Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 492/2009"

4 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2026

E-3672/2025

A (Klara Óðinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Haukur Örn Birgisson lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hann ók bifhjóli inn á lokaðan vegarkafla og féll með hjólinu ofan í 4 metra djúpan skurð. Ágreiningur málsaðila laut að því hvort stefnandi hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi sem ætti að leiða til minni skerðingar á bótarétti en sú 50% skerðing sem uppgjör stefnda miðaðist við. Stefnandi var talinn hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að halda áfram för þegar honum var ljóst að hann var kominn inn á lokað vinnusvæði sem ekki var ætlast til að ekið væri um. Merkingar inni á vinnusvæðinu voru ekki í samræmi við reglur Vegagerðarinnar, auk þess sem ósnnað var að aksturshraði stefnanda hefði verið með þeim hætti að hann hafi gert háttsemi stefnanda sérstaklega vítaverða. Ekki var fallist á að stefnda væri heimilt að skerða bætur um helming, heldur að hámarki um þriðjung.

...einnig reglugerð nr. 492/2009 um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg, einkum 1. mgr. 6. gr. Þá er byggt á reglum Vegagerðarinnar um vinnusvæðamerkingar frá...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. júní 2018

E-185/2017

Guðrún Elísabet Víglundsdóttir (Ásmundur Jónsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

G slasaðist við það að falla um járnmottu. V var dæmt til að greiða henni bætur að 2/3

...Í reglugerð nr. 492/2009, um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg, segi í 1. mgr. 6. gr. að þar sem framkvæmdir fari fram á og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2018

E-2941/2017

A (Óðinn Elísson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Stefndi sýknður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda vegna frítímaslyss.

...Að sama skapi mótmæli stefndi því að reglugerð nr. 492/2009, um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg, geti átt við athafnir ellegar meint athafnaleysi starfsmanna...

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. mars 2017

E-195/2016

Melgras ehf (Jóhann Fannar Guðjónsson hdl) gegn Haraldi Rúnari Haraldssyni (Ólafur Björnsson hrl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Skaðabótaskylda vegna ófullnægjanda merkinga við framkvæmdir.

...Byggir stefnandi á því að reglugerð nr. 492/2009 gildi um vinnusvæði á og við veg þegar framkvæmdir geta valdið tímabundinni röskun og hættu á því svæði sem unnið er...