Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 751/2003"

6 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júlí 2025

E-718/2025

A (Helgi Birgisson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Halldór Hrannar Halldórsson lögmaður)

Dómurinn taldi að tjónþoli hefði þurft að leita liðsinnis lögmanns til þess að ná fram bótum úr slysatryggingu launþega sem vinnuveitandi hafði keypt hjá tryggingafélagi. Félagið dæmt til þess að greiða tjónþola þennan kostnað.

...Benti ABÍ á að slysið hefði hlotist af dráttarvél við sláttustörf í sveit og að samkvæmt umferðar- lögum og reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja þurfi ekki að skrá...

Hæstiréttur birt 9. maí 2018

462/2017

Gunnar Þór Guðmundsson (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður) og Eimskip Íslands ehf (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn G, Á ehf. og E ehf. til viðurkenningar á óskiptri bótaskyldu þeirra vegna líkamstjóns sem hann hlaut í vinnuslysi í apríl 2015 þegar álprófílbúnt féll á hann við affermingu aftanívagns vöruflutningabifreiðar. Í héraðsdómi var krafa A viðurkennd á hendur öllum stefndu og áfrýjaði Á ehf. ekki fyrir sitt leyti. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af því að G taldist atvinnurekandi í skilningi 12. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og slysið hefði orðið í atvinnurekstri sem hann veitti forstöðu og atvikum öllum yrði ekki talið að skilyrði væru til þess að fella niður skaðabótaábyrgð hans með vísan til 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og skaðabótaskylda hans því viðurkennd. Þá var talið að ekki væri efni til að A yrði látinn bera meðábyrgð á tjóni sínu, sbr. 1. mgr. 23. gr. a skaðabótalaga. Þá kom fram að samkvæmt skilmálum í farmbréfinu hefði farmflytjandi borið ábyrgð á hleðslu farmsins en viðskiptamaður borið ábyrgð á affermingu hans en slysið hefði verið við affermingu farmsins af bifreið E ehf. og því ekki á ábyrgð þess félags. Einnig var talið ósannað að umbúnaður eða frágangur farmsins hefði verið með þeim hætti að til skaðabótaskyldu E ehf. hefði stofnast. Var E ehf. því sýknað af kröfu A.

...Um skráningu slíkra tækja gildi reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja. Í II. kafla reglugerðarinnar komi fram að Umferðarstofa (nú Samgöngustofa, sbr. lög nr. 119/2012) haldi ökutækjaskrá og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2017

E-4218/2015

A (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn B (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl) og Álgluggum og hurðum ehf. og Eimskipi Íslandi og ehf. (Guðjón Ármannsson hrl)

Viðurkennd var óskipt skaðabótaskylda stefndu gagnvart stefnanda vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir í vinnuslysi þegar notaður var lyftari við affermingu á álprófílbúntum af tengivagni vöruflutningabifreiðar. Þótti sannað, meðal annars m.t.t. fyrirliggjandi matsgerðar, með hvaða hætti umrætt vinnuslys hefði átt sér stað þegar álprófílbúntin féllu ofan af pallinum og lentu á stefnanda. Í málinu komu enn fremur til álita sjónarmið varðandi vinnuveitendaábyrgð, sem og um mögulega eigin sök tjónþola, sem þótti þó ekki eiga hér við.

...Um skráningu slíkra tækja gildi reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja. Í II. kafla reglugerðarinnar komi fram að Umferðarstofa (nú Samgöngustofa, sbr. lög nr. 119/2012) haldi ökutækjaskrá og...

Hæstiréttur birt 23. maí 2013

26/2013

Iceland, Excursions og Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Lykilorð: Útboð. Opinber innkaup.

R efndi til útboðs um þjónustu hópferðabifreiða og skiptist útboðið í þrjá hluta. I ehf. bauð í alla hluta útboðsins en gengið var til samninga við önnur fyrirtæki. I ehf. kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála sem kvað upp úrskurð þess efnis að R hefði brotið gegn lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup við val á tilboði H ehf. í 1. hluta útboðsins. Í málinu krafðist I ehf. skaðabóta úr hendi R á grundvelli 101. gr. laganna á þeirri forsendu að R hefði brotið gegn 71. gr. sömu laga með því að taka ógildu tilboði H ehf. í akstur fyrir grunnskóla í 1. hluta útboðsins, en tilboð H ehf. hafði að mati I ehf. ekki uppfyllt hæfisskilyrði útboðslýsingarinnar. Talið var að H ehf. hefði uppfyllt hæfniskröfur um fjölda bifreiða samkvæmt útboðinu og að I ehf. hefði ekki tekist að sýna fram á að eignarhald bjóðenda á hópbifreiðum þeim sem nota átti við verkefnið hefði verið nauðsynlegt þar sem slíku skilyrði yrði ekki fundinn staður í skilmálum útboðsins þegar ákvæði þess voru virt. Þá hafði H ehf., sem var í eigu nokkurra hópbifreiðafyrirtækja, sinnt skólaakstri fyrir R í 14 ár og í fylgiskjali með tilboði fyrirtækisins hefði komið fram að fyrirtækið hafði yfir að ráða þeim vagnfjölda sem tilskilinn var í útboðinu. Hefði H ehf. því ekki borið frekari nauðsyn til að sýna fram á að það gæti fullnægt ákvæðum útboðsins, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga nr. 84/2007. Þá var það ekki talið hafa áhrif á gildi tilboðs H ehf. í skilningi 71. gr. laganna hvernig skilmálum um ábyrgir og tryggingar, hópferðaleyfisveitingar og undirverktaka var háttað. Að endingu var ekki fallist á það með I ehf. að mat R á reynslu H ehf. og starfsmanna þess af akstri skólabarna hefði verið rangt. Að öllu þessu virtu hefði R því verið rétt að meta tilboð H ehf. þannig að það uppfyllti skilmála útboðsins en einnig var talið að jafnræðis hefði verið gætt við matið. Var R því sýknað af kröfu I ehf.

...Samkvæmt reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja skuli færa upplýsingar um ökutæki í ökutækjaskrá sem Umferðarstofa haldi utan um. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar skulu ökutæki skráð í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2012

E-4455/2011

Iceland Excursions Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hdl) gegn Reykjavíkurborg (Eyþóra Kristín Geirsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna kostnaðar stefnanda við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði á skólaakstri. Einnig krafðist stefnandi þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda stefnda vegna missis stefnanda á hagnað þar sem tilboði hans var ekki tekið. Dómurinn féllst ekki á að ólögmætt hafi verið að taka tilboði Hópferðamiðstöðvarinnar ehf. og voru skilyrði skaðabótaskyldu því ekki fyrir hendi. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda í málinu.

...Samkvæmt reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja skuli færa upplýsingar um ökutæki í ökutækjaskrá sem Umferðarstofa haldi utan um. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar skulu ökutæki skráð í...

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. maí 2007

S-719/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Jóni Kristjáni Jacobsen (Bergrún Elín Benediktsdóttir)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir hraðakstur, að vera með ógreinilega skráningaplötu á bifhjóli, reykspólun og eignaspjöll á lögreglustöð. Ákærða gert að greiða 350.000 krónur í sekt, sviptur ökurétti í sex mánuði og gert að greiða allan sakarkostnað.

...gr. umferðarlaga hvar skráningarmerki skuli staðsett og sé því reglugerðin ekki gild refsiheimild. Reglugerð nr. 751/2003 er sett með heimild í umferðarlögum nr. 50/1987. Í 1. mgr. 100...