Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1173/2012"

3 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. maí 2021

E-226/2020

Ásgeir Þórarinsson (Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður) gegn Jóni Kristjánssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður), Kristni Ragnarssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður) og Garðabæ (Andri Árnason lögmaður)
Lykilorð: Fasteign. Fyrning. Galli. Hönnun.

Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefndu vegna ætlaðra galla á hönnun einbýlishúss sem hann keypti í byggingu. Með vísan til matsgerða dómkvadds matsmanns voru í dómi héraðsdóms teknar til greina að hluta kröfur hans á hendur stefnda S hf. á grundvelli starfsábyrgðartryggingar K en talið að krafa á hendur K væri niður fallin fyrir fyrningu. Þá var ekki talið að hönnun J væri ábótavant þannig að bótaskyldu varðaði og var hann því sýknaður. Stefndi G var einnig sýknaður.

...Með reglugerð nr. 1173/2012 um breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012 hafi verið ákveðið að fresta gildistökuákvæði síðarnefndu reglugerðarinnar til 15. apríl 2013, þ.m.t. ákvæðum um einangrun...

Landsréttur birt 16. nóvember 2018

228/2018

Vörður tryggingar hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn A (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn V hf. til viðurkenningar á rétti sínum til skaðabóta úr ábyrgðartryggingu H hjá V hf. vegna líkamstjóns sem A varð fyrir þegar hún féll í stiga í húsnæði í eigu H. Í dómi Landsréttar kom fram að stiginn sem um ræddi hefði uppfyllt kröfur gildandi byggingarreglna þegar hann var reistur. Af lýsingu A og vitnis á tildrögum slyssins fyrir héraðsdómi yrði ekki ráðið að frágangur stigans hefði valdið slysinu heldur yrði það rakið til óhappatilviks sem húseigandi bæri ekki ábyrgð á. Var V hf. því sýknað af kröfum A.

...stefnda. Stefnandi vísar til þess að samkvæmt gildandi byggingarreglugerð nr. 112/2012, sbr. reglugerð nr. 1173/2012 og nr. 350/2013, skuli handrið vera báðum megin á öllum stigum og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2018

E-606/2017

R (Jóhannes Albert Sævarsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hún féll í tröppum í húsi Hvítasunnukirkjunnar. Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu úr ábyrgðartryggingu húseiganda, þar sem handrið var einungis öðru megin í stigaganginum, Fallist var á viðurkenningakröfu stefnanda en bótaskylda lækkuð vegna eigin sakar.

...stefnda. Stefnandi vísar til þess að samkvæmt gildandi byggingarreglugerð nr. 112/2012, sbr. reglugerð nr. 1173/2012 og nr. 350/2013, skuli handrið vera báðum megin á öllum stigum og...