Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 730/2012"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 26. maí 2023

30/2022

A og B greindi á um uppgjör vegna starfsloka A hjá B. A hafði uppi fjárkröfu á hendur B sem var í fimm liðum, það er vegna ógreidds orlofs, yfirvinnu, kostnaðar vegna lögfræðiaðstoðar, skaðabóta og miskabóta. Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert væri komið fram í málinu sem gæfi ástæðu til að ætla að aðilar hafi samið um orlofsréttindi A á þann veg sem hann hélt fram og að fyrirmæli laga og kjarasamninga stæðu ekki til þess að taka kröfu hans um ógreitt orlof til greina. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu B af þeirri kröfu. Þá var talið að A hafi ekki rennt viðhlítandi stoðum undir kröfu sína um greiðslu fyrir yfirvinnu og engar forsendur væru til að taka hana til greina að álitum og var B sýknað af þeirri kröfu. A studdi kröfu sína um greiðslu lögmannskostnaðar einkum á tölvupósti sem varaformaður stjórnar B sendi lögmanni A. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki væru forsendur til að líta svo á að B hafi með tölvupóstinum eða á annan hátt skuldbundið sig til að greiða kostnað A vegna lögfræðiaðstoðar, umfram það sem yrði samþykkt af félaginu, og að réttmætar væntingar hans hafi ekki getað staðið til slíks. Var B því sýknað af þessari kröfu. Kröfu A um skaðabætur og miskabætur var einnig hafnað. Var B því sýknað af öllum kröfum HA

...1009/2015, en um sérhæfðra aðila var að ræða með viðurkenningu af hálfu Vinnueftirlitsins í samræmi við reglugerð nr. 730/2012, eftir því sem fyrir liggur í málinu. Vegna fyrrnefndrar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2021

E-8164/2020

A (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn B (Oddur Ástráðsson lögmaður)

Stefndi sýknaður af skaðabóta- og miskabótakröfu stefnanda, ósannað taldist að uppsögn hefði farið fram með ólögmætum hætti og stefnandi sætt einelti í starfi. Einnig sýknað af kröfu um orlofslaun vegna 6.407 orlofsstunda sem hafi safnast upp á fjögurra ára tímabili. Talið að krafan ætti sér ekki stoð í ráðningarsamningi, kjarasamningi eða lögum. Stefndi dæmdur til að greiða hluta af lögfræðikostnaði stefnanda í samræmi við yfirlýsingu stefnda þar að lútandi og til að greiða stefnanda laun vegna 40 yfirvinnustunda en stefnandi hafði krafist greiðslu launa vegna 1.014,5 yfirvinnustunda sem hefðu fallið til á átta mánuða tímabili.

...1009/2015, en um sérhæfðra aðila var að ræða með viðurkenningu af hálfu Vinnueftirlitsins í samræmi við reglugerð nr. 730/2012, eftir því sem fyrir liggur í málinu. Vegna fyrrnefndrar...