Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna). nr. 97/2019
Eftir gildistöku laga nr. 116/2016 hinn 1. janúar 2017 áttu ellilífeyrisþegar ekki lengur rétt á sérstakri uppbót samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, eins og áður hafði verið, heldur áttu þeir aðeins rétt á ellilífeyri samkvæmt 17. og 23. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Staða örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega breyttist hins vegar ekki að þessu leyti við gildistöku laga nr. 116/2016. A og Ö höfðuðu mál gegn T til greiðslu vangreiddra bóta, viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða til viðurkenningar á því að T hefði verið óheimilt að skerða tilgreindar greiðslur bóta umfram ákveðin mörk og byggðu á því að ellilífeyrisþegar, sem áður nutu sérstakrar uppbótar samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, hefðu eftir þá kerfisbreytingu sem gerð var með lögum nr. 116/2016 notið betri réttinda en örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar í sömu stöðu. Fæli það í sér ólögmæta mismunun af hálfu löggjafans. Í dómi Landsréttar var tekið undir það með héraðsdómi að almennt yrði ekki fullyrt að staða örorku- og endurhæfingar- lífeyrisþega hefði samkvæmt lögum verið í öllu tilliti hin sama eða sambærileg stöðu ellilífeyrisþega fyrir gildistöku laga nr. 116/2016. Máli skipti að almenni löggjafinn hefði þegar gripið til mótvægisaðgerða þar sem leitast var við að bæta örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum upp þann mun sem var á stöðu þeirra og ellilífeyrisþega eftir fyrrgreindar kerfisbreytingar. Landsréttur féllst á þá niðurstöðu héraðsdóms að ekki væri unnt að fallast á það að fyrirkomulag ákvörðunar um sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, hefði falið í sér ólögmæta mismunun gagnvart A eða öðrum félagsmönnum Ö og þar með brot gegn 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var niðurstaða hinna áfrýjuðu dóma um sýknu T því staðfest.
Valdmörk dómstóla og löggjafarvalds. Sýknað af kröfu um viðurkenningu skaðabótaskyldu. Frávísun krafna vegna vanreifunar.
A og Ö höfðuðu mál gegn T til greiðslu vangreiddra bóta, viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða til viðurkenningar á því að T hefði verið óheimilt að skerða tilgreindar greiðslur bóta umfram ákveðin mörk. Kærður var sá hluti héraðsdóms þar sem aðalkröfum A og Ö, varakröfu Ö og þrautavarakröfu A í málinu var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að dómkröfur A og Ö væru skýrar. Deilt væri um það hvort sett ákvæði laga og reglugerðar hafi á tilgreindu tímabili gengið gegn ákvæðum stjórnarskrár þannig að ekki yrði á þeim byggt að öllu leyti. Þá breytti engu í þessu sambandi þó að einungis væri farið fram á að dómurinn liti að hluta til fram hjá reglu samkvæmt settu lagaákvæði og ákvæðum reglugerðar, enda fengist ekki séð að kröfugerð A og Ö fæli það í sér að viðkomandi dómkröfur þeirra leiddu til þess að dómstóllinn setti nýja lagareglu og færi með því inn á svið löggjafans í andstöðu við 2. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944. Að því virtu þóttu ekki efni til að vísa aðalkröfum A og Ö frá dómi á þeim grundvelli að sakarefnið heyrði ekki undir dómstóla, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá væru heldur ekki efni til að vísa þeim kröfum frá dómi á þeim grunni að þær væru svo vanreifaðar að ekki væru uppfyllt skilyrði d- og e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Í úrskurði Landsréttar kom jafnframt fram að í forsendum hins kærða dóms væri réttilega rakið að þrautavarakrafa A og varakrafa Ö væru reistar á sömu málsástæðum og lagarökum og aðalkröfur þeirra og varakrafa A. Af þeirri ástæðu var ekki talið að þessar kröfur A og Ö væru svo vanreifaðar að það leiddi til frávísunar þeirra frá dómi, sbr. 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Ákvæði hins kærða dóms um frávísun á kröfum A og Ö frá héraðsdómi var því fellt úr gildi og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.