Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 345/2014"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 5. júní 2025

489/2023

Dagmar Sigríður Lúðvíksdóttir og Einar Lúðvíksson (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Veiðifélagi Eystri-Rangár (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Dóru Lúðvíksdóttur (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Með dómi Landsréttar var DS, E og D bannað að hindra umferð V og veiðimanna á vélknúnum ökutækjum eftir akvegum sem liggja um land jarðanna Bakkavallar og Vallarhjáleigu í Rangárþingi eystra að veiðistöðum á veiðisvæðum 8 og 9 í Eystri- Rangá og hindra aðgengi stefnda að þremur sleppitjörnum í sameignarlandi Árgilsstaða 1 og 2 og eyðileggja þær eða koma í veg fyrir nýtingu þeirra að öðru leyti. Í dómi Landsréttar var rakið að með því að hindra umferð vélknúinna ökutækja eftir vegum sem liggja um land tilgreindra jarða og aðgengi V að sleppitjörnum hefðu DS, E og D þannig komið í veg fyrir að V gæti sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem nánar hefði verið útfært í samþykktum og lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Þá hefði framganga DS, E og D í því skyni að hindra aðgengi veiðimanna á vélknúnum ökutækjum sem keypt hefðu veiðileyfi á grundvelli tiltekins samnings farið í bága við fyrirmæli 4. mgr. 37. gr. laga nr. 61/2006. Varðandi eyðileggingu sleppitjarna kom fram í dómi Landsréttar að ekki lægi fyrir að tekin hefði verið ákvörðun um að breyta nýtingu landsins, sem fyrir lá að væri í sameign dánarbús föður DS, E og D og fleiri, á löglega boðuðum fundi. Þegar af þeirri ástæðu væri DS, E og D óheimilt að eyðileggja sleppitjarnirnar eða koma í veg fyrir nýtingu þeirra að öðru leyti.

...61/2006 og reglugerð nr. 345/2014 um starfsemi veiðifélaga. 59 Samkvæmt þessu er óhjákvæmilegt að miða við að stefndi starfi sem deild í Veiðifélagi Rangæinga en án samþykkta. Við...

Landsréttur birt 28. nóvember 2024

489/2023

Dagmar Sigríður Lúðvíksdóttir og Einar Lúðvíksson (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Veiðifélagi Eystri-Rangár (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Dóru Lúðvíksdóttur (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Vísað var frá héraðsdómi máli þessu sem V höfðaði á hendur DS, E og D, enda yrði ekki talið að V uppfyllti þann áskilnað 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að geta átt réttindi og borið skyldur að landslögum, en líta yrði svo á að V skorti lögmætan grundvöll fyrir starfsemi sinni. Óhjákvæmilegt væri að miða við að V starfaði sem deild í Veiðifélagi Rangæinga en án samþykkta. Af 6. mgr. 39. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði yrði skýrlega ráðið að í lögunum væri ekki gert ráð fyrir að veiðifélög störfuðu án samþykkta, staðfestum af Fiskistofu samkvæmt fyrirmælum laganna. Í öllu falli væri ljóst að aðild V að málinu væri í engu reifuð eða rökstudd, hvorki í héraðsstefnu né í greinargerð V til Landsréttar. Var því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá héraðsdómi.

...61/2006 og reglugerð nr. 345/2014 um starfsemi veiðifélaga. 25 Samkvæmt þessu er óhjákvæmilegt að miða við að stefndi starfi sem deild í Veiðifélagi Rangæinga en án samþykkta. Við...

Landsréttur birt 7. október 2022

347/2021

Auður Helga Ólafsdóttir (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður, Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Veiðifélagi Langadalsár, Hvannadalsár (Grímur Sigurðsson lögmaður) og Þverár (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður, 2. prófmál)

A var einn eigenda jarðarinnar Rauðamýrar en jörðinni fylgdi veiðiréttur í Hvannadalsá. A höfðaði mál á hendur V og krafðist þess að fá greiddan arð fyrir árin 2015 og 2017 vegna þess eignarhlutar sem hún var þinglýstur eigandi að. Í dómi Landsréttar kom fram að sameigendur Rauðumýrar hefðu gert með sér samkomulag árið 2000 en í því hefðu öll fjármál sameignarinnar verið falin fjárhaldsmanni. Á aðalfundi sameigenda á árinu 2015 hefði G verið kosinn fjárhaldsmaður og hefði arðgreiðsla þess árs verið greidd til hans. Með því hefði V uppfyllt skyldu sína til útgreiðslu arðs það árið. Vegna ósættis sameigenda hefði G látið af starfi sínu sem fjárhaldsmaður árið 2016. Þar sem fjárhaldsmanni hefði ekki verið fyrir að fara til að taka við arðgreiðslum árið 2017 hefði V uppfyllt skyldu sína til útgreiðslu arðs til sameigendanna með því að inna greiðslur af hendi til hvers og eins þeirra. Málamyndagerningur milli A og H, þess efnis að eignarhluta hans skyldi þinglýst á nafn A, gæti engu breytt um það. Var V sýknað af öllum kröfum A.

...Þetta er nánar útfært í reglugerð nr. 345/2014 um starfsemi veiðifélaga. Nánar segir í 8. gr. reglugerðarinnar að í samþykktum veiðifélags megi kveða á um að veiðifélag skuli starfa...