Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1165/2016"
2 dómar fundust
XTX höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður ríkisskattstjóra um að fella niður skráningu útibús félagsins á Íslandi á virðisaukaskattsskrá og hafna færslu innskatts og undanþeginnar veltu samkvæmt nánar tilgreindum virðisaukaskattsskýrslum. Þá krafðist félagið jafnframt að felldur yrði úr gildi úrskurður yfirskattanefndar um sama efni. Fyrir lá að í aðdraganda þess að samþykkt var að skrá útibú XTX á virðisaukaskattsskrá hafði félagið verið í samskiptum við embætti ríkisskattstjóra og veitt upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi útibúsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvörðun ríkisskattstjóra um að skrá útibú XTX á virðisaukaskattsskrá væri stjórnvaldsákvörðun og um hana giltu ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og óskráðar reglur stjórnsýsluréttar. Var talið að ákvörðun ríkisskattsstjóra hefði falið í sér afturköllun fyrri stjórnvaldsákvörðunar en eins og atvikum máls væri háttað hefði skort lagaheimild til slíkrar ákvörðunar. Var því fallist á kröfur XTX um að fella úr gildi úrskurði ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar.
...90/2003 og reglugerð nr. 1165/2016 hvíldi á hliðstæðri forsendu. Tók yfirskattanefnd fram að það væri grundvallaratriði samkvæmt framansögðu að skráningarskylda og þar með skattskylda samkvæmt lögum um virðisaukaskatt...
Ágreiningur málsins varðaði það álitaefni hvort heimilt hafi verið að fella útibú stefnanda, XTX Markets Limited, útibú á Íslandi, af grunnskrá virðisaukaskatts. Var það niðurstaða dómsins samkvæmt skýru orðalagi ákvæðis 7. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988 að ríkisskattstjóra hafi verið heimilt að úrskurða útibú stefnanda af virðisaukaskattsskrá um leið og ljóst var að skilyrði sem lögin mæla fyrir um voru ekki uppfyllt.
...90/2003 og reglugerð nr. 1165/2016 hvíldi á hliðstæðri forsendu. Tók yfirskattanefnd fram að það væri grundvallaratriði samkvæmt framansögðu að skráningarskylda og þar með skattskylda samkvæmt lögum um virðisaukaskatt...