Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 750/2017"
3 dómar fundust
V ehf. höfðaði mál gegn Í til endurgreiðslu á skilagjaldi og umsýsluþóknun sem félaginu var gert að greiða á grundvelli laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Í dómi Landsréttar var rakið að óumdeilt væri að umrædd gjöld teldust vera skattur. Í ákvæðum laga nr. 58/1989, eins og þau voru er gjöldin voru lögð á, hafi skýrlega verið mælt fyrir um fjárhæðir skilagjalds og umsýsluþóknunar, sem voru misháar eftir umbúðaeiningum. Óumdeilt væri að sú álagning sem ágreiningur aðila fyrir Landsrétti laut að væri að öllu leyti til samræmis við þær fjárhæðir sem komu fram í lögunum. Álagningin hafi því byggt á beinum fyrirmælum löggjafans og hún hafi ekki verið í andstöðu við 40. gr. og 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki var fallist á að álagning gjaldanna hafi farið í bága við jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá var hafnað málsástæðu V ehf. um að skattheimtan uppfyllti ekki þær kröfur sem leiða af eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. gr. 1. samningsviðauka við mannréttindasáttmálann. Loks var hafnað málsástæðum V ehf. er lutu að því að skattheimtan hafi ekki uppfyllt skilyrði félagafrelsisákvæðis 74. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
...Í reglugerð nr. 750/2017 um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota drykkjarvöruumbúðir er fjallað um álagningu skilagjalds og þeir tollflokkar sem gjaldskylda skilagjalds nær til taldir upp. Í reglugerðinni...
Skilagjald og umsýsluþóknun á einnota drykkjarumbúðir talin lögmæt skattheimta. Þó fallist á endurgreiðslu skattsins vegna tímabils þar sem reglugerð ráðherra kvað á um hærri umsýsluþóknun heldur en lögin heimiluðu á þeim tíma.
...Í reglugerð nr. 750/2017 um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota drykkjarvöruu- mbúðir er fjallað um álagningu skilagjalds og þeir tollflokkar sem gjaldskylda skilagjalds nær til taldir upp. Í...
V ehf. krafði Í um endurgreiðslu á skilagjaldi og umsýsluþóknun sem hann greiddi af innfluttri drykkjarvöru í einnota umbúðum úr áli, gleri og plastefni á tilgreindu tímabili. Með úrskurði héraðsdóms var málinu vísað frá dómi án kröfu. Héraðsdómur hafði talið að fjárkrafa V ehf. væri ekki nægilega sundurliðuð. Þá lægi ekki fyrir hvort og þá hvenær V ehf. hefði innt umrædd gjöld af hendi og engar sundurliðaðar eða staðfestar upplýsingar lægju fyrir um hver innflutningur V ehf. væri og á hvaða vörum og í hvaða magni í einstökum tilvikum. Ekki lægju heldur fyrir gögn um afkomu E hf. Í úrskurði Landsréttar kom fram að að virtri afmörkun málsaðila á sakarefni málsins hefðu engin efni verið til þess að vísa málinu frá dómi á framangreindum grundvelli. Héraðsdómur hefði einnig fundið að því að reikningsskekkjur væru í framlögðum útreikningi V ehf. og að ekki væri útskýrð sundurliðun á gjöldum einstakra gjalddaga en V ehf. hefði fært fram skýringar á þeim skekkjum. Að því virtu væru ekki efni til þess að vísa málinu frá á þessum grunni. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
...Í reglugerð nr. 750/2017 um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota drykkjarvöruumbúðir er fjallað um álagningu skilagjalds og þeir tollflokkar sem gjaldskylda skilagjalds nær til taldir upp. Í reglugerðinni...