Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 335/1993"

5 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2024

E-2746/2023

A (Elimar Hauksson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skyldu stefnda til að greiða honum frekari bætur vegna afleiðinga umferðarslyss sem varð á árinu 2013. Studdi stefnandi kröfuna við álit örorkunefndar sem hann aflaði á árinu 2022. Dómurinn sýknaði stefnda þegar af þeirri ástæðu að ekki hafði verið sýnt fram á að ófyrirsjáanlegar breytingar hefðu orðið á heilsu stefnanda frá fyrra mati, þannig að uppfyllt væri skilyrði 11. gr. skaðabótalaga til endurupptöku bótaákvörðunar.

...50/1993 og reglugerð nr. 335/1993. Nefndin sé skipuð þremur óháðum og óvilhöllum matsmönnum, tveimur læknum og einum hæstaréttarlögmanni, skipuðum af íslenska ríkinu sem greiði fyrir vinnu þeirra. Þá...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2016

E-974/2016

Björn Samúelsson (Jónas Þór Jónasson hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran hrl)

Fallist var á kröfu stefnanda um viðbótarskaðabætur vegna slyss. Hann hafði gert fyrirvara við uppgjör bóta frá stefnda og aflað álits örorkunefndar sem lagt var til grundvallar hærri bótum vegna miska og varanlegrar örorku. Stefnda var einnig gert að greiða stefnanda bætur vegna fjártjóns og ferðakostnaðar, en kröfu stefnanda um lækkun frádráttar frá bótum vegna lífeyrissjóðsgreiðslna var hafnað.

...skaðabótalaga og reglugerð nr. 335/1993 og sé skipuð þremur óháðum og óvilhöllum matsmönnum, tveimur læknum og einum hæstaréttarlögmanni, skipuðum af íslenska ríkinu sem greiði fyrir vinnu þeirra. Örorkunefnd sé...

Hæstiréttur birt 12. júní 2014

13/2014

Vörður tryggingar hf (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn A (Halldór Þorsteinn Birgisson hrl)

X var ákærður fyrir sifskapar- og frelsissviptingarbrot með því að hafa með ofbeldi veist að stúlkunni A, sem þá var tíu ára, og ekið með hana á afvikinn stað. Þá var hann einnig ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð meðal annars þuklað á líkama hennar, látið hana snerta getnaðarlim sinn og fróa sér, látið hana hafa við sig munnmök og sett fingur sinn í kynfæri hennar og endaþarm. X var sakfelldur fyrir brot gegn 193. gr., 1. mgr. 194. gr., 1. og 2. mgr. 202. gr., 1. mgr. 210. gr. a. og 1. mgr. 226. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot X þótti þaulskipulagt og brotavilji hans styrkur og einbeittur, auk þess sem það beindist að varnarlausu barni sem átti sér einskis ills von og varði í rúmar tvær klukkustundir. Var X dæmdur í 10 ára fangelsi jafnframt því sem honum var gert að greiða A 4.000.000 krónur í skaðabætur auk vaxta.

...50/1993, en þær reglur er nú að finna í reglugerð nr. 335/1993 og síðari breytingarreglugerðum. Meðal þessara breytingarreglugerða er reglugerð nr. 549/1996 sem kveður á um það...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2013

E-10/2013

Anna Ólöf Haraldsdóttir (Guðbjörg Benjamínsdóttir hdl) gegn Verði tryggingum hf (Helga María Pálsdóttir hdl)
Lykilorð: Matsgerð. Örorka.

Talið var að matsgerð örorkunefndar yrði lögð til grundvallar mati á varanlegri örorku þrátt fyrir annmarka á málsmeðferð örorkunefndar.

...50/1993, en þær reglur er nú að finna í reglugerð nr. 335/1993 og síðari breytingarreglugerðum. Meðal þessara breytingarreglugerða er reglugerð nr. 549/1996 sem kveður á um það...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2007

E-6575/2006

Guðrún Ásta Lárusdóttir (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Ester Magnúsdóttur og Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald hrl)

Stefnu sýknuð af kröfu stefnanda um bætur vegna umferðarslyss, þar sem talið var að skilyrði 11. gr. skaðabótalaga voru ekki uppfyllt og stefnanda ekki því heimilt á þeim grundvelli að hafa uppi frekari kröfur án tillits til fyrirvara um samkomulag um lokauppgjör bótanna. Þá er lokauppgjör ekki takið ósanngjarnt þannig að það yrði ógilt á grundvelli samningalaga.

...50/1993 og reglugerð nr. 335/1993 um starfsháttu örorkunefndar.  Þvert á móti séu álit nefndarinnar ekki bindandi og af þeirri ástæðu einni hafi þessi afstaða nefndarinnar ekki endanleg úrslitaáhrif...