Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 522/1998"
5 dómar fundust
X og A ehf. var gefið að sök að hafa í tvö skipti skráð rangar upplýsingar um nettóvigt afla skipanna SJ og SÆ á endurvigtunarnótur sem X gaf út fyrir hönd einkahlutafélagsins og að hafa ekki vegið allan afla fyrrgreindra skipa í eitt skipti. Voru brot ákærðu talin varða við nánar tilgreind ákvæði laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla, svo og 1. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í málinu lá fyrir að Neytendastofa hafði, í framhaldi af ábendingu Fiskistofu, áminnt X vegna háttseminnar á grundvelli laga nr. 91/2006. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af orðalagi 42. gr. þeirra laga bæri Neytendastofu að meta með hliðsjón af grófleika brots og réttarvörslusjónarmiðum, hvort máli skyldi lokið með stjórnvaldsákvörðun eða það kært til lögreglu. Við það mat bæri Neytendastofu að hafa til hliðsjónar að ákvæði laga nr. 91/2006 væru reist á því megin viðhorfi að ekki yrði bæði lögð á stjórnvaldssekt og dæmd refsing fyrir sama lögbrotið heldur yrði önnur hvor leiðin valin. Neytendastofa gæti ekki framselt öðrum stjórnvöldum áðurgreint mat né gætu önnur stjórnvöld tekið sér einhliða slíkt mat þannig að þýðingu hefði að lögum. Kæra Fiskistofu til ríkislögreglustjóra vegna ætlaðra brota X hefði því ekki verið í samræmi við áðurgreint og ætti sér ekki lagastoð. Var máli ákæruvaldsins gegn X því vísað frá héraðsdómi. Hvað ákærða A ehf. varðaði var fallist á með héraðsdómi að endurvigtanirnar hefðu verið rangar og að umrædd brot hefðu verið félaginu til hagsbóta í skilningi 24. gr. laga nr. 57/1996. Var sektarrefsing A ehf. því staðfest.
...stoð í reglugerð nr. 522/1988 um vigtun sjávarafla, sbr. 6. gr. auglýsingarinnar. Reglugerð nr. 522/1998 hafi verið felld úr gildi með reglugerð nr. 224/2006 sem tekið hafi...
Fiskvinnslufyrirtæki sektað fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar.
...auglýsingarinnar. Reglugerð nr. 522/1998 hafi verið felld úr gildi með reglugerð nr. 224/2006 sem tekið hafi gildi hinn 1. september 2006. Auglýsing nr. 768/1998 virðist þó hafa...
H, löggiltur vigtarmaður, og F, útgerðarfélag, sakfelld fyrir brot gegn l. nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og rgl. nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla, með því að draga 5% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í stað 3%, sem heimilt er. H var einnig dæmdur fyrir skjalfals með því að hafa ranglega skráð hlýra á vigtarnótu sem 603 kg af aflanum í stað 63 kg og ranglega skráð lægri þyngd á landaðan steinbít sem því nam. Refsing H var ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi og refsing F sekt að fjárhæð 100.000 krónur.
...57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, reglugerð nr. 522/1998 um vigtun sjávarafla, lögum nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og gegn 158. gr...
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Karli Óskari Geirssyni (
Andri Árnason hrl)
K var sakfelldur fyrir brot gegn 9., sbr. 23. gr., laga nr. 57, 1996 um umgengni um nytjastofna sjávar með því að hafa vanrækt þá skyldu sína að halda afla aðgreindum og láta vigta hverja tegund sérstaklega. Þótti refsing K hæfilega ákveðin 450.000 króna sekt til ríkissjóðs.
...57, 1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og í reglugerð nr. 522, 1998 um vigtun sjávarafla eru skýrar og nákvæmar reglur um vigtun sjávarafla. Í 9. gr. laganna og 1...
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sigurði Helga Jónssyni (
Björgvin Jónsson hrl)
Skipstjórinn S var sakfelldur fyrir fiskveiðibrot með því að hafa ekki sinnt þeirri skyldu sinni að tryggja að allur afli yrði vigtaður á hafnarvog þegar í kjölfar löndunar. S var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa ekki fært upplýsingar um afla skipsins réttilega í afladagbók og fyrir að hafa fullunnið hluta aflans um borð án þess að hafa til þess leyfi sjávarútvegsráðuneytisins. Var hann dæmdur til að greiða 800.000 krónur í sekt.
...57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerð nr. 522/1998 eru skýrar og nákvæmar reglur um vigtun sjávarafla. Segir í 5. gr. laganna að öllum afla úr stofnum...