Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1082/2004"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 21. maí 2026 kl. 16:37

138/2025

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Snorra Guðmundssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður), Sverri Þór Gunnarssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) og SSLL444 ehf.
Málaflokkur: Skattaréttur

S og SÞ voru sakfelldir fyrir tollalagabrot og brot gegn lögum um gjald af áfengi og tóbaki með því að hafa flutt til landsins tilgreint magn reyktóbaks og vindlinga og veitt íslenskum tollyfirvöldum rangar og villandi upplýsingar um varninginn. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að nokkrar tafir höfðu orðið á meðferð þess og þótti því rétt að skilorðsbinda refsinguna. Því var staðfestur dómur héraðsdóms um tveggja ára fangelsisrefsingu, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Auk þess var þeim báðum gert að greiða hvor um sig í ríkissjóð 740.742.386 krónur í sekt. Loks voru nánar tilgreindar eignir gerðar upptækar.

...einnig reglugerð nr. 1082/2004. Það sé ekki ákæruvaldsins að gera það. Í þessum efnum er til þess að líta að tóbaksgjald var ekki lagt á, hvorki af hálfu Áfengis...

Landsréttur birt 29. september 2023

308/2022

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S, sem annaðist innflutning á vindlum í þeim tilgangi að selja beint í smásölu í eigin netverslun, krafðist endurgreiðslu frá Í á gjaldi sem S innti af hendi til ÁTVR í formi heildsöluálagningar á tóbak, sbr. ákvæði laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Taldi S að ÁTVR væri óheimilt að skylda S til að greiða heildsöluálagningu sem skilyrði fyrir því að fá tóbak sitt afhent, þar sem félagið stundaði ekki heildsölu. Ekki var um það deilt að heildsöluálagning á tóbak væri skattur, en S taldi á hinn bóginn að ekki væri fyrir hendi skýr lagastoð fyrir álagningunni, en hvergi í lögum nr. 86/2011 var skilgreint hvað fælist í „heildsölu“ eða „heildsöluálagningu“. Í niðurstöðu Landsréttar var bent á að samkvæmt 1. málslið 2. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2011 hefði ÁTVR einkaleyfi til að selja tóbak innanlands í heildsölu. Í því einkaleyfi fælist að allt tóbak sem flutt væri til landsins og selt á Íslandi þyrfti fyrst að afhenda ÁTVR og kaupa síðan af stofnuninni í heildsölu. Þá væri í 3. mgr. 9. gr. laganna mælt fyrir um að heildsöluálagning á tóbak skyldi vera 18%. Samkvæmt því væri í lögum nr. 86/2011 mælt fyrir um meginatriði þeirrar skattlagningar sem um ræddi og álagningin sem deilt var um byggð á beinum fyrirmælum löggjafans í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar og markmið þeirra. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest og Í sýknað af kröfum S.

...desember 2004 var jafnframt sett reglugerð nr. 1082/2004 um tóbaksgjald og merkingar tóbaks, sem er enn í gildi, og var reglugerðin sett með stoð í 12. gr. laga nr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2022

E-1989/2021

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi var sýknaður af endurgreiðslukröfu stefnanda vegna heildsöluálagningar ÁTVR á tóbak en ekki var fallist á það með stefnanda að sýnt þætti fram á að umrædd gjaldtaka hvað hann varðaði skorti lagastoð.

...desember 2004 var jafnframt sett reglugerð nr. 1082/2004 um tóbaksgjald og merkingar tóbaks, sem er enn í gildi, og var reglugerðin sett með stoð í 12. gr. laga nr...