Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 605/2010"
6 dómar fundust
Með hinum áfrýjaða dómi var X ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa eigi getað framvísað að ósk lögreglu útprentun úr ökurita hópbifreiðar sem hann ók. Með dómi Landsréttar var ekki fallist á að sú háttsemi sem lýst var í ákæru hefði, eins og atvikum máls háttaði, falið í sér refsiverða háttsemi í skilningi 1. mgr., sbr. 2. mgr. 54. gr. umferðarlaga, sbr. 1. mgr. 94. gr. sömu laga og b-lið 33. gr., sbr. 55. gr. reglugerðar nr. 605/2010. Var X því sýknaður af þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök.
...11 Í reglugerð nr. 605/2010 er að finna nánari ákvæði um framangreint, en hún var sett með stoð í 44. gr. a eldri umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 57...
Ákæruvaldið (
Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Tómas Jónsson hrl)
Kærður var sá hluti dóms héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi einum ákærulið í ákæru í máli Á gegn X þar sem verknaðarlýsingu brots var ekki að finna í ákæruliðnum, sbr. c. liður 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms með vísan til forsendna.
...661/2006, en framangreind reglugerð nr. 605/2010 leysti hana af hólmi. Í tilvitnuðu ákv. 3. mgr. 29. gr. hennar er kveðið á um það að ökumaður skuli nota, eftir...
Ökumaður hópbifreiðar sýknaður af ákæru fyrir að hafa ekið hópbifreið án þess að hafa tiltæka til framvísunar lögbundna tímaáætlun eða vaktaskrá.
...ákvæðis til bráðabirgða í reglugerð nr. 605/2010 má bifreið, sem skráð er fyrir 1. september 2006, vera búin skífuökurita en bifreið skráð frá og með 1. september sama ár...
Bílstjóri sakfelldur fyrir að hafa hvorki hlýtt stöðvunarmerkjum né framvísað ökuritaskífum.
...Var fyrri kæra vegna meints brots á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit. Í kærunni er vísað til vettvangsskýrslu umferðareftirlits. Í skýrslunni segir...
Stefnandi krafðist endurgreiðslu skuldar og skaðabóta úr hendi stefndu í tilefni af kaupum á innfluttri notaðri bifreið. Stefndu voru sýknaðir af öllum kröfum stefnanda.
...Í reglugerð nr. 605/2010, um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit, komi fram í b. lið 2. mgr. 1. gr. „að ökuriti skuli vera í bifreið, sem...
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
X (
Jón Rúnar Pálsson hrl)
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sem ökumaður vöruflutningabifreiðar margoft brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Fyrir Hæstarétti bar ákærði fyrir sig að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða akstur, sem væri honum refsilaus vegna frávika samkvæmt 13. gr. þágildandi reglugerðar nr. 662/2006 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Í því ákvæði var kveðið á um heimild ökumanns til að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar að nánar tilteknum skilyrðum uppfylltum, að því tilskyldu að ökumaður skráði í ökurita með hvaða hætti og hvers vegna það væri gert. Upplýst var í málinu að ekki væri mögulegt að skrá í ökuritann neinar slíkar upplýsingar sem féllu undir 13. gr. og því ekki unnt að framkvæma fyrirmælin í greininni. Þegar ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu vegna ætlaðra brota var liðið meira en ár frá háttseminni. Honum var samkvæmt ákvæðum 12. gr. reglugerðar nr. 661/2006 ekki skylt að halda til haga gögnum um aksturinn lengur en í eitt ár. Hvorki Vegagerðin né lögregla höfðu gefið honum tilefni til að halda slíkum gögnum til haga lengur, hvort sem þau hefðu verið til eða ekki. Hæstiréttur taldi að það væri ekki á ábyrgð ákærða að ekki lægju fyrir sannanir um rétt hans til þess að víkja frá þeim ákvæðum reglugerðarinnar sem hann væri talinn hafi brotið í ákæru. Var ákærði því sýknaður.
...662/2006 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna var felld úr gildi með reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit. Í 9. gr. síðarnefndu reglugerðarinnar...