Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 175/2000"
2 dómar fundust
H krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður nefndar samkvæmt lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, þar sem staðfest var ákvörðun Fiskistofu um álagningu gjalds á H vegna umframafla. Allur málatilbúnaður H fyrir Hæstarétti hafði breyst mjög frá því sem var í héraði. Var ekki einungis um það að ræða að hann tefldi fram nýjum málsástæðum, svo sem Í hafði haldið fram, heldur hafði allur grundvöllur málsins gjörbreyst. Var óhjákvæmilegt að vísa málinu af sjálfsdáðum frá héraðsdómi.
...5. júlí 2000. Magn þess afla hafi verið umreiknað samkvæmt lögbundnum stuðli, sbr. reglugerð nr. 175/2000, til afla úr sjó sem aflamark er miðað við. Eins og fram komi...
O seldi S skipið OW árið 1994. Á árunum 1997 og 1999 fékk S úthlutað hlutdeild í úthafskarfa og þorskafla í Barentshafi. Var sú úthlutun að hluta byggð á veiðireynslu skipsins á árinu 1993, er það var enn í eigu O. Á þeim tíma voru slíkar veiðar ekki háðar leyfi íslenskra stjórnvalda. Taldi O að sér bæri sú hlutdeild sem rakin yrði til veiðireynslu á árinu 1993. Hann átti þó ekkert skip er hér var komið sögu en úthlutun var bundin við skipseign. Engin réttindi höfðu verið tengd veiðireynslu utan fiskveiðilögsögunnar þegar skipið var selt og var ósannað að þess hefði þá mátt vænta innan skamms tíma. Verðmæti, sem rekja mátti til veiðireynslu O, sköpuðust fyrst tæpum þremur árum eftir undirritun kaupsamnings. Þar sem O glataði þannig engum réttindum við úthlutunina sjálfa var ekki talið að áfrýjandi hefði auðgast á kostnað hans við hana. Þá var ekki fallist á að O ætti einkaréttarlegt tilkall til hlutdeildar í þeim réttindum, sem S var úthlutað, enda var ekki á það minnst í kaupsamningnum hvernig með skyldi fara ef til kæmu önnur réttindi en vitað var um á þeim tíma og bundin væru aflahlutdeild O. Var talið að S hefði haft réttmæta ástæðu til að ætla að með efndum sínum á ákvæðum kaupsamningsins og afsals væri lögskiptum aðila lokið. Var S því sýknaður af kröfu O.
...Úthlutun hafi nú farið fram samkvæmt reglugerð nr. 175/2000 en samkvæmt henni er íslenskum skipum heimilt að veiða 13 þúsund lestir úr stofninum sem heldur sig grynnra en á...