1998 um samninga um söluþjónustu fasteignasala og söluyfirlit. Þannig hafi stefndu, Ingólfi og Valhöll fasteignasölu hf., eða starfsmönnum hennar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júlí 2007

E-3996/2006

Elín Viðarsdóttir Gerd Hammerström (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Svanfríði Sigurþórsdóttur, Ingólfi Geir Gissurarsyni (Jónas Þór Guðmundsson hdl), Valhöll fasteignasölu hf (Ólafur Finnbogi Haraldsson hrl) og Svanfríður Sigurþórsdóttir (Þorsteinn Einarsson hrl)

Fallist á skaðabókakröfu kaupenda á hendur fasteignasölu og seljanda vegna galla á fasteign.

...54/1997 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu og reglugerð nr. 93/1998 um samninga um söluþjónustu fasteignasala og söluyfirlit.  Þannig hafi stefndu, Ingólfi og Valhöll fasteignasölu hf., eða starfsmönnum hennar...

Hæstiréttur birt 1. júní 2006

549/2005

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Löngustétt ehf (Hákon Árnason hrl)

Þegar L ehf. keypti fasteign af S ehf. árið 2000 lá fyrir að fasteignin var skráð 1798,2 m² hjá Fasteignamati ríkisins. Tæpum níu mánuðum síðar seldi L ehf. fasteignina til F ehf. og var stærðartilgreining hennar óbreytt. Síðar kom í ljós að Fasteignamat ríkisins hafði ekki skráð nýja stærðarútreikninga fasteignarinnar, sem bárust stofnuninni 1995, þar sem flatarmál hennar var tilgreint 1.527 m². L ehf. þurfti að greiða F ehf. 7.200.000 krónur í afslátt og málskostnað vegna þess að stærð fasteignarinnar reyndist minni sem þessu nam. L ehf. krafði Í um greiðslu sömu fjárhæðar í skaðabætur. Talið var félaginu hefði verið heimilt að beina kröfu sinni einungis að Í. Þá var ekki fallist á að það ætti að skipta máli þótt L ehf. kynni að hafa hagnast meira af endursölu fasteignarinnar en nam kröfufjárhæðinni. Fyrir lægi að Fasteignamat ríkisins hefði vanrækt skyldu sína samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1976 til að færa réttar upplýsingar um stærð fasteignarinnar í skrár sínar. Var fallist á að L ehf. ætti rétt á skaðabótum úr hendi Í af þessum sökum, í samræmi við kröfu félagsins, enda hefði verið afsakanlegt af fyrirsvarsmönnum þess að treysta á réttmæti skráðra upplýsinga um stærð fasteignarinnar hjá Fasteignamati ríkisins.

...Sý ehf., leitaði eftir upplýsingum þar, eins og honum bar að gera samkvæmt reglugerð nr. 93/1998 um samninga um söluþjónustu fasteignasala og söluyfirlit. Verður fallist á með stefnda að...

Hæstiréttur birt 8. desember 2005

483/2005

Anna Dóra Árnadóttir og Magnús Guðmundsson (Helgi Birgisson hrl) gegn Hrönn Óskarsdóttur, Jóhannesi Júlíusi Hafstein, Ólafi B. Blöndal og Fasteignasölunni fasteign.is ehf (enginn)

