Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 160/2007"
6 dómar fundust
S o.fl. höfðuðu mál gegn sveitarfélaginu V og Í ehf. og kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun V um staðfestingu á deiliskipulagsbreytingu fyrir nánar tilgreint iðnaðarsvæði í sveitarfélaginu þar sem Í ehf. hugðist reisa súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju. Var málið rekið samhliða öðru máli sem S o.fl. höfðu höfðað vegna þriggja byggingarleyfa sem V hafði gefið út til Í ehf. vegna verksmiðjunnar og til úrlausnar var í dómi Hæstaréttar í máli nr. 738/2017. Byggðu S o.fl. á því að málsmeðferð V við deiliskipulagsbreytinguna hefði ekki samræmst ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsbreytingin væri háð efnislegum annmörkum sem leiða ættu til ógildingar hennar. Var meðal annars á því byggt af hálfu S o.fl. að deiliskipulagið hefði ekki sætt umhverfismati í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana og skipulagslög og að skort hefði á að samráð hefði verið haft við S o.fl. við vinnslu og samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar. Þá hefði breytingin bæði gerbreytt eðli deiliskipulagsins og eyðilagt innra samræmi þess. Héraðsdómur hafnaði öllum málsástæðum S o.fl. og taldi að ekki hefði verið sýnt fram á að nokkrir þeir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins sem leitt gætu til þess að fallist yrði á kröfur þeirra. Voru V og Í ehf. því sýknuð af kröfu S o.fl. og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu.
...Að mati stefnenda er þessi lýsing alls ófullnægjandi í ljósi þess að óumdeilt sé að starfsemi verksmiðjunnar falli undir reglugerð nr. 160/2007 um varnir gegn hættu á stórslysum af...
S o.fl. höfðuðu mál gegn Í ehf. og kröfðust þess að þrjú nánar tilgreind byggingarleyfi sem V hafði gefið út til Í ehf., vegna byggingar súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju, yrðu felld úr gildi. Sveitarfélaginu V var stefnt til réttargæslu. Byggðu S o.fl. m.a. á því að deiliskipulagsbreytingin, sem byggingarleyfin studdust við, hefði verið haldin svo verulegum ágöllum að ógildingu varðaði. Þá hefði ekki verið heimilt að veita byggingarleyfi til einstakra þátta framkvæmdarinnar, auk þess sem S o.fl. vefengdu hæfi skipulags- og byggingarfulltrúa V til útgáfu leyfanna. Ennfremur byggðu S o.fl. á því að áætlun um stórslysavarnir hefði verið ófullnægjandi. Héraðsdómur hafnaði því að umrædd deiliskipulagsbreyting hefði verið haldin ágöllum með vísan til niðurstöðu dómsins í máli milli S o.fl. gegn V og Í ehf., sem rekið var samhliða um gildi deiliskipulagsins og til úrlausnar var í dómi Hæstaréttar í máli nr. 739/2017. Þá taldi dómurinn að ekki hefði verið sýnt fram á að ómálefnalegar ástæður hefðu legið að baki þeirri ákvörðun að veita byggingarleyfi til einstakra þátta framkvæmdarinnar og hafnaði því sömuleiðis að skipulags- og byggingarfulltrúi V hefði verið vanhæfur til útgáfu þeirra. Með vísan til umsagnar vinnueftirlitsins var því ennfremur hafnað að Í ehf. hefði ekki lagt fram fullnægjandi stórslysaáætlun. Var Í ehf. samkvæmt því sýknað af kröfu S o.fl. og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu.
...Að mati stefnenda er þessi lýsing alls ófullnægjandi í ljósi þess að óumdeilt sé að starfsemi verksmiðjunnar falli undir reglugerð nr. 160/2007 um varnir gegn hættu á stórslysum af...
Kröfu um að felld yrði úr gildi breyting á deiliskipulagi var hafnað.
...Að mati stefnenda er þessi lýsing alls ófullnægjandi í ljósi þess að óumdeilt sé að starfsemi verksmiðjunnar falli undir reglugerð nr. 160/2007 um varnir gegn hættu á stórslysum af...
Kröfu um að felld yrðu úr gildi byggingarleyfi var hafnað.
...Að mati stefnenda er þessi lýsing alls ófullnægjandi í ljósi þess að óumdeilt sé að starfsemi verksmiðjunnar falli undir reglugerð nr. 160/2007 um varnir gegn hættu á stórslysum af...
Vegna annmarka á rannsókn og umfjöllun Skipulagsstofnunar í tilefni af tilkynningu um fyrirhugaða byggingu á sólarkísilverksmiðju var ákvörðun hennar, þess efnis að ekki þyrfti að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, felld úr gildi.
...tilkynningu meðstefndu, falli ekki undir stórslysavarnir og sé verksmiðjan því ekki stórslysavarnarskyld samkvæmt reglugerð nr. 160/2007, um varnir gegn hættu á stórslysum af völdum hættulegra efna. Þá sé í...
Ragnheiður Jóna Þorgrímsdóttir, Davíð Bragi Gígja, Guðrún Lilja Ingólfsdóttir, Jón Gíslason, Sólrún Þórarinsdóttir, Ólafur Jónsson, Ragnar Gunnarsson, Unnur Sigfúsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Sigurþór Ingi Sigurðsson, Hulda Þorsteinsdóttir, Anna Guðfinna Ingólfsdóttir, Gunnar Leó Helgason, Helgi Jónsson, Sigríður Inga Hlöðversdóttir, Þórarinn Jónsson, Lisa Sascha Boije af Gennaes, Aðalheiður B. Einarsdóttir, Hermann Ingi Ingólfsson, Bergþóra Andrésdóttir, Sigurbjörn Hjaltason, Björn Hjaltason, Katrín Cýrusdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Maríanna Hugrún Helgadóttir, Regína Hansen Guðbjörnsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Örn Viðar Erlendsson, Guðrún Björk Gunnarsdóttir, Jóna Björk Jónsdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigurþór Gíslason, Jóna Thors, Kristín Eyjólfsdóttir, Magnús Bergmann Magnússon, Eggert Þór Sveinbjörnsson, Soffía Dagmar Þórarinsdóttir, Björn Guðbrands Ólafsson, Guðríður Gunnarsdóttir, Gunnar Auðunn Gíslason, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Magnús Guðbjartsson, Guðbjörg Jóna Magnúsdóttir, Gunnar Ásbjörnsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Einar Tönsberg, Rakel McMahon, Ágústa Oddsdóttir, Pia Rakel Sverrisdóttir og Skúli Mogensen (
Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl)
gegn
Silicor Materials Inc,
Silicor Materials Iceland ehf,
Silicor Materials Iceland Holding hf,
Skipulagsstofnun (
Arnar Þór Stefánsson hrl) og
íslenska ríkinu (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)
S o.fl. kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð framkvæmd SM Inc. á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit, sem fólst í hreinsun kísilmáls til framleiðslu á sólarkísli, væri ekki líkleg til þess að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum, sbr. lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Undir rekstri málsins í héraði kröfðust S o.fl. þess að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á átta spurningum sem vörðuðu túlkun á tilskipun 85/337/EBE með síðari breytingum. Hæstiréttur staðfesti hinn kærða úrskurð um að hafna beiðni S o.fl. þar sem ekki yrði séð að svör EFTA-dómstólsins hefðu þýðingu fyrir úrslausn málsins.
...tilkynningu meðstefndu falli ekki undir stórslysavarnir og sé verksmiðjan því ekki stórslysavarnarskyld samkvæmt reglugerð nr. 160/2007, um varnir gegn hættu á stórslysum af völdum hættulegra efna. Þá sé í...