Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 787/1998"
5 dómar fundust
Á var ákærður samkvæmt tveimur ákærum fyrir vopnalagabrot. Annars vegar fyrir stórfellt vopnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum á heimili sínu hlaðna skammbyssu, mikinn fjölda skotvopna, skotvopnahluta og skotfæra í ólæstum geymslugámi á landareign sinni og í tveimur bifreiðum mikinn fjölda skotvopna, skotvopnahluta og skotfæra, auk efnis til samsetningar skotfæra, án þess að tryggja viðeigandi og áskilda geymslu munanna í aðskildum og læstum hirslum. Þá var ákærða gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum óskráða boga og skotvopn sem skráð voru á aðra aðila án þess að hafa tilkynnt lögreglu um móttöku skotvopna til viðgerðar eða hafa skriflega lánsheimild frá eigendum. Hins vegar fyrir að hafa haft í vörslum sínum í bifreið sem stóð ólæst og mannlaus hlaðna haglabyssu með fjórum haglaskotum í skotgeymi, án lánsheimildar og án þess að hafa gilt skotvopnaleyfi. Í dómi Landsréttar var rakið að Á hafi meðal annars í fyrri ákæru málsins verið gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum skotvopn sem voru skráð á aðra án þess að hafa tilkynnt lögreglu um móttöku skotvopna til viðgerðar eða haft skriflega lánsheimild. Sú háttsemi var byggð á reglugerðarákvæði sem átti sér enga stoð í vopnalögum og fól því ekki í sér gilda refsiheimild og var Á því sýknaður af þeim sakargiftum. Staðfest var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu ákærða fyrir stórfellt vopnalagabrot með því að hafa vanrækt að tryggja á fullnægjandi hátt vörslu 94 skotvopna, sjö skotvopnahluta og 34.253 skotfæra og geyma þau í aðskildum og læstum hirslum. Varðandi síðari ákæruna var Á sýknaður af þeim hluta ákærunnar er laut að því að hann hafi haft umrætt skotvopn í vörslum sínum án lánsheimildar en að öðru leyti var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu ákærða staðfest með vísan til forsendna. Með hliðsjón af 1. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga var refsing Á ákveðin fangelsi í 6 mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.
...tilgangi að tryggja að óviðkomandi næðu ekki til þeirra, sbr. 23. gr. laganna. Reglugerð nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri o.fl. (skotvopnareglugerðar) var sett 21. desember sama ár með...
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi)
gegn
Árni Logi Sigurbjörnsson (
Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt vopnalagabrot, m.a. með því að tryggja ekki á fullnægjandi hátt viðeigandi og áskilda geymslu mikils fjölda vopna, vopnahluta og skotfæra í hans eigu. Ákærða gert að sæta 10 mánaða skilorðsbundnu fangelsi. Kröfu um upptöku vopnanna hafnað, þar sem lagaheimild skorti.
...tilgangi að tryggja að óviðkomandi næðu ekki til þeirra, sbr. 23. gr. laganna. Reglugerð nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri o.fl. (skotvopnareglugerðar) var sett 21. desember sama ár með...
Deilt um gildi leyfisbréfs sem viðurkenndi og heimilaði æfinga- og keppnissvæði skotfélags.
...Vísa stefnendur í reglugerð nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri og fleira og þá sérstaklega 16. grein sem tiltaki hvaða upplýsingar eigi að fylgja slíkri umsókn. Telja þeir að í...
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Árna Loga Sigurbjörnssyni (
Sigurður Sigurjónsson hrl)
Á var sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum tilgreind vopn sem lögregla lagði hald á án þess að tryggja viðeigandi og áskilda geymslu þeirra. Þegar litið var til þess að vopnin voru tekin í innbroti á heimili Á, að hann hafði sérstaka geymslu fyrir vopnin þó að hún væri ekki fullnægjandi, að hann virtist hafa átt stærstan þátt í að lögreglu tókst að upplýsa málið og endurheimta vopnin, og að gögn lágu fyrir um að Á hefði endurbætt aðstöðu á heimili sínu í samráði við lögreglu, þótti rétt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið í tvö ár.
...tilgangi að tryggja að óviðkomandi næðu ekki til þeirra, sbr. 23. gr. laganna. Reglugerð nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri o.fl. var sett 21. desember sama ár með heimild...
Kærumáli var vísað frá Hæstarétti þar sem kærufrestur var liðinn.
...Þá byggir sóknaraðili á því, varðandi hljóðdeyfi, sem fylgihlutar riffilsins, að engin lagaákvæði standi því í vegi að setja megi hljóðdeyfi á riffla, hvorki í vopnalögum né reglugerð nr. 787...