A og M keyptu fasteign af H og J en töldu hana gallaða og héldu eftir lokagreiðslu. H og J stefndu A og M til greiðslu eftirstöðva kaupverðs og höfðu hin síðarnefndu uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar á grundvelli hins ætlaða galla. A og M stefndu í sérstöku máli þeim H og J og kröfðust skaðabóta eða afsláttar af kaupverði vegna galla. Í sama máli stefndu þau einnig fasteignasalanum Ó og fasteignasölunni F til greiðslu bóta þar sem þau töldu fasteignasalann hafa sýnt vanrækslu við sölumeðferðina. Í síðara málinu kröfðust H, J, Ó og F frávísunar þess þar sem dómkröfur A og M væru þær sömu og hafðar væru uppi í fyrra málinu. Málin voru síðan sameinuð að því er virtist að ósk lögmanna og var þá fallið frá frávísunarkröfum. Dómur var kveðinn upp 7. nóvember 2005 þar sem A og M voru dæmd til að greiða þeim H og J eftirstöðvar kaupverðs fasteignarinnar að fullu en vísað var frá dómi af sjálfsdáðum þeim kröfum sem þau höfðu uppi í hinu síðara máli á hendur H, J, Ó og F á þeim grundvelli að gagnsök hefði verið höfðuð eftir lok frests sem kveðið er á um í lokamálslið 2. mgr. 28. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Kærðu A og M frávísunarþátt dómsins og var sá ágreiningur til umfjöllunar í málinu. Talið var að þegar af þeirri ástæðu að aðilar málanna tveggja hafi ekki verið þeir sömu hafi ekki verið uppfyllt skilyrði b. liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 91/1991 til sameiningar málanna í öndverðu og hefði héraðsdómara borið að gæta þessa af sjálfsdáðum. Var því talið óhjákvæmilegt að ómerkja af sjálfsdáðum meðferð málsins frá og með því þinghaldi sem það var sameinað hinu fyrra máli og lagt fyrir héraðsdómara að taka það til efnismeðferðar.

...54/1997 og reglugerð nr. 93/1998, um samninga um söluþjónsutu fasteignasala og söluyfirlit. Kröfu um vexti byggja stefnendur í gagnsök á 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001...

Hæstiréttur birt 21. nóvember 2002

223/2002

Brjánn Guðjónsson og Sigurlaug Hreinsdóttir (Agnar Gústafsson hrl) gegn Símoni Ólafssyni, Ernu Valsdóttur (Andri Árnason hrl) og Húsvangi ehf (Valgeir Pálsson hrl)

B og SH keyptu íbúð af SÓ. Eftir að íbúðin var afhent kváðust kaupendur hafa orðið varir við gólfhalla í íbúðinni. Töldu þau að um leyndan galla væri að ræða og höfðuðu mál til greiðslu afsláttar eða skaðabóta. Ósannað var að SÓ hafi skýrt kaupendum frá gólfsiginu við skoðun þeirra á eigninni. Þá taldist ekki heldur sannað að gólfsigið hafi haft áhrif á verðmat íbúðarinnar og þótti ljóst að um galla á hinni seldu eign var að ræða. Talið var að ekki yrðu gerðar meiri kröfur til kaupenda fasteigna en að þeir framkvæmdu venjulega skoðun á eigninni og að sú skoðun beindist einkum að þeim atriðum sem algengt væri eða líklegt að væri áfátt. Voru kaupendur ekki talin hafa vanrækt svo aðgæsluskyldu sína við skoðun á íbúðinni að þau gætu ekki borið gallann fyrir sig. Litið var svo á að SÓ, sem var kunnugt um gólfhallann, hafi borið að upplýsa kaupendur um hann. Ekki var talið að upplýsingaskyldu seljanda hafi verið fullnægt með því að starfsmaður viðkomandi fasteignasölu kom að síðbúnum upplýsingum um gólfhalla í símtali við SH. Þá var einnig talið að viðbrögð starfsmanna fasteignasölunnar við síðbúnum upplýsingum SÓ um gólfhallann hafi verið alls ófullnægjandi. Þeim hafi borið að framkvæma sjálfstæða skoðun á gólfum íbúðarinnar að fengnum þessum upplýsingum og gera kaupendum grein fyrir eðli og umfangi gallans. Voru SÓ, fasteignasalinn og fasteignasalan því talin bera óskipta fébótaábyrgð á tjóni kaupendanna vegna gallans.

...Í reglugerð nr. 93/1998 um samninga um söluþjónustu fasteignasala og söluyfirlit, sé þessi skylda nánar útfærð. Þar segi í 3. tl. 2. gr., að söluyfirlit sem fasteignasali geri skuli...