Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 558/2011"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 21. janúar 2016

319/2015

Innnes ehf (Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu kröfðust H ehf. og A endurgreiðslu á fjárhæðum sem þeir höfðu innt af hendi til Í, annars vegar fyrir svonefnda tollkvóta og hins vegar sem greiðslu á magntolli fyrir landbúnaðarafurðir sem þeir hefðu flutt inn á grundvelli heimildar sem þeir hefðu áunnið sér með greiðslu fyrir tollkvóta. Talið var að þótt A hefði samkvæmt gögnum málsins sótt um tollkvóta í eigin nafni og fengið honum úthlutað og innt af hendi þær greiðslur til Í, sem krafist væri endurgreiðslu á, yrði að líta svo á að það hefði verið gert í umboði H ehf. A, sem deild í félaginu, gæti ekki átt sjálfstæð réttindi eða borið slíkar skyldur að deildin fullnægði skilyrðum 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til þess að geta átt aðild að dómsmáli. Fór H ehf. því einn með þá hagsmuni sóknarmegin, sem deilt var um í málinu. Ekki var fallist á með H ehf. að gildandi viðmið við álagningu á magntolli samkvæmt 1. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 færi í bága við 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn var talið að reglur 65. gr., sbr. 65. gr. B, í búvörulögum nr. 99/1993 um að ráðherra hefði frjálst val um það, þegar umsóknir bærust um meiri innflutning vöru en tollkvóta hennar nam hverju sinni, hvort hlutkesti skyldi ráða úthlutun eða hvort leita skyldi tilboða í heimildir til innflutnings samkvæmt tollkvótunum, hefði farið í bága við fyrrgreind ákvæði stjórnarskrárinnar. Í þessari skipan hefði falist að ráðherra gæti einhliða ákveðið hvort greiða skyldi gjald fyrir tollkvóta eða ekki, en slík gjaldtaka væri allsherjarréttarlegs eðlis og teldist skattheimta að því leyti til að lagaheimildir til hennar þyrftu að uppfylla skilyrði þau, sem gerð væru til fullgildrar sköttunarheimildar. Loks var talið að krafa um endurgreiðslu oftekinna skatta, sem með réttu væri reist á lögum nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda, væri ekki bundin því skilyrði að sá, sem hana gerði, sannaði að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hinnar ólögmætu skattheimtu, þótt sú regla kynni að hafa gilt fyrir gildistöku laganna. Yrði eðli málsins samkvæmt að miða við að álagning gjaldsins hefði haft áhrif á rekstur H ehf. og að sönnunarbyrði um annað hvíldi á Í. Samkvæmt framansögðu var fallist á endurgreiðslukröfu H ehf. vegna þeirra fjárhæða sem hann hafði greitt fyrir tollkvóta.

...júní 2013 vegna innflutnings á alifuglakjöti samkvæmt reglugerð nr. 558/2011, unnum kjötvörum skv. reglugerðum nr. 454/2012 og nr. 472/2013, og vegna vegna innflutnings á smjöri og ostum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. september 2012

E-1974/2012

Innnes ehf (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Lykilorð: Stjórnarskrá. Tollskrá.

Reglugerð ráðherra um ákvörðun fjárhæðar tolls innan tollkvóta WTO talin andstæð stjórnarskrá og íslenska ríkið dæmt til endurgreiðslu hluta álagðs tolls.

...559/2008 og þeirri fjárhæð sem hann greiddi við umræddan innflutning í desember 2011 samkvæmt reglugerð nr. 558/2011. Í stað 149,44 % af tollverði eða 760.295 kr. beri...