Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 106/2013"

3 dómar fundust

Hæstiréttur birt 4. maí 2020

50/2019

Hróðgeir hvíti ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Í málinu krafðist H ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna fjártjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir með því að hafa ekki notið tekna af áframhaldandi veiðum þegar veiðidögum á grásleppuvertíðinni 2017 var fjölgað um 10 daga með reglugerð nr. 374/2017. Reglugerðin tók gildi eftir að H ehf. hafði hætt grásleppuveiðum þar sem leyfilegt veiðitímabil hans var liðið og sótt um leyfi til strandveiða. Hæstiréttur taldi nægilega komið fram að nokkurt óhagræði hefði verið af því fyrir H ehf. og aðra þá sem voru í sömu stöðu að hefja aftur grásleppuveiðar eftir að þeim hefði verið hætt. Til þess væri að líta að stjórnvöld hefðu gripið til ýmissa úrræða til að koma til móts við þá sem fengið hefðu leyfi til grásleppuveiða og draga eftir mætti úr röskun á innbyrðis jafnræði þeirra á milli. Hefði meðal annars verið bætt við reglugerðina ákvæði til bráðabirgða þar sem bátum, sem hætt hefðu veiðum og tekið upp net sín áður en veiðidögum var fjölgað, var heimilað að hefja veiðar að nýju þrátt fyrir 3. gr. reglugerðar nr. 164/2017 um samfelldar veiðar, auk þess sem Fiskistofa hefði tilkynnt að fresta mætti upphafsdegi strandveiða. Var vísað til þess að þótt vafi kynni að hafa leikið á heimild Fiskistofu til að leyfa grásleppuveiðar í slíkum tilvikum hefði H ehf. getað sér að vítalausu haldið til veiða enda hefði hann ekki getað fengið úr því álitaefni skorið fyrirfram. Komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að fjölgun veiðidaga með fyrrnefndri reglugerð hefði ekki farið í bága við lög. Skorti því á að fullnægt væri skilyrði sakarreglunnar um ólögmæta háttsemi Í svo bótaábyrgð yrði felld á Í. Þegar af þeirri ástæðu var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

...veiðidaga ákveðinn 20 með reglugerð sem gefin var út fyrir upphaf veiðitímabils, sbr. reglugerð nr. 106/2013 um hrognkelsaveiðar og reglugerðir nr. 72/2014 nr. 177/2015 og nr. 202...

Hæstiréttur birt 28. janúar 2016

461/2015

Halldór fiskvinnsla ehf (Jón Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Í málinu krafðist H ehf. endurgreiðslu veiðigjalda sem hann greiddi fiskveiðiárið 2012/2013 vegna landaðs afla í fisktegundum sem ekki sættu ákvörðun um heildarafla, en um var að ræða tindaskötu, hlýra, rauðmaga og grásleppu. Taldi hann að veiðigjöld af þessu tagi væru skattar og að skattlagningin uppfyllti ekki skilyrði stjórnarskrár um skattlagningu, jafnræði og vernd eignarréttar. Talið var að veiðar H ehf. á umræddum tegundum hefðu verið háðar stjórn fiskveiða í skilningi laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og því skylt samkvæmt 20. gr. þeirra að greiða veiðigjöld af þessum tegundum, svo sem í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld greindi. Ekki var fallist á með H ehf. að það að miða gjaldstofn veiðigjalds við þorskígildi hefði falið í sér ólögmætt framsal á skattlagningarvaldi til stjórnvalda þannig að færi í bága við 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Þá var talið að sú málsástæða H ehf. að umrædd gjaldtaka stæðist ekki ákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar væri engum haldbærum rökum studd og var henni því hafnað. Við mat á því hvort skattlagningin hefði farið í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar var litið til þess að aðstaða H ehf., sem gerði út aflamarksbát, og þeirra sem gerðu út báta með krókaaflamarki hefði á umræddum tíma verið ósambærileg varðandi tegundirnar tindaskötu, hlýra og rauðmaga. Hefðu álögð veiðigjöld á H ehf. vegna þessara tegunda því ekki brotið í bága við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn var talið að aðstaða þeirra væri sú sama þegar um væri að ræða veiðar á grásleppu þar sem við stjórn þeirra veiða hafði ekki verið gerður munur á þessum tvenns konar bátum, auk þess sem veiðarfærin gætu í báðum tilvikum verið þau sömu. Talið var að í þessu hefði falist ómálefnaleg mismunun sem hefði verið í andstöðu við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í því gert að greiða H ehf. nánar tilgreinda fjárhæð.

...Fiskveiðiárið 2012/2013 gilti um veiðarnar reglugerð nr. 106/2013 um hrognkelsaveiðar en samkvæmt 1. gr. hennar voru allar veiðar á grásleppu í fiskveiðilandhelgi Íslands óheimilar nema að fengnu sérstöku...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2015

E-2568/2014

Halldór fiskvinnsla ehf (Jón Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Álögð veiðigjöld.

...Fiskveiðiárið 2012/13 hafi gilt reglugerð nr. 106/2013, um hrognkelsaveiðar. Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar séu allar veiðar á grásleppu í fiskveiðilandhelgi Íslands óheimilar, nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu...