Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 284/2016"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 16. júní 2022

114/2021

Félag makrílveiðimanna (Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Með lögum nr. 46/2019 voru gerðar breytingar á lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 116/2006 um stjórn fisveiða með nánar tilgreindum hætti. Í kjölfarið höfðaði FM mál á hendur Í og krafðist þess aðallega að viðurkennt yrði með dómi að óheimilt hefði verið að takmarka heimildir félagsmanna til veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofninum en til vara að viðurkennt yrði að óheimilt hefði verið að takmarka heimildir félagsmanna til ráðstöfunar á aflaheimildum í B- flokki Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofnsins. Byggði FM á því að með því að miða við lengra viðmiðunartímabil en almennar reglur á sviði fiskveiðistjórnunar gerðu ráð fyrir væri brotið gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar, auk 75. gr. stjórnarskrár um atvinnufrelsi og 72. gr. stjórnarskrár um friðhelgi eignarréttar. Takmarkanir á heimildum til ráðstöfunar á aflaheimildum hefðu brotið gegn sömu ákvæðum stjórnarskrár, enda féllu heimildir félagsmanna almennt í B-flokk. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að umþrætt viðmiðunartímabil hefði ekki falið í sér ómálefnalega takmörkun, mismunun eða óréttmætar skerðingar á réttindum félagsmanna. Þá taldi dómurinn að málefnaleg sjónarmið, sem rúmuðust enda innan valdheimilda löggjafans, hefðu ráðið því að setja framsali veiðiheimilda úr B-flokki í A-flokk skorður. Með hliðsjón af því og því víðtæka svigrúmi til mats sem íslenskir dómstólar hefðu játað löggjafanum til stefnumótunar á sviði fiskveiðistjórnunar var ekki talið að framangreint fyrirkomulag hefði brotið í bága við stjórnarskrárvarin réttindi félagsmanna áfrýjanda. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í af kröfum FM því staðfest.

...apríl 2016 var svo sett reglugerð nr. 284/2016 um stjórn makrílveiða árið 2016. Byggði hún að mestu leyti á þeim grunni sem lagður hafi verið um stjórn veiðanna árið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2021

E-464/2020

Félag makrílveiðimanna (Jóhannes Bjarni Björnsson) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson)

Stefnandi gerði í málinu aðallega kröfu um viðurkenningardóm í þá veru að óheimilt hafi verið að takmarka heimildir félagsmanna hans til veiða úr makrílstofninum með því að grundvalla úthlutun aflahlutdeildar á grundvelli tíu bestu aflareynsluára veiðiskipa á árunum 2008–2018 samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, sbr. lög nr. 46/2019 . En til vara krafðist stefnandi viðurkenningardóms um að óheimilt hafi verið að takmarka sérstaklega heimildir félagsmanna hans til ráðstöfunar á slíkum aflaheimildum í B flokki samkvæmt tilgreindum ákvæðum í sömu breytingalögum nr. 46/2019. Í báðum tilvikum taldi stefnandi að umrædd löggjöf færi í bága við jafnræði, atvinnufrelsi og tengd eignaréttindi félagsmanna hans, sbr. 1. mgr. 65. gr., og 75. gr., sbr. 72. gr. stjórnarskrár. Að mati dómsins var ekki fallist á að sýnt væri fram á það að umrædd löggjöf færi eins og á stóð í bága við framangreind stjórnarskrárákvæði og var stefndi því sýknaður.

...apríl 2016 var svo sett reglugerð nr. 284/2016 um stjórn makrílveiða árið 2016. Byggði hún að mestu leyti á þeim grunni sem lagður hafi verið um stjórn veiðanna árið...