Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1250/2018"

5 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2024

E-3204/2023

A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Ebba Schram lögmaður) og íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Stefnandi hafði uppi miskabótakröfu, aðallega gegn stefnda Reykjavíkurborg en til vara íslenska ríkinu, vegna óréttmætra tafa sem orðið hefðu á veitingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar henni til handa, svo og vegna skorts á upplýsingagjöf meðan á töfunum stóð. Í dóminum var fallist á kröfur stefnanda um miskabætur úr hendi aðalstefnda, Reykjavíkurborgar, þar sem engar haldbærar ástæður voru fyrir drætti á afgreiðslu umsóknar stefnanda um notendastýrða persónulega aðstoð árið 2019, en aðalstefndi hafði úthlutað samningum vegna slíkrar aðstoðar til fimm annarra einstaklinga í júlí það ár.

...Hvorki í reglugerð nr. 1250/2018 né í handbók um framkvæmd NPA sé vikið að biðlistum, röðun á slíka lista eða eftir atvikum nákvæm- ari upplýsingagjöf til umsækjenda um þjónustu...

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. mars 2024

E-1364/2023

A (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður) gegn Kópavogsbæ (Auður Kolbrá Birgisdóttir lögmaður)

Kópavogsbær sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar eða svonefnds NPA-samnings. Snéri ágreiningur málsins einkum að því að stefnandi vildi ráða til sín ættingja sína í umönnunarstörf, og taldi höfnun stefnda þess efnis ólögmæta. Þá var byggt á því að dráttur hefði orðið á veitingu fullrar NPA-þjónustu eða 730 klst. á mánuði, og veitingu aðstoðarverkstjórnar.

...38/2018 og reglugerð nr. 1250/2018, sem hafi miðað við 730 vinnustunda þjónustu, enda kemur m.a. fram í fundargerð stefnda frá 21. janúar 2020, „A þarf 730 tíma...

Hæstiréttur birt 4. maí 2022

50/2021

A (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Mosfellsbæ (Kristín Edwald lögmaður)

A höfðaði mál gegn M og krafðist annars vegar greiðslu miskabóta og hins vegar viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna meðferðar og afgreiðslu M á umsókn hans um notendastýrða persónulega aðstoð samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. A hafði sótt um notendastýrða persónulega aðstoð hjá M 4. október 2018 en þjónusta samkvæmt einstaklingssamningi við A hófst í febrúar 2021. Í dómi Hæstaréttar var komist að þeirri niðurstöðu að A hefði ekki leitt nægar líkur að því að hann hafi orðið fyrir tjóni sem orsakast hefði af skaðabótaskyldum verknaði M þannig að hann hefði lögvarða hagsmuni í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála af því að fá leyst úr viðurkenningarkröfu sinni fyrir dómi. Var kröfunni því vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi. Hins vegar var fallist á miskabótakröfu A með vísan til þess að takmarkaðar skýringar hefðu komið fram um tafir við meðferð og vinnslu umsóknar hans fram til þess að samningur hans var sendur til ráðuneytis 16. apríl 2020. Við mat á þýðingu tafanna yrði að hafa í huga að allt frá því að umsókn A barst M hafi hann verið í brýnni þörf fyrir skjóta afgreiðslu og M mátti vera það ljóst. Því hefði meðferð umsóknarinnar farið verulega úr skorðum og var M gert að greiða A 700.000 krónur í miskabætur.

...endurskoða bráðabirgðaákvæðið innan þriggja ára frá gildistöku laganna í ljósi fenginnar reynslu. 29. Reglugerð nr. 1250/2018 var sett á grundvelli laga nr. 38/2018 og tók gildi 28. desember...

Landsréttur birt 8. október 2021

226/2021

Mosfellsbær (Kristín Edwald lögmaður) gegn A (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður, Flóki Ásgeirsson lögmaður, 3. prófmál)

A höfðaði mál á hendur M og krafðist annars vegar greiðslu miskabóta að fjárhæð 2.500.000 krónur og hins vegar viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna fjártjóns. Kröfur sínar byggði A á því að meðferð og afgreiðsla M á umsókn hans um notendastýrða persónulega aðstoð hafi verið ólögmæt og haldin verulegum annmörkum. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt ætla verði sveitarfélögum rúman tíma til setningar reglna um nýtt þjónustuúrræði hefði M ekki sýnt fram á að þær tafir sem urðu á afgreiðslu umsóknarinnar hefðu verið réttlætanlegar og því hefði málsmeðferðin farið í bága við 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Ekki var fallist á það með A að M hafi borið að semja við hann um notendastýrða persónulega aðstoð óháð því hvort ríkið væri búið að efna þær lögbundnu skyldur sem á því hvíldu um að fjármagna þjónustuúrræðið á móti M. Kostnaði við framkvæmd þjónustuúrræðisins væri skipt milli ríkis og sveitarfélaga og ekki væri gert ráð fyrir því að ábyrgðin yrði alfarið á herðum sveitarfélaga fyrr en frá og með árinu 2023. Þá hefðu sveitarfélög sjálfstjórn í þeim málum sem löggjafinn hefði falið þeim og færu sjálf með forræði eigin tekjustofna. Þau ein væru samkvæmt stjórnarskrá og lögum bær til að taka ákvarðanir um framkvæmd lögbundinna verkefna eða stofna til útgjalda vegna þeirra umfram það sem lög kveða á um. M hafi því verið heimilt að binda samkomulag hans og A, um úthlutun vinnustunda á grundvelli umsóknar um notendastýrða persónulega aðstoð, fyrirvara um samþykki fyrir hlutdeild ríkisins. Þá var ekki fallist á það með A að M hefði brotið gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar eða 11. gr. stjórnsýslulaga við meðferð á umsókninni. Þar sem málsmeðferð M hafi farið í bága við 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga bæri M bótaábyrgð á tjóni A sem af því kynni að hafa leitt, að almennum bótaskilyrðum uppfylltum. Á hinn bóginn taldi Landsréttur að A hefði hvorki sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir fjártjóni vegna málsmeðferðar M né að M hefði við meðferð málsins komið þannig fram við A að í því hafi falist ólögmæt meingerð í hans garð sem veitti honum rétt til miskabóta samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var M því sýkn af kröfum A.

...Áfrýjandi hafi fyrst getað hafið vinnu við gerð slíkra reglna eftir að reglugerð nr. 1250/2018 hafði verið birt 27. desember 5 2018. Fyrstu drög að reglunum hafi verið lögð...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2021

E-8237/2020

A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Mosfellsbær (Kristín Edwald lögmaður)

Stefnandi sótt um notendastýrða persónulega aðstoð vegna fötlunar sinnar til stefnda þann 4. október 2018. Umsóknin var afgreidd 5 nóvember 2019 en tekið fram að samningur um slíka aðstoð tæki ekki gildi fyrr en m.a. ríkið hefði samþykkt fjármögnun á hluta samningsins. Fallist var á að afgreiðsla umsóknarinnar hefði dregist óhæfilega auk þess sem ákvörðun stefnda að binda hana skilyrði fyrir hlutdeild ríkisins í fjármögnun ætti sér ekki lagastoð. Með vísan til þessa var fallist á miskabótakröfu stefnanda og viðurkenningarkröfu á skaðabótaábyrgð.

...október 2018, hafi verið sett reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð. Reglugerðin hafi tekið gildi 27. desember 2018. Reglugerðin eigi stoð í 4. mgr. 11. gr. laga nr...