Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 442/2012"
4 dómar fundust
Stefnandi höfðaði mál á hendur stefnda, Sjúkratryggingum Íslands, til viðurkenningar á bótaskyldu fyrir tjón sem hún hlaut við læknismeðferð í útlöndum. Talið var að ætluð krafa hennar á hendur stefnda hefði verið fallin niður fyrir fyrningu þegar hún höfðaði málið.
...20. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa, sbr. reglugerð nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almanna- tryggingar. Ákvæði 20. gr. fjallar um rétt...
A höfðaði mál á hendur Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem staðfest var niðurstaða fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna í fæðingarorlofi til A. Taldi A að úrskurðurinn færi í bága við EES-samninginn. A hafði verið búsett og starfandi í Danmörku á 12 mánaða viðmiðunartímabili sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Þar sem að A hafði ekki haft neinar tekjur hér á landi á tímabilinu voru henni ákvarðaðar lágmarksgreiðslur samkvæmt þágildandi lögum um fæðingar og foreldraorlof. Undir rekstri málsins í héraði var leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins með spurningum um hvort áskilið væri samkvæmt nánar tilgreindum reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu að EES-ríki reikni greiðslur í fæðingarorlofi eftir viðmiðunartekjum út frá heildarlaunum á vinnumarkaði á öllu svæðinu. Jafnframt hvort það bryti í bága við reglur sem þar gilda að einungis væri tekið tillit til heildarlauna á innlendum vinnumarkaði. Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins sagði að skylda til að koma í veg fyrir að farandlaunþegar yrðu verr settir við það að nýta sér rétt til frjálsrar farar fæli í sér að bætur til þeirra skyldu vera hinar sömu og þær hefðu verið ef launþegi hefði ekki neytt þess réttar. Þar af leiðandi bæri að reikna viðmiðunartekjur launþega, vegna starfstímabils í öðru EES-ríki, út frá áætluðum tekjum launþega í sambærilegri stöðu og með sambærilega starfsreynslu og hæfi og launþegi í því ríki þar sem sótt væri um bæturnar. Hæstiréttur tók fram að þótt að ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins væru ekki bindandi að íslenskum rétti hefðu þau í réttarframkvæmd verið lögð til grundvallar við skýringu á efni EES-reglna. Að baki því væri sú grundvallarregla EES-samningsins að stuðla að samkvæmni í skýringum á EES-reglum og þar með samræmdri framkvæmd EES-samningsins. Þrátt fyrir þetta yrði að fallast á það með héraðsdómi að Fæðingarorlofssjóður hefði ekki getað virt að vettugi skýr og afdráttarlaus fyrirmæli laga nr. 95/2000 við ákvörðun um greiðslu úr sjóðnum til A. Því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í.
...2/1993 sem lögfesti meginmál EES-samningsins og hins vegar reglugerð nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar, en þar var í 1. gr. mælt fyrir um að...
Stefnandi krafði stefnda íslenska ríkið um greiðslu vegna liðskiptaaðgerðar sem hún keypti af einkarekinni læknamiðstöð og taldi að stefndu væri rétt að bæta sér þann kostnað. Ekki var fallist á að stefnandi gæti átt rétt til greiðslu slíks kostnaðar á grundvelli laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, ákvæði 76. gr. stjórnarskrárinnar eða samkvæmt þeim reglum sem teknar hefðu verið inn í EES-samninginn um rétt til að leita heilbrigðisþjónustu erlendis.
...apríl 2004 um samræmingu almannatryggingakerfa sem þegar hafði verið innleidd hérlendis með reglugerð nr. 442/2012, um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar. Tilskipunin var tekinn upp í 10. viðauka EES...
Stefnandi krafði stefnda íslenska ríkið um skaðabætur fyrir fjárútlát vegna liðskiptaaðgerðar sem hann keypti af einkarekinni læknamiðstöð og taldi að stefnda væri rétt að bæta sér þann kostnað. Stefnandi sýndi ekki fram á að hann hefði ekki átt þess kost að fá slíka aðgerð gerða á sjúkrahúsi á kostnað stefnda innan tilhlýðilegra tímamarka og var ekki talinn hafa axlað sönnunarbyrði sína fyrir því að skilyrði bótaskyldu væru fyrir hendi. Var íslenska ríkið því sýknað af skaðabótakröfu hans.
...883/2004 sem innleidd var með reglugerð nr. 442/2012), þar sem möguleiki til lækninga erlendis sé ekki fyrir hendi. Umsókninni, sem barst Sjúkraþjónustudeild SÍ 14. maí 2020, var synjað...