Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1155/2013"
2 dómar fundust
A höfðaði mál gegn L og Í þar sem hann krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður heilbrigðisráðuneytisins þar sem staðfest var gjaldtaka á hendur A vegna notkunar hans á CPAP-öndunarvél. Jafnframt krafðist A þess að L og Í yrði sameiginlega gert að endurgreiða honum oftekin gjöld vegna notkunarinnar. Ágreiningur aðila snerist um lögmæti gjaldtökunnar en A taldi að um væri að ræða þjónustugjald og að ekki væri fullnægjandi lagagrundvöllur fyrir gjaldtökunni. L og Í héldu því hins vegar fram að um væri að ræða styrk fremur en þjónustugjald. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2018 um sjúkra-tryggingar, sem mælir fyrir um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við öflun og notkun hjálpartækja, yrði ekki túlkað öðruvísi en svo að um væri að ræða greiðslu-þátttöku Sjúkratrygginga með þeim sem notuðu hjálpartæki á borð við öndunarvélar. Ekki hafi staðið til af hálfu löggjafans að ríkið bæri allan kostnað við öflun og notkun hjálpartækja, enda sé sérstaklega tekið fram í þágildandi reglugerð nr. 1155/2013, að öndunarvélar séu greiddar að fullu en skiptanlegir fylgihlutir og rekstrarvörur fyrir vélarnar ásamt þjónustu séu greiddir að fullu nema fyrir notendur CPAP-öndunarvéla. Notkun A á CPAP- öndunarvél hafi því verið niðurgreidd af Sjúkratryggingum að öðru leyti en því að styrkurinn tók ekki til mánaðarlegs meðalkostnaðar vegna skiptanlegra fylgihluta, rekstrarvöru og þjónustu við vélina umfram 440 krónur sem A bar að greiða í þessu tilviki. Þar sem ekki var um að ræða að L innheimti gjald fyrir veitta þjónustu sem lagaheimild þurfti fyrir voru L og Í sýknuð af kröfum A.
...Ekki hafi staðið til af hálfu löggjafans að ríkið bæri allan kostnað við öflun og notkun hjálpartækja, enda sé sérstaklega tekið fram í þágildandi reglugerð nr. 1155/2013, að öndunarvélar...
Hafnað var kröfu einstaklings um endurgreiðslu gjalds fyrir notkun hjálpartækis. Talið var að viðunandi lagaheimild væri fyrir gjaldinu og að greinarmunur á gjaldtökunni og gjaldtöku fyrir önnur hjálpartæki byggðist á málefnalegum sjónarmiðum.
...Í svari stefnda var á það bent að um gjaldtökuna færi eftir reglugerð nr. 1155/2013, um styrki vegna hjálpartækja, með síðari breytingum. Í bréfi, dags. 12. mars 2020, óskaði...