Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 105/2000"

6 dómar fundust

Landsréttur birt 26. apríl 2021

174/2021

Hótel Látrabjarg ehf Karl Eggertsson og Sigríður Huld Garðarsdóttir (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður) gegn Arctic Sea Farm hf. (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Matvælastofnun (María Thejll lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli HL ehf. og fleiri gegn A hf. og M var vísað frá dómi. Í málinu kröfðust HL ehf. og fleiri þess að fellt yrði úr gildi rekstrarleyfi A hf. til sjókvíaeldis í Patreksfirði og Tálknafirði. Í úrskurði Landsréttar kom fram að HL ehf. og fleiri hefðu ekki sýnt fram á að niðurstaða málsins hefði raunhæft gildi fyrir réttarstöðu þeirra og að þau hefðu hagsmuni af því að fá leyst úr dómkröfum sínum í þeim búningi sem þær voru lagðar fyrir dóminn enda fælist í þeim lögspurning sem væri andstæð meginreglu 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá væri ekki séð að HL ehf. og fleiri gætu að réttu lagi talist hafa nokkra lögvarða hagsmuni af því að tilgreint rekstrarleyfi yrði fellt úr gildi. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.

...Stefndi telur að þrátt fyrir að fjarlægðin sé styttri en greinir í reglugerð nr. 105/2000, geti stefnendur Karl og Sigríður þrátt fyrir það ekki reist heimild til málshöfðunar á...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. mars 2021

E-1007/2020

Hótel Látrabjarg ehf Karl Eggertsson og Sigríður Huld Garðarsdóttir (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Arctic Sea Farm hf. (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Matvælastofnun (María Thejll lögmaður)

Kröfu stefnenda um að fellt yrði úr gildi rekstrarleyfi stefnda, Matvælastofnunar fyrir kynslóðaskiptu sjókvíaeldi Í Patreksfirði og Tálknafirði var vísað frá dómi. Var það niðurstaða dómsins að stefnendur hefðu ekki sýnt fram á að niðurstaða málsins hefði raunhæft gildi fyrir réttarstöðu þeirra, og að þau hafi hagsmuni af því að fá leyst úr kröfum sínum eins og þær voru lagðar fyrir dóminn, sbr. 1. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

...Stefndi telur að þrátt fyrir að fjarlægðin sé styttri en greinir í reglugerð nr. 105/2000, geti stefnendur Karl og Sigríður þrátt fyrir það ekki reist heimild 8 til málshöfðunar...

Hæstiréttur birt 31. mars 2020

1/2020

Náttúruvernd 2 málsóknarfélag (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður) gegn Matvælastofnun (María Thejll lögmaður) og Löxum fiskeldi ehf (Óttar Pálsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli N á hendur M og L ehf. var vísað frá héraðsdómi. Í málinu krafðist N ógildingar á rekstrarleyfi sem Fiskistofa hafði veitt L ehf. til reksturs sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði. Í dómi Hæstaréttar kom fram að N væri málsóknarfélag samkvæmt 19. gr. a. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og að því stæðu tilgreind veiðifélög. Hagsmunir tengdir nýtingu laxveiðihlunninda tilheyrðu ekki veiðifélögum heldur félagsmönnum þeirra samkvæmt 5. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Í ljósi markmiða síðastnefndra laga og að því gættu að veiðiréttarhöfum væri skylt að hafa með sér félagsskap í því skyni að markmiðunum yrði náð, yrði að leggja til grundvallar að veiðifélög gætu í skjóli umboðs sótt fyrir dómstólum kröfur sem lytu að veiðirétti félagsmanna sinna og þeir hefðu lögvarða hagsmuni af að fá úrlausn dómstóla um, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Væri slíkt hvorki andstætt lögbundnu hlutverki veiðifélaga né, í því tilviki sem væri til úrlausnar, öndvert samþykktum þeirra veiðifélaga sem stæðu að N. Í dóminum var vísað til þess að hvorki félagsmenn í veiðifélögunum né félögin sem slík hefðu átt aðild að stjórnsýslumáli um útgáfu umrædds rekstrarleyfis. Réttur N til að bera undir dómstóla hvort farið hefði verið að lögum við útgáfu rekstrarleyfisins yrði því ekki reistur á aðild þeirra að stjórnsýslumálinu. Þegar metið væri hvort sá sem hefði óbeinna hagsmuna að gæta af úrlausn stjórnsýslumáls gæti borið lögmæti stjórnvaldsákvörðunarinnar undir dómstóla yrði að taka mið af því hvort hagsmunir hans af ákvörðuninni væru verulegir og meiri en hvers annars í samfélaginu, til dæmis vegna nálægðar við leyfisskylda starfsemi sem ákvörðun stjórnvaldsins heimilar. Benti rétturinn á að þegar ekki færu saman hagsmunir þeirra sem stunda fiskeldi og þeirra sem veiðiréttar njóta samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði hefði löggjafinn metið það svo að hagsmunir fiskeldisins skyldu víkja með þeim hætti sem nánar væri mælt fyrir um í lögum. Þegar litið til þess hversu langt laxveiðiár þær sem um ræddi í málinu væru frá sjókvíaeldinu í Reyðarfirði, miðað við ákvæði reglugerðar nr. 105/2000, fengi fyrrnefnt hagsmunamat því ekki breytt að N gæti ekki reist heimild sína til höfðunar máls til ógildingar á umræddu starfsleyfi á reglum grenndarréttar, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar 9. júní 2005 í máli nr. 20/2005 og 3. júní 2004 í máli nr. 171/2004. Loks kom fram að til þess að fullnægt væri skilyrðum um lögvarða hagsmuni samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 yrði N að sýna fram á eða gera líklegt að félagsmenn hans hefðu orðið fyrir tjóni vegna umræddrar starfsemi en það hefði hann ekki gert. Var niðurstaða hins kærða úrskurðar því staðfest og málinu vísað frá héraðsdómi.

...Hafa nokkrar slíkar verið settar, meðal annars reglugerð nr. 105/2000 um flutning og sleppingar laxfiska og varnir gegn fisksjúkdómum og blöndun laxastofna. Í 4. gr. reglugerðarinnar kemur fram að...

Landsréttur birt 20. desember 2019

10/2019

Náttúruvernd 2 málsóknarfélag (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður) gegn Matvælastofnun (María Thejll lögmaður) og Löxum Fiskeldi ehf. (Óttar Pálsson lögmaður) og Laxar Fiskeldi ehf. gegn Náttúruvernd 2 málsóknarfélagi

N höfðaði mál á hendur M og L ehf. og krafðist þess að fellt yrði úr gildi rekstrarleyfi sem Fiskistofa hafði veitt L ehf. til reksturs stöðvar til sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði. N byggði á því að aðildarfélög þess hefðu lögvarða hagsmuni af málsókninni, annars vegar vegna þess að starfsemi L ehf. myndi valda þeim tjóni í tengslum við nýtingu laxveiðihlunninda á félagssvæðum þeirra en hins vegar vegna þess að á grundvelli starfseminnar myndi fara fram erfðablöndum á milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi. Landsréttur taldi hagsmuni tengda nýtingu laxveiðihlunninda ekki tilheyra þeim veiðifélögum sem saman mynda N, heldur félagsmönnum þeirra. Því hefðu veiðifélögin ekki lögvarða hagsmuni af efnisúrlausn um það efni. Varðandi málatilbúnað N um hættu á blöndu eldislaxa við náttúrulega laxastofna í veiðiám á Íslandi taldi Landsréttur að málatilbúnaður N varðaði ekki lögmæti tiltekinnar stjórnvaldsákvörðunar heldur miðaði hann að því að fá fram afstöðu dómstóla til þess hagsmunamats löggjafans sem birtist í lögum nr. 71/2008 um fiskeldi. Landsréttur taldi því aðildarfélög N ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að fá úrslausn dómstóla um það efni. Var málinu því vísað frá héraðsdómi.

...Eldissvæði í Reyðarfirði séu í mikilli fjarlægð frá þessum ám og mun lengra frá laxveiðiám en áskilið sé í reglugerð nr. 105/2000 um flutning og sleppingar laxfiska og varnir...

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2019

47/2019

Náttúruvernd 2 málsóknarfélag (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður) gegn Matvælastofnun (María Thejll lögmaður) og Löxum fiskeldi ehf (Óttar Pálsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli N á hendur M og L ehf. var vísað frá héraðsdómi og N gert að greiða M og L ehf. málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Með dómi héraðsdóms voru M og L ehf. sýknaðir af kröfu N en málskostnaður felldur niður. Í dómi Hæstaréttar kom fram að M hefði í Landsrétti aðeins krafist málskostnaðar þar fyrir dómi. Var því talið að með því að gera N að greiða M málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti hefði Landsréttur farið út fyrir kröfu M um málskostnað auk þess sem ekki hefði getað komið til álita að dæma M málskostnað í héraði þar sem málinu var ekki gagnáfrýjað af hans hálfu. Var hinn kærði úrskurður því ómerktur og málinu vísað á ný til Landsréttar til löglegrar meðferðar.

...Eldissvæði í Reyðarfirði séu í mikilli fjarlægð frá þessum ám og mun lengra frá laxveiðiám en áskilið sé í reglugerð nr. 105/2000 um flutning og sleppingar laxfiska og varnir...

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. desember 2018

E-386/2017

Náttúruvernd 2 málsóknarfélag (Konráð Jónsson lögmaður) gegn Matvælastofnun (María Thejll lögmaður) og Löxum fiskeldi ehf. (Óttar Pálsson lögmaður)

Kröfu stefnanda var hafnað um að ógilt verði rekstrarleyfi sem Fiskistofa veitti í mars 2012 til reksturs stöðvar til sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði.

...Eldissvæði í Reyðarfirði séu í mikilli fjarlægð frá þessum ám og mun lengra frá laxveiðiám en áskilið sé í reglugerð nr. 105/2000 um flutning og sleppingar laxfiska og varnir